Garður - 01.10.1945, Blaðsíða 78
76
GARÐUR
kvæðum gegn 4. Jón Emilsson sat
hjá. Bárður hugði nú að segja af
sér, en sökum ákveðinna Lilmæla
félaga sinna ákvað hann að sitja
enn um stund í formannssætinu.
Að tilhlutan Jóns Emilssonar boð-
aði Stúdentaráðið almennan stúd-
entafund 24. marz. Bar Jón þar
'fram tillögu um, að fundurinn
samþykkti að telja vítaverða
stofnun og starfsemi skemmtifé-
lagsins „Arvaks“. Var sú tillaga
fehd með 51 atkvæði gegn 46. Þá
var borin fram tillaga um, að fund-
urinn skoraði á Jón að fara úr
Stúdentaráði. Sú tillaga var einn-
ig felld með 43 atkv. gegn 43.
STJÓRNARBYLTING.
Á fundi Stúdentaráðs 27. marz
bar Jón fram eftirfarandi tillögu:
„Stúdentaráð lýsir hér með yfir
vantrausti á stjórnarforystu
kommúnista í Stúdentaráði og
samþykkir að víkja formanni sín-
um, stud. polyt. Bárði Daníelssyni,
úr sæti sínu þegar í stað. Jafn-
framt skorar ráðið á gjaldkera
sinn og ritara að segja af sér“.
Tillaga þessi var samþykkt með
5 atkvæðum gegn 3. Fulltniar
„Vöku“ gerðu þá grein fyrir at-
kvæðum sínum, að þeir sam-
þykktu tillöguna, ekki af því, að
'þeir vantreystu Bárði persónulega,
heldur af því, að stefna stefna fé-
lags þeirra væri sú, að vinna eftir
megni gegn áhrifum róttækra í
Háskólanum.
Jóhannes Elíasson, fulltrúi
frjálslyndra, sat hjá og gerði þá
grein fyrir því, að hann teldi þann
grundvöll, sem stjórnarsamvinnan
var byggð á, vera úr sögunni.
Róttækir greiddu gagnatkvæðin.
NÝJA STJÓRNIN.
Var nú kjörin ný stjórn, og áttu
sæti í henni Guðmundur V. Jósefs-
son, Jóhannes Elíasson og Bárður
Daníelsson. Bárður lýsti þegar yf-
ir því, að hann kysi eigi að taka
þátt í stjórninni, og var þá kjör-
inn annar maður í hans stað. Jó-
hannes Elíasson gerði þá grein fyr-
ir afstöðu sinni, að hann hefði
gengið til samvinnu við „Vöku“-
menn til þess að meiri hluti skap-
aðist í ráðinu og það yrði ekki
stjórnlaust, en óheppilegt væri, að
nýjar kosningar færu fram, þar
sem áliðið væri vetrar og próf færu
í hönd. Róttækir vildu aftur á
móti boða til kosninga, en það var
fellt.
Er hér var komið, var lokið
helztu átökunum innan skólans á
því kennsluári. Stjórnmálabarátt-
an hafði verið með harðasta móti,
og má búast við hatrömum átök-
um milli flokkanna í haust, er
menn koma með endurnýjaða
krafta úr sumarleyfunum. Atburð-
irnir hafa orðið til þess, að þrútn-
að hefur um fjandskap milli
„rauðu flokkanna“, svo að sam-
vinna er lítt hugsanleg með þeim
í náinni framtíð, enda mun rosinn