Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 22.12.2023, Side 41

Bæjarblaðið Jökull - 22.12.2023, Side 41
Ungmennafélagið Víkingur/ Reynir hefur átt mjög gott ár. Við erum alltaf að leita leiða við að fjölga hér greinum sem eru í boði fyrir börnin okkar. Í fyrra byrjuðum við með handbolta sem gengur mjög vel og eru æf- ingar núna tvisvar í viku. Nú í september byrjuðum við aftur með frjálsar íþróttir eftir smá hlé og hefur verið mjög góð aðsókn í það sem er frábært. Við tókum svo stórt skref núna í haust og byrjuðum loksins með rafíþróttir sem er frábær viðbót og fer mjög vel af stað. Fótboltinn- sundið- íþróttaskólinn og boccia er svo auðvitað á sínum stað en íþrótta- skólinn er núna komin inní töflu en er ekki lengur námskeið. Við tókum annað stórt skref núna í haust og stofnuðum 2.fl kvenna sem fer einnig mjög vel af stað og erum við í stjórn afar spennt- ar að fylgjast með þeim vaxa og dafna og draumurinn er að inn- an fárra ára verði hér meistara- flokkur kvenna líka. Við erum ótrúlega ánægð með þann fjölda sem er að æfa hjá okkur og hvetj- um alla til að koma og prufa enda ættu allir að geta fundið sér eitthvað spennandi til að æfa. Við hlökkum til næsta árs með öllum snillingunum okkar. Um leið og við óskum öll- um okkar iðkendum, fjölskyld- um þeirra og bæjarbúum öll- um gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári viljum við þakka fyrir frábæran stuðning og góð sam- skipti á árinu sem er að líða. f.h. stjórnar Umf Víkings/Reynis Tinna Ýr Gunnarsdóttir Annáll UMF Víkings/Reynis Dvalar- og hjúkrunarheimilið Fellaskjól kar öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum góðar stundir og alla velvild á líðandi ári. Jólakveðjur frá heimilis- og star­fólki

x

Bæjarblaðið Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.