Bæjarblaðið Jökull - 20.12.2018, Blaðsíða 32
Miklar framkvæmdir hafa átt
sér stað í Sjómannagarðinum á
Hellissandi undanfarin ár og
hefur safnið fært sig í
nútímalegri búning. Nú síðast
var það styttan Jöklari sem var
flutt til Þýskalands í betrum
bætur.
Það er slysavarnardeildin
Helga Bárðardóttir sem á
styttuna og var hún vígð árið
1974. Skúlptúrverkið er eitt af
elstu verkum listamannins
Ragnars Kjartanssonar og jafn
framt hans hugstæðasta verk
þar sem hann fæddist og ólst
upp við sjósókn á Snæfellsnesi.
Styttan hefur ávallt sett
sterkan svip á Sjómannagarðinn
og er minnisvarði um sjómenn
frá Hellissandi og Rifi sem hafa
farist á sjó.
Jöklari var upphaflega
steyptur í epoxý, en það hefur
ekki dugað betur en svo að nú
liggur styttan undir skemmdum.
Stendur því til að steypa hana í
brons sem ætti að varðveita og
hlífa henni um ókoma tíð.
Það voru Jón ,,smiður”, Árni
Jón og Vélsmiðjan Fönix sem
tóku þátt í framkvæmdinni.
Verkefni sem þetta er
kostnaða rsamt og unnið í sjálf
boða vinnu. Þeir sem hafa
áhuga á að styrkja verkefnið er
bent á reikningsnúmer Svd.
Helgu Bárðardóttir
kt. 6610902009
rk. 0190 – 15 – 380046
Með fyrirfram þakklæti
F.h. Svd. Helgu Bárðardóttir
Albína Gunnarsdóttir og Aðal-
heiður Aðalsteinsdóttir
Jöklari fer í brons
Snæfellingum sendum við
óskir um gleðileg jól og
farsælt komandi ár.
Tanlæknastofa Ara Bjarnasonar
Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Þökkum ánægjuleg samskipti á líðandi ári.
God jul og godt nytt år.
Vi takker for samarbeidet i året som gikk.
Merry christmas and a happy new year.
Thank you for enjoyable moments in
the passing year.
Wesołych Świąt i szczęśliwego nowego.
Dziekujemy za owocna wspolprace w 2018 roku i
mamy nadzieje ze przyszly rok bedzie rownie udany
Счастливого Нового Года и светлого Рождества!!
С благодарностью за сотрудничество
и совместную работу в прошлом году,
Jólakveðja – Julehilsen • Christmas
greeting • życzenia świąteczne -
Поздравления с Рождеством!