Úrval - 01.04.1973, Page 98

Úrval - 01.04.1973, Page 98
96 ÚRVAL yfirleitt farnazt illa i starfi. Einn fyrsti staBurinn, sem Espólin gisti, eftir að hann kom alkominn heim til Islands, var Viðey, setur Skúla Magnússonar. FórSkúli ekki dult með þá skoðun sina, að koma mundi sér á óvart, ef Espólin slyppi vel frá dvöl sinni i Snæfellsnessýslu, fremur en fyrirrennarar hans þar. Að þeirrar tiðar hætti var Espólin ættrækinn maður. Heimsótti hann frændur sina, Stefánunga, svo skjótt sem hann mátti við koma, og lét hann þaö sitja fyrir viðtöku sýslunnar. Fór hann fyrst til Ólafs móöurbróður sins, sem þá bjó á Innra—Hólmi. Tók hann viö erindisbréfi sinu af honum. Dvaldist Espólin þar i góðu yfirlæti i nokkra daga. Leysti stiftamtmaður hann út með 10 dölum og ljósum gæðingi. Siðan fór Espólin að Leirá, þar sem Magnús Stephensen bjó. Voru kynni þeirra frænda ætið sæmileg, en ekki með öllu græskulaus. Lætur Espólin Magnús þó yfirleitt njóta sannmælis, er hann getur hans i ritum sinum. I „Arbókunum” lýsir hann Magnúsi á þessa leið: „Var hann kallaður réttdæmur og vinhollur og einlægur þeim, sem hann unni, en nokkuð stór og hlifðist litt við, er svo bar undir, stil hafði hann lærðan og orðrikan, en þungan nokkuð . . . skáldmæltur var hann meira af lærdómi en náttúru, og fór þó oft vel . . . .” Siðast sótti Espólin heim Björn notarius Stephensen, sem bjó á Hvitárvöllum. Er Birni þannig lýst, að hann hafi verið „mikill vexti, sterkur og gliminn, búsýslumaður, nokkuð fégjarn, ærið frjáls og ósnotur i háttum, tryggur maður, en vanvirti nálega lærdóma alla.” A Innra-Hóimi hjá Ólali hitti Espólin og frænda sinn Stefán Stephensen son Ólafs, og var hann þá varalögmaður. Höfðu þeir kynnzt, er þeir voru við nám i Höfn. Stefán var maður . . . hugfullur og röskur, skemmtinn og alþýðlegur, einkum i selskap, mjög hæfilegur til hvivetna, örr af fé og gestrisinn, snyrtimaður um allt kænn og mátti venda kápu eftir veðri......unni nann og visindum, en þó eigi minna rausn og höfðingsskap,” éins og segir i ævisögu Espólins. Af þessu má sjá, að hinn nýskipaði sýslumaður átti að góðum að hverfa i nágrenni sinu vestanlands. En sú varð þó raunin á, að ekki varð honum þessi sterki frændgarður það hald og traust, sem vænta mátti, er hann hafði tekið við embætti. Gekk honum flest i óhag á Snæfellsnesi. Bjó hann þar við þröngan kost og átti sér erfitt uppdráttar. Fyrsta veturinn var hann á vist með Stefáni Scheving á Ingjaldshóli. Fljótlega eftir komu sina að Ingjaldshóli lét Espólín festa þar upp gapastokk til þess að hræða Jöklara, sem honum fundust vera sér þver- snúnir. Var þar mikið um flakk og lausamennsku, og voru sýslubúar „vélafullir og afarþrjózkir við yfirvöld sin.” Hefur þá þegar komið i ljós, sem siðar var almælt, að Espólin var refsingasamt yfirvald. Atti hann erfitt með að þola undirsátum sinum uppivöðslusemi og mótþróa, og er raunar fullvist, að stundum keyrði agasemi hans og strangleiki um þverbak. Kom þar og til, að sýslumaður var manna fljótfærastur og skapbráður mjög. Var hann og auð- trúa og talhlýðinn. Notfærðu óvildarmenn hans sér stundum þann ágalla hans. Ekki bætti heldur úr skák, að hann var fremur illa að sér i lögum, a.m.k. er hann var nýr i embætti, en
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.