Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 20.12.2018, Blaðsíða 10

Bæjarblaðið Jökull - 20.12.2018, Blaðsíða 10
Sjávarsafnið á Norðurtanga í Ólafsvík hefur nú formlega verið lagt niður en lítil starfsemi hefur verið undanfarin ár og ljóst fyrir nokkru að ekki yrði rekið safn í húsinu. Þótti stjórn safnsins því eðlilegt að þeir fjármunir sem eftir stæðu, þegar búið væri að greiða skuldir safnsins og kostnað við að loka því, yrðu látnir renna aftur til samfélagsins. Megin­ ástæða þess er að uppbygging og rekstur safnsins hefur frá upphafi verið fjármagnaður með styrkjum frá opinberum sjóðum og Snæfellsbæ auk ómetan legs stuðnings fyrir­ tækja, félagasamtaka og ein­ staklinga. Voru styrkirnir af hentir laugar­ daginn 15. des em ber síðastliðinn í húsinu Kalda læk í Sjó manna­ garðinum í Ólafsvík. Í ræðu sinni við þetta tækifæri sagði Jóhannes Ólafsson frá því að sjávar safnið var stofnaði í októ­ ber árið 2000 og hófust fram­ kvæmdir í byrjun árs 2001. Boruð var borhola til að fá sjó inn í húsnæði safnsins og smíðuð þrjú 4500 lítra búr og tvö 1.500 lítra búr. Var fljótlega bætt við nokkrum minni búrum fyrir smærri lífverur úr sjó og fjöru. Hafi til að byrja með gengið erfiðlega að fá fiskana til að lifa en með góðum vilja, frjóu ímyndunarafli og samstarfi við líffræðinga voru fundnar lausnir sem skiluðu árangri. Hafði stjórn safnsins uppi stórar hugmyndir um safn að erlendri fyrirmynd en til að þær hefðu getað gengið eftir hefði safnið þurft að hafa mjög mikið fjármagn sem það hafði ekki aðgang að. Gerði stjórn safnsins ítrekaðar tilraunir til að fá menn ingar­ eða ferða þjónustu­ tengda starfsemi í húsið. Gekk það ekki eftir og húsið því sett á sölu og fékkst kaupandi að því í haust. Styrktu verkefni um 5 milljónir Þau málefni sem fengu styrk að þessu sinni voru: Sjómannagarðurinn í Ólafsvík, 4 .000.000 vegna breytinga í garðinum. Ólafsvíkurkirkja, 500.000 í sjóð til að bæta aðgengi fatlaðra. Uppbygging Ólafsvíkurréttar 300.000 til áframhaldandi uppbyggingar. Hesteigendafélagið Hringur 200.000 til uppbyggingar reiðhallarinnar. Kæru vinir og vandamenn Óskum ykkur gleðilegrar hátíðar og þökkum hlýhug og vináttu við andlát ástkæru móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu Láru Jónu Ólafsdóttur. Kær kveðja, aðstandendur Á myndinni eru frá vinstri Svanhildur Egilsdóttir, Jenný Guðmundsdóttir og Jóhannes Ólafsson úr stjórn Sjávarsafns- ins, Guðrún Tryggvadóttir fulltrúi Ólafsvíkurréttar, Gunnsteinn Sigurðsson sóknarnefndarformaður Ólafsvíkursóknar, Sölvi Konráðsson fulltrúi Hrings og Illugi Jens Jónasson úr stjórn Sjómannagarðsins.

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.