Upp í vindinn - 01.05.1985, Síða 8
endum deildarinnar og jókst þetta hlutfall upp í 40% á árabil-
inu 1978—1982. Síðan fækkar fyrsta árs nemendum I verk-
fræði nokkuð hlutfallslega vegna mikillar innritunar í tölvun-
arfræði. Á skólaárinu 1978—1979 komst hlutfall útskrifaðra
nemenda I verkfræðiskor I fyrsta sinn upp í 40% og hefur
síðan ekki farið undir 30% af útskrifuðum nemendum
deildarinnar. í öllum samanburði af þessu tagi ber að hafa í
huga, að tímalengd náms í verkfræði er minnst 4 ár, meðan
námstími í öðrum skorum deildarinnar er almennt 3 ár.
Fjölcli skraðra I. ars nemenda a kaus'tmisseri
MynJ I
iqio 1475 1480 14 85
Fjölcti úísUrifaðra nemenola a slcólaarinu
Mynrj 2
Þrátt fyrir hlutfallslega mikla ásókn í verkfræðinám, tókst
ekki aðfáfastarstöður i verkfræðiskor, sem henni svaraði,og
skorinni var nauðsynleg til eðlilegrar eflingar námsins. Á
mynd 3 má sjá, hvernig stöðuveitingum innan VRD hefur
verið háttað frá upphafi. í lok árs 1984 voru alls 59 stöðugildi
innan deildarinnar, þar af 17 í verkfræðigreinum. Er þessi
þróun mála ein af mörgum ástæðum þess, að ýmsum verk-
fræðikennurum finnst verkfræðin hafa frá upphafi verið
nokkuð afskipt innan deildarinnar og ekki notið fulls skiln-
ings samstarfsaðilanna.
Allt f ram á haust 1979 starfaði verkfræðiskor sem ein heild
gagnvart deildinni. Átti hún þá aðeins 2 fasta fulltrúa af 16 í
deildarráði. Innbyrðist skiptist skorin þó í þrjár línur, bygg-
ingar-, rafmagns- og vélaverkfræðilínur. Fyrir hverri línu var
„framkvæmdastjóri" er sá um innri málefni hennar og tengsl
við skorarformann. Var þar um ólaunað starf að ræða og því
skipt árlega um stjórnandann.
Mikil óánægja með hlut verkfræðinnar innan VRD leiddi til
þess, að snemmavarfarið að hugaað skiptingu deildarinnar.
Á fundi verkfræðiskorar þann 9. nóv. 1976 var samþykkt sam-
hljóðaað leitatil háskólaráðs og annarra aðila eftir samþykki
til skiptingar deildarinnar. Varð lítið ágengt. Frekari aðgerðir
voru í gangi síðla árs 1978, en þá var samin greinargerð með
tillögu að skiptingu og jafnframt gerð drög að reglugerð. Ár-
My v-id 3
angur af starfi þessu varð sá, að deildin féllst á að skipta verk-
fræðiskor.
Með reglugerð 1979 var verkfræðiskor formlega skipt
þannig að línur urðu að skorum. Við þessa breytingu urðu
áhrif verkfræðinnar innan deildarráðs nokkru meiri en áður,
þar eð nú var um 3 fasta fulltrúa af 14 að ræða.
Þótt staða verkfræðinnar breyttist nokkuð til batnaðar,
voru menn enn ekki fyllilega ánægðir með áhrif hennar á
ýmis mikilvæg málefni. Var þvi aftur hafist handa við tilraunir
til stofnunar verkfræðideildar vorið 1982, fyrir tilstiili þáver-
andi skorarformanna, og ekki linnt fyrr en skipting deildar-
innarvarsamþykkt ádeildarfundi VRD þann 26. ágúst og í há-
skólaráði þann 9. sept. 1982. Síðan er liðinn langur tími, en
verði frumvarp það til háskólalaga er nú liggur fyrir Alþingi
samþykkt, má reikna með að sjálfstæð verkfræðideild taki til
starfa þann 15. sept. 1985.
Fastráðnir kennarar í byggingarverkfræði.
Hið fastráðna kennaralið ber uppi kjarnann af kennslunni
og er ábyrgt fyrir skipulagningu hennar og stjórnun. Frá upp-
hafi nýskipunar námsins hafa eftirfarandi aðilar verið fast-
ráðnir:
Loftur Þorsteinsson prófessor 1961—1974
Ragnar Ingimarsson dósent prófessor 1971—1973 1973—þessa
Júlíus Sólnes prófessor 1973—þessa
Jónas Elíasson prófessor 1973—þessa
Einar B. Pálsson prófessor 1974—1982
Óttar P. Halldórsson prófesor 1975—þessa
Þorsteinn Helgason dósent 1975—þessa
Alls annar hið fasta kennaralið um 30% kennslunnar, sem
að öðru leyti er í höndum aðjúnkta og stundakennara.
Aðjúnktar eru stundakennarar, sem eru ráðnir til tveggja ára
í senn og ræður skorin yfir fjórum slíkum stöðum.
Menntun háskólakennara er ætið talin vera mælikvarði á
gæði kennslunnar, meðan aðrar upplýsingar eru ekki fyrir
hendi. Enn fremurer það talinn mikill kostur, að kennaralið sé
ekki einhæft að því er varðar þá skóla sem æðri prófgráður
eru sóttartil. Prófgráðurofangreinds kennaraliðs eru sem hér
segir:
8