Upp í vindinn - 01.05.1985, Qupperneq 44
Einingahús á íslandi
Eftir Björn Marteinsson og Jón Sigurjónsson verkfræðinga
hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins.
Jón Sigurjónsson, f. 3. maí
1945 í Hveragerði. Stúdent
M.R. 1965, f.hl. próf i verkfræði
frá H.í. 1968, próf í byggingar-
verkfræði frá KTH í Stokk-
hólmi 1971. Verkfr. hjá Þóris-
ósi sf. 1971 og i Rannsókna-
stofnun byggingariðnaðarins
frá 1971.
Björn Marteinsson, f. 9. jan.
1950 í Rvik. Stúdent M.L. 1970,
próf í byggingaverkfræði frá
H.í. 1974, próf í arkitektúr frá
LTH í Lundi 1979. Verkfr. hjá
Rannsóknastofnun bygging-
ariðnaðarins frá 1979.
1. Hugtakið einingahús
Til einingahúsa eru venjulega talin hús, sem að meira eða
minna leyti eru gerð í verksmiðjum. Verksmiðjuvinnan er
mjög misjafnlega mikil eftir verksmiðjum og húsgerðum.
Algengastar eru tvær gerðir eininga, þ.e. heilir veggir og
minni einingar (1,20m). Einnig eru veggeiningar misjafnlega
mikið frágengnarallt frá því að veraaðeins veðrunarkápa upp
i að vera fulleinangraður veggur með fullfrágengnu yfirborði.
Til einingahúsa teljast einnig hús þar sem efnun fer fram í
verksmiðju en allarsamsetningareru gerðarábyggingarstað
(„precut systern").
Einingahús geta verið úr steypu eða timbri og eiga þá fátt
sameiginlegt nemaaðferðina. Loks mánefnaað afhendingar-
stig einingahúsa er æði mismunandi og þess vegna getur
gæðamat húsgerða verið hæpið jafnvel frá sama framleið-
anda, einstök hús sömu gerðar eru oft ekki sambærileg hvað
frágang snertir.
2. Einingahús á íslandi — sögulegt ágrip.
í fornum sögum segir að landnámsmenn hafi flutt hús sin
með sér til íslands. Ef trúa skal þeim sögum eru það fyrstu
íslensku einingahúsin. Ef undan erskilinn innflutningurátil-
höggnu kirkjutimbri segir síðan fátt af einingahúsum fram
undir1900. Um og eftiraldamótin bárust hingað nokkurnorsk
timbureiningahús í svokölluðum sveitserstíl og nutu þau
mikillavinsældaþáum stundir. Flest voru þettastokkhús vel
viðuð, reisuleg og mikið skreytt.
Eftir að steypuöldin var að fullu gengin í garð upp úr 1920
fór lengi vel lítið fyrir einingahúsum.
í vesturbænum í Reykjavik og í Sunda- og Vogahverfinu má
þó finna nokkur norsk og sænsk timbureiningahús, sem flutt
voru til landsins á eftirstiðsárunum.
Árin 1968—1969 voru flutt inn nokkur einlyft dönsk timbur-
einingahúsog reist í Breiðholti í Reykjavík. Þessi hús voru öll
frekar einföld að gerð.
Stóra einingahúsaskriðan kom síðan eftir eldgosið í
Heimaey 1973 til að leysa þann húsnæðisvanda sem þá skap-
aðist á einni nóttu.
Siðan hafa sprottið upp um 20 íslenskar einingahúsaverk-
smiðjureinsog nánarverðurvikið að. Upphaf núverandi fram-
leiðslu einingahúsa nær þó aftur til 1946 eða þar um bil.
Frumherja á þessu sviði má telja Sigurlinna Pétursson sem
framleiddi hús úr steyptum einingum og Snorra Halldórsson
í Húsasmiðjunni sem byggði einingahús úr timbri.
3. Framboð íslenskra einingahúsa.
3.1. Frá íslenskum framleiðendum
Timbureiningahús
Framleiðslahefurvaxið árfráári, sjátöflu 1 og varum
200 hús árið 1984. Afkastageta verksmiðjanna er mis-
munandi en ef framleiðslugeta Máts h.f., er ekki talin
með, sem ekki er óeðlilegt vegna lítillar framleiðslu, er
nýting verksmiðjanna skv. töflu 1 um 75%
Auk íbúðarhúsa framleiða verksmiðjurnar einnig
sumarhús og bílskúra sem ekki eru talin með i töflu 1.
Timbureiningahús frá Mát hf.
44