Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 22.12.2023, Blaðsíða 52

Bæjarblaðið Jökull - 22.12.2023, Blaðsíða 52
Þegar ég er að setja þessi orð niður á blað er margt fólk skelf- ingu lostið vegan óteljandi vanda- mála sem hrjá heiminn. Engum dylst að vandamálin eru alvar- leg. Samt víkja þau fyrir brosi og gáska. Við eldriborgarar úr Snæfellsbæ fórum til Tenerife 7. nóvember sl., höfðum við flest okkar áhyggjur hvort það færi að gjósa áður en við kæmumst út fyrir landstein- ana en sem betur fer gekk það slysalaust, við vorum ansi mörg sem gistum á hóteli í Keflavík og Ásbrú. Við vorum búin að tékka okkur inn en ýmislegt gleymd- ist heima svo sem augndropar sem varð að skutlast með í dauð- ans kasti frá Reykjavík áður en lagt var í ferðina, önnur gleymdi visa kortinu í úlpu í þvottahús- inu heima og húsið harðlæst og engin komst inn, sá sem var með lykilinn var í flugi sem kom frá Englandi. En sem betur fer voru tvær konur ekki farnar af stað suð- ur og tóku kortið með sér, úff sem betur fer. Svo voru indælis hjón sem voru búin að fá sér gjald- eyri fyrir ferðina og ganga frá öllu en gjaldeyririnn gleymdist undir kodda heima, sem betur fer gátu þau reddað sér með því að fara í hraðbanka í Leifstöð. Vorum við mætt 5:30 allir hressir og kátir. Gunnar Svanlaugs var með okk- ur í fluginu, hann var sá sem hélt utan um okkur alla ferðina, hann sá um að við yrðum ekki styrðbus- ar í þessari ferð. Við forum í leik- fimi á hverjum morgni klukkan 9:30 og það voru allir sem mættu með bros á vör, svo var farið í göngu með honum og stoppað niðri á strönd. Þar lét hann okkur sveifla höndunum upp og niður, fólk sem var á göngu tók mynd- ir af okkur og brosti út í annað munnvikið, héldu örugglega að við værum í einhverjum trúarhóp. Á kvöldin fórum við á ball niður við strönd, þar var dansað af hjart- ans list. Alltaf var nóg að gerast hjá okkur. Kynntumst fullt af góðu fólki. Þessi ferð lukkaðist vel í alla staði og við erum svo sannarlega ekki hætt að ferðast. Næsta ferð er til Færeyja 3. júní 2024 og það er orðin mikill spenningur fyrir þeirri ferð!. Að lokum vil ég segja að það er ekkert mál að eldast. Myndirnar tók Pétur Steinar. Svanhildur Sanný Páls. Eldri borgarar úr Snæfellsbæ til Tenerife Séð yfir salinn á á Nostalgíubar á lokakvöldinu. Gönguferðirnar undir stjórn Gunnars voru ómissandi. Það var mikið líf og fjör á ballinu á strandbarnun Vila Flor á kvöldin. Hluti hópsins fyrir framan La Siesta á leið í lokapartíið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.