Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 22.12.2023, Qupperneq 12

Bæjarblaðið Jökull - 22.12.2023, Qupperneq 12
Kalt vetrar loftið í Ólafsvík bítur mig í nefbroddinn þegar ég opna dyrnar að húsinu okkar og stíg út í ísilagt umhverfið. Himin- inn er djúpblár og speglast í ísnálunum á jörðinni. Niðurinn frá sjónum í bakgrunni eins og ljúf laglína. Kaldur andardráttur- inn gefur til kynna að veturinn sé kominn með öllu sínu veldi. Í fögru umhverfi snæviþakins bæj- arins finn ég fyrir hátíðlegu and- rúmslofti jólanna. Ferskt loftið fyllir lungun og í huganum anda ég að mér ilm af greninálum og viðarreyk, líkt og náttúran sjálf fagni töfrum jólanna. Veturinn í Snæfellsbæ býr yfir sínum eig- in töfrum þar sem hann vekur upp minningar af snjóþungum dögum í Sviss. Þegar desember gengur í garð skreyta fjölskyldur gluggana með glitrandi ljósum, heimagerðum skreytingum og líflegum jólamyndum. Á hverju kvöldi kemur nýr aðventu- gluggi í ljós, fjölskyldur heim- sækja heimili glugganna, dást að þeim og gæða sér á svolitlu góð- gæti. Þessi daglega athöfn helst í hendur við ilminn af smjöri, sykri og sítrónum sem fyllir eld- húsið af tilhlökkun fyrir hátíð- inni. Innan um skálar af degi og ilmandi hráefni hóf amma mín að undirbúa sín frægu „Bretzeli”. Þessar örþunnu, stökku vöffl- ur hafa gengið á milli kynslóða lengi. Leyndarmálið er ekki einungis að finna í uppskrift- inni heldur líka í ástríðunni sem býr í þeim sem hnoðar deig- ið. Gamalt vöfflujárnið hitnaði á meðan amma bjó til deigið. Hljóðið þegar deigið fer á heitt járnið eins og tónlist, ýtti undir Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull óskar íbúum á Snæfellsnesi gleðilegra jóla og farældar á komandi ári. Ekkert vandamál er of stórt eða lítið fyrir Hjálparsímann 1717 og netspjall Rauða krossins en árlega berast um 15 þúsund mál inn á borð 1717 sem eru jafn ólík og þau eru mörg. Hjálparsíminn er alltaf opinn, trúnaði og nafnleynd er heitið og hann er ókeypis. The Red Cross Helpline 1717 is a dedicated phone and chat for those who need someone to talk to in condentiality. No matter is too big or small for the helpline. Annually we receive about 15.000 contacts that are as diverse as they are many. Our volunteers are professionally trained, well-experienced and from all walks of life. Żaden problem nie jest zbyt duży, lub zbyt mały dla Telefonu Zaufania 1717 i czatu internetowego Czerwonego Krzyża a co roku odbieramy około 15 tysięcy spraw, tak różnych jak jest ich wiele. Wyszkoleni i doświadczeni wolontariusze w każdym wieku odpowiadają na telefony 1717. Rauðakrossdeild Snæfellsbæjar óskar íbúum Snæfellsbæjar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Um leið viljum við vekja athygli á 1717 - hjálparsíma og netspjall Rauða krossins, þar er hægt að hafa samband vegna alls þess sem þér liggur á hjarta og fá sálrænan stuðning, ráðgjöf, hlustun og upplýsingar um þau úrræði sem í boði eru í íslensku samfélagi. Alexander og bróðir hans fyrir framan jólatré á æskuheimilinu. Amma að útbúa sín frægu bretzeli Alexander Stutz Jól tveggja landa

x

Bæjarblaðið Jökull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.