Bæjarblaðið Jökull - 20.12.2018, Qupperneq 8
Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs.
Þökkum viðskiptin á árinu.
voru kökurnar allar dásamlega
fallegar. Húsið var allt hreingert,
loft og veggir þvegnir og vil ég
segja frá því að þegar eldað var
við eld sem brann í eldavélinni
í eldhúsinu myndaðist óneitan
lega sót og reykur, einnig kom
reykur af olíulömpum og kerta
ljósunum svo umhverfi varð
óhreinna en gerist þegar eldað
er með rafmagni og rafmagns
ljósin lýsa eins og gerist í dag.
Síðast voru gólfin skúruð vel og
vandlega.
Þegar jólahátíðin gekk í garð
var allt svo skínandi hreint og
ilmandi fínt. Það var venja hjá
pabba að slátra lambi dagana
fyrir jólin svo það væri til nýtt
kjöt í jólasteikina. Á jóladag var
svo borðað hangikjöt, hangi
kjötið var heima gert, kind
hafði verið slátrað um haustið
og síðan reykti pabbi kjötið í
kofa sem stóð austur á túninu
heima. Þegar búið var að borða
á aðfangadagskvöld fórum við
inn í stofu, þar var búið að
skreyta jólatré sem var lítið
gervitré með gervi greni. Kerta
ljós voru sett á greinar þess og
kertin voru oft í fjölbreyttum
litum og fleira skraut var sett á
tréið, ég man eftir jólapokum
sem voru gerðir heima úr
pappír. Það var ekki mikið um
gjafir en pabbi og mamma gáfu
öllum börnunum bækur þeim
var ekki alltaf pakkað inn, pabbi
hafði skrifað nöfnin okkar á
bækurnar og gekk á milli okkar
og afhenti hverjum sína bók
kyssti okkur á kinnina og óskaði
okkur gleðilegra jóla. Að þessu
loknu gengum við í kringum
jólatréð héldumst í hendur
mynduðum hring kringum
tréið og sungum jólasálmana
Heims um ból, Í betlehem er
barn oss fætt, Í dag er glatt í
döprum hjörtum og söngvana
sem enn eru sungnir eins og
Gekk ég yfir sjó og land, Tíu
litlir negrastrákar og Göngum
við í kringum og margt margt
fleira.
Það var sannarlega hátíðar
stemning í litlu stofunni heima,
ljósin á olíulampanum voru
slökkt á meðan kertin á jóla
trénu brunnu niður og lýstu
okkur og veittu hátíðleika, helgi
og frið. Allir fengu epli á
að fanga dags kvöld. Að þessu
loknu var hitað súkkulaði og
kökurnar sem bakaðar höfðu
verið voru bornar á borð inn í
stofu og smökk uðust alveg
dásam lega vel.
Árin liðu hratt. Ég flutti í Rif,
giftist manninum mínum
Kristni Jóni Friðþjófssyni. Margt
hefur breytst frá því ég man
fyrst eftir mér um jól. Rafmagn
er all staðar allskonar heimilis
tæki á hverju heimili. Bakar
ofninn og saumavélin eru tölvu
stýrð og ef mig vantar uppskrift
að nýjum kökum sest ég við
tölvuna og leita á Google að því
sem mig vantar að vita. En ég
hef haldið áfram að undirbúa
jólin á þann hátt sem fyrrum
tíðkaðist að hafa heimilið hreint
og baka smákökur, ég saumaði
fötin á börnin mín fyrir jólin,
þegar þau voru lítil. Við hjónin
eignuðumst sex börn, þau voru
í aldursröð Bergþór, hann lést
sjö ára gamall svo kom Erla,
Kristjana, Bergþóra, Halldór og
Alexander Friðþjófur.
Góði lesandi þetta eru aðeins
smá minninga brot sem gefa
innsýn á þær miklu tækni fram
farir sem orðið hafa á minni æfi.
Ég vil færa ykkur öllum ósk um
gleðileg jól og farsælt komandi
ár.
Málverk af bænum Stakkhamri.
Þorbjörg og Kristinn Jón ásamt börnum sínum.