Upp í vindinn - 01.05.1985, Side 34

Upp í vindinn - 01.05.1985, Side 34
Hugvísindahús Háskóla íslands Stutt lýsing á innra skipulagi og gerð eftir dr. Magga Jónsson, arkitekt. Maggi Jónsson. Húsasmiður 1957, tæknifræðingur Stokk- hólmi 1960. B.Arch. og M.Arch. frá Michigan-háskóla, Ann Arbor U.S.A. Doktorspróf á sviði forskriftargerðar og hönn- unar skóla- og fræðslustofnana, frá sama skóla 1974. Störf á arkitektastofum, við byggingareftirlit og hönnun 1960-69. Starfar frá 1974 sem arkitekt í Reykjavík og er ráðgjafi Há- skóla íslands í byggingar- og skipulagsmálum. Algengt er í háskólanum að byggingar séu gerðar til sér- hæfðra nota og nýttar sameiginlega af mörgum greinum. Æskilegt er þó að haldasamnotkun innan hæfilegramarkatil að auka ekki að óþörfu umferð milli bygginga innan háskóla- svæða. Um Hugvísindahúsið má segja að það sé háskólahús frekaralmenns eðlis til notafyrir hugvísindagreinar. Forskrift að húsinu gerir ráð fyrir tiltölulega háu hlutfalli vinnu- herbergja fyrir kennara og sérfræðinga. Auk þessa einkenna forskriftina allmörg misstór umræðu- og hópvinnuherbergi auk stærri kennslusala. Þá er þar gert ráð fyrir tveim tungu- málastofum, bókasafni og opnu rannsóknarrými. í kjallara siðari áfangaersvo ráðgerð aðstaðatil æfinaráupptöku fyrir sjónvarp. Húsið er byggt í tveimur áföngum, en í síðari áfanga verða einkum vinnuherbergi auk nefndrar sjónvarpsaðstöðu. Stærð kennaraherbergja var ákveðin 18 m2. Með tilliti til notagildis, þ.m.t. kennslu fámennra hópa var valið að gera herbergin í hlutföllunum 385 x 465 cm (17,9 m2). Þetta kallaði á tiltölulega langa útveggi. Á sama hátt var valið að gera stærri herbergi (kennslustofur) í þeim hlutföllum sem best hentaði hverju herbergi fremur en velja ákveðna húsbreidd (eða húsform) og aðlaga herbergi að henni. Segja má að lögun hússins ráðist af hvernig til tókst að raða saman fyrirfram ákveðnum fjölda eininga af þeirri lögun sem talin var henta hverri einingu best fremur en að ganga útfrá reglubundnu eða fyrirfram ákveðnu formi sem gæfi málamiðlun milli minni og stærri herbergja. Útkoman varð svo „með átján hornum allt um kring“ eins og andríkur Árna- garðsbúi kvað á sínum tíma. Grunnmyndir 1. hæð. 2.hæð. 3. hæð. 34

x

Upp í vindinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.