Upp í vindinn - 01.05.1985, Qupperneq 16
MS
ara sviöa yröu boðin fram, yröi að fara eftir mati skorarinnar
og stéttarinnar á framtíðarþörfum þjóðarinnar og getu kenn-
araliðsins til þess að fullnægja einstökum sérþörfum á við-
unandi hátt.
Bæjarverkfræði hefur ekki notið mikillar hylli hérlendis,
enn sem komið er. Vandamál á þessu sviði fara þó sívaxandi
og eru þess eðlis, að full þörf er þar fyrir nokkurn fjölda sér-
fræðingaákomandi árum. Hafaber í huga, að verkfræðinemi,
sem hefur nám sitt í dag, er ekki kominn í fullan þroska í starfi
sínu fyrr en að minnst tiu árum liðnum.
Skipulag og stjórnun framkvæmda er væntanlega það
starfssvið, sem býður upp á mesta framtíðarmöguleika.
Stöðug tæknivæðing allraframkvæmdaleiðirtil mikiltarfjár-
festingar framkvæmdaaðila í ýmiss konar búnaði. Þennan
búnað þarf að reka á sem hagkvæmastan hátt, þannig að
verkkaupi fái f raun að njóta ávaxtanna af fjárfestingum verk-
takans. Það eitt, að vinnuvélakostur landsmanna fer sívax-
andi, krefst þess að hann sé skynsamlega nýttur.
Húsagerð er líklegaþað svið byggingarverkfræðinnar, sem
mest ervanrækt hérlendis. Um þriðjunguraf fjárfestingarfé
þjóðarinnarfertiI húsbygginga, starfsemi sem erenn að veru-
legu leyti á heimilisiðnaðarstigi. Full þörf er á að fé til hús-
bygginga sé nýtt á hagkvæmari hátt en nú er og eru bætt
hönnun, betri efnismeðferð og stóraukin vinnuhagræðing
þar áhrifamest. Ekki er ástæða til að ætla, að unnt verði að
komaásérhæfðu námi áþessu sviði nemaþað tengist aðein-
hverju leyti tæknimenntunarþörfum arkitekta.
Mannvirkjahönnun er eitt af fáum sviðum, sem unnt er að
eflastrax. Full þörf erá að taka upp frekara nám en nú er veitt
á steypu-, stál- og timburhönnunarsviðum og að tengja það
nám betur við ríkjandi hávinda- og jarðskjálftaáhættu á
íslandi.
Orkuöflun Islendinga tengist vatni og vindum að miklu
leyti. Framleiðsla rafmagns úr fallvötnum eða sjávarhreyf-
ingum annars vegar tengist framleiðslu rafmagns og/eða
varma með beislun vindorku og jarðgufu. Allir þessir þættir
eru háðir rennsli eða streymi lofts eða vökva, ofanjarðar eða
neðan, og eru náskyldir. Ekki er vitað, hvort nægur markaður
finnst innanlands fyrir sérþekkingu á þessu sviði, til að rétt-
lætasérstakt kennsluframboð á vegum skorarinnar, en vert er
að bendaánýleg dæmi um útflutning samsvarandi þekkingar
frá Islandi.
Samgöngur þjóðarinnar eiga sér stað á láði, legi og í lofti.
Miklar fjárfestingar liggja í samgöngumannvirkjum af ýmsu
tagi. Oft hefur verið sagt, að besta fjárfesting þjóðarinnar
væri að koma varanlegu slitlagi á alla þjóðvegi landsins.
Fræðasviðið nær hins vegar ekki eingöngu til hönnunar og
byggingar samgöngumannvirkja, heldur ekki síst til skipu-
lagningar og stjórnunar samgöngukerfa.
Rennslisfræði er það fræðasvið byggingarverkfræðinnar
sem fjallar um streymi í opnum eða lokuðum rásum. Stjórnun
vatnsstreymis ofanjarðar eða neðan, hvort sem er með tilliti
til virkjana eða flóða, öflunar og flutnings heits eða kalds
neysluvatns, jafnt sem flutnings frárennslisvatns, er veiga-
mikill þáttur í rekstri þjóðfélagsins.
Lokaverkefni yrði hæfilega langt til þess að nemandanum
væri boðið upp á gagnlega sérhæfingu, en jafnframt nægi-
lega viðamikið til þess að verða framlag til þekkingarsköp-
unar innan byggingarverkfræði. Fimmtán vikna lokaverkefni
mundi hafa þau áhrif, að stórefla rannsóknir innan skorar-
innar.
Til þess að unnt sé að bjóða fram va! milli: námskeiða
innan byggingarverkfræðiskorar, nýta kennsluframboð
annarra verkfræðiskora eða leyfa þátttöku í námskeiðum
16