Bæjarblaðið Jökull - 20.12.2018, Page 37
Snæfellingar!
Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Þökkum viðskiptin á árinu.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Þökkum viðskiptin og móttökurnar á árinu.
Víkingur Ólafsvík þakkar stuðninginn
á liðnu ári og óskar stuðningsmönnum
gleðilegra jóla og farsældar á því nýja.
Þeir voru frábærir jóla
tónleikarnir sem haldnir voru í
Ólafs víkurkirkju þann 13.
desember. Voru þetta árlegir
jóla tónleikar Kirkjukórs Ólafs
víkur þó með aðeins breyttu
sniði og báru tónleikarnir
yfirskriftina “Pólsk Íslensk
jól”. Því að þessu sinni sungu
saman kirkju kórinn og pólskir
vinir í tilefni af því að bæði
Pólland og Ísland halda upp á
100 ára fullveldisafmæli þetta
árið.
Á efnisskránni voru bæði
pólsk og íslensk jólalög sungin
á íslensku og pólsku. Það sem
var svo skemmtilegt við þessa
tónleika var að lögin voru svo
fjölbreytt og hinir ýmsu ein
söngvarar sungu ásamt kórnum.
Flutt voru tvö jólalög eftir
Sigurð Höskuldsson við texta
Jóns Hreinssonar. Voru tón
leikarnir mjög vel sóttir en hús
fyllir var á tónleikunum og
þökkuðu tónleikagestir fyrir sig
með dynjandi lófaklappi að
tónleikum loknum. Kirkju
kórinn og vinir sungu svo tón
leika gesti niður í safnaðarheimili
kirkjunnar þar sem boðið var
upp á kaffi, djús, konfekt og
pólskt nammi.
þa
Jólalög flutt á íslensku og pólsku
Bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Þakka viðskiptin á árinu sem er að líða.
Eiríkur Gautsson,
múrarameistari