Upp í vindinn - 01.05.1985, Blaðsíða 64
Orkunotkun
við hitun húsnæðis
Eftir Jón vilhjálmsson, Orkustofnun
Jón Vilhjálmsson, stúdent M J. 1975.
Próf í rafmagnsverkfræði frá H.í.
1979. MS-próf frá Georgia Institute
of Technology, Atlanta, Usa 1980.
Starfar nú hjá Orkustofnun.
Inngangur
í febrúar 1984 skipaði Iðnaðarráðherra verkefnisstjórn fyrir
sérstöku orkusparnaðarátaki og í framhaldi af því var Orku-
stofnun falið að safna upplýsingum um orkunotkun til hit-
unar íbúðarhúsnæðis. Til að hægt sé að bera saman orku-
notkun í húsum til hitunar þarf eðlilega að taka tillit til
stærðar þeirra. Því þarf ekki einungis að safna upþlýsingum
um orkunotkun í einstökum húsum frá orkufyrirtækjum,
heldureinnigupplýsingumum stærðir húsa og eru þær upp-
lýsingar fengnar frá Fasteignamati ríkisins.
Verkefnisstjórnin ákvað að byrjaáað skoðarafhitað íbúðar-
húsnæði í þéttbýli utan hitaveitusvæða. Þrjár rafveitursjáum
drefingu raforku á þeim svæðum, en þær eru Orkubú Vest-
fjarða, Rafmagnsveitur ríkisins og Rafveita Reyðarfjarðar.
Upplýsingar um orkunotkun hafa ekki borist frá Rafveitu
Reyðarfjarðar svo ekki var hægt að taka með notendur þeirrar
veitu í þennan áfanga. Bæði hjá Rafmagnsveitum ríkisins og
Orkubúi Vestfjarða var að auki tekið með eitt sveitarfélag þar
sem hitaveita er rekin en það eru Svalbarðsstrandarhreppur (
Eyjafirði og Suðureyri. Einnig hefur verið unnið úr gögnum frá
Rafveitu Vestmannaeyja þó að þar sé hitaveita og verða
megin niðurstöður þeirrar athugunar nefndar hér.
Orkubú Vestfjarða hafðí áður en þetta orkusparnaðarátak
fór á stað hafið könnun á raforkunotkun til húshitunar á sínu
svæði. Frá Orkubúinu og Rafveitu Vestmannaeyja fengust
upplýsingar um raforkunotkun einstakranotendaásamt rúm-
máli húsasamkvæmt fasteignamati og af þeim sökum þurfti
ekki að vinna saman upplýsingar úr þessum tveimur skrám.
Frá Rafmagnsveitum rikisins fengust upplýsingar um orku-
notkun og frá Fasteignamati ríkisins skrár um rúmmál hús-
næðis á viðeigandi svæðum. Upp úr þessum skrám voru
unnar upplýsingar um byggingarár, rúmmál, orkunotkun og
þarsem það ávið um notkunarflokk. Þessarupplýsingarvoru
síðan færðar inn á tölvu og hún notuð við alla úrvinnslu, eri
úr upprunalegu skránum var unnið á handvirkan hátt.
Úr þessum skrám eru fundin hús með mikla notkun, sem
siðan eru skoðuð á vegum Orkusparnaðarátaksins og hús-
eigendum leiðbeint um aðgerðir til orkusparnaðar og lána-
möguleika frá Húsnæðismálastofnun. Fyrst um sinn var
ákveðið að miða við hús með meiri notkun en 38.000 kWh og
120 kWh/m3 og er þá átt við ársnotkun.
Á næstunni verður haldið áfram að vinna úr gögnum um
orkunotkun, en sú úrvinnsla verður að hluta til erfiðari en sú
sveitum ekki greind fráannarri notkun og er því erfitt að greina
sveitum ekki greind frá annari notkun og er því srfitt að greina
frá hús með mikla notkun til hitunar. Þegar kemur að hita-
veitum verður einnig erfitt að eiga við húsnæði þar sem selt
er eftir hemli.
Gögn um orkunotkun til hitunar eru fremur takmörkuð í
dag, en með þessari athugun verður væntanlega bætt að
nokkru úr því. Gögn sem þessi nýtast ekki einungis athug-
unum tengdum orkusparnaði heldur ekki síður við gerð
ýmissa áætlana og athugana á sviði orkumála, en skortur á
gögnum hefur einmitt háð slíkri starfsemi.
Gögn
Upplýsingar um raforkunotkun einstakra notendafráOrku-
búi Vestfjarða og Rafmagnsveitum ríkisins eru ekki unnar á
nákvæmlegasama hátt og er því ekki fullkomið samræmi þar
á milli. Hjá RARÍK er sem næst um að ræða notkun siðasta
árs, en hjáOVertekið lengratímabil og notkun færð línulega
yfir á ársgrunn. Þar sem notkun er mismunandi eftir árstíma
getur aðferð OV valdið nokkurri skekkju i áætlaðri ársnotkun
sérstaklegaef notkun hefurverið mæld í stuttan tíma. Einnig
getur þessi aðferð skyggt á breytingar sem orðið hafa hjá
notanda á mælitímabilinu en ekki bara siðasta árið.
Eins og áður er komið fram er rúmmál húsnæðis fengið úr
fasteignamati, en hitað rúmmál er yfirleitt ekki það sama og
fasteignamatsrúmál. í flestum tilvikum er hitað rúmmál
minna, en þó kemur fyrir að það er meira en rúmmál sam-
kvæmt fasteignamati (sjá skýrslu hóps um orkusparnað í
hitun húsa). Þettaatriöi veldur skekkju þegar verið erað meta
hitunarþörf á rúmmetra, sem skiptir að vísu ekki máli ef
skekkjan væri svipuð i öllum tilvikum. Einnig hafakomið í Ijós
fáeinarskekkjurí fasteignamati og ekki ervíst að það séjafn-
gott eða fullkomlega sambærilegt milli sveitarfélaga. Þessir
hlutir valda því að einstaka tölur eru ekki mjög nákvæmar, en
þrátt fyrir það verður að teljaað þessi gögn nýtist vel til þeirra
hluta sem hér um ræðir.
Þar sem notendur á raforku til hitunar eru fleiri en einn i
húsi er notkun þeirra lögð saman og miðað viö fasteignamat
alls hússins. Litið er því á hvert hús fyrir sig, en ekki á hvern
notanda. Fjöldi notendaerþaraf leiðandi meiri en fjöldi húsa,
en allar niðurstöður hér að aftan miða við hús, en ekki ein-
staka notendur.
64