Upp í vindinn - 01.05.1985, Page 66
A gjaldskárlið C var alls litið á 3.787 hús, þar af 2.647 hjá
Rafmagnsveitum ríkisins, 946 hjá Orkubúi Vestfjarða og 194
hjá Rafveitu Vestmannaeyja. Af þessum húsum fundust ekki
145 í fasteignamati og því ekki fyrir hendi tölur um rúmmál
þeirra og ekki hægt að taka þau með við nánari úrvinnslu úr
gögnum. Auk þess kom fyrir að byggingarár húsa vantaði og
þar sem flokkað er hér að aftan eftir byggingarári varð því að
sleppaþeim húsum. Rúmmál húsanna3.642 er um 1,7 milljón
rúmmetrar (bílskúrum og geymslum, sem greind eru sér í
fasteignamati, er sleppt), sem er um 6% af rúmmáli ibúðar-
húsa hér á landi. Orkunotkun til hitunar í húsunum 3.787 er
um 144 GWh á ári og meðalnotkun er um 83 kWh/m3 á ári hjá
Rafmagnsveitum ríkisinsogum82 kWh/m3 hjáOrkubúi Vest-
fjarða.
I nokkrum þeirra sveitarfélaga sem hér um ræðir er eitt-
hvað um að raforka til hitunar íbúðarhúsnæðis sé seld sam-
kvæmt gjaldskrárlið A5, og er þetta sérstaklega áberandi í
Búðardal þarsem orkatil hitunar um 45% íbúðarhúsnæðis er
seld samkvæmt þessum gjaldskrárlið. Hjá Rafmagnsveitum
ríkisins er um að ræða 6 sveitarfélög þar sem þetta er í ein-
hverjum mæli eða alls 125 hús og þar af er rúmmál ekki þekkt
fyrir 4 hús. Orkunotkun til hitunar þessara húsa var um 4,6
GWh á árinu 1983 og rúmmál húsanna 121 er um 54 þúsund
rúmmetrar. Hjá Orkubúi Vestfjarða hefur ekki verið litið á
marktaxtann, en svo kallast þessi gjaldskrárliður.
Orkunotkun við hitun íbúðarhúsnæðis
Litið var á 28 sveitarfélög á veitusvæði Rafmagnsveitna
ríkisins og i töflu 1 eru þau talin upp. Þar er einnig sýnd
meðalnotkun til hitunar húsnæðis á C gjaldskrárlið, bæði
miðað við rúmmál án bílskúra og geymsla, sem greint er sér
í faSteignamati (I) og einnig miðað við allt rúmmál (II), en sá
gjaldskrárliður er fyrir notkun til hitunar íbúðarhúsnæðis.
Athuga ber að hluti af bílskúrum og geymslum er greint meó
húsum og því ekki hægt að greina slíkt í sundur. Á töflunni
kemur einnig fram fjöldi og hlutfall húsa í þéttbýli á gjald-
skrárlið C. í hlutfallstölunni er miðað við rúmmál húsnæðis.
Sveitarfélag F jöldi húsa Meðalnotkun+ Hlutfall húsrýmis I II á C gjaldskrárlið kWh/m3kWh/m3 %
3706 Neshreppur 95 105 94 65
3707 Ólafsvík 180 95 89 70
3709 Eyrarsveit 117 81 72 65
3711 Stykkishólmur 219 84 75 60
3804 Laxárdalshreppur 24 91 80 25
5609 Höföahreppur 121 84 74 75
5711 Hofsóshreppur 68 103 89 70
6505 Arskógshreppur ' 46 • * 79 68 75
6506 Arnarneshreppur 18 71 66 70
6601 Svalbarösstrandarh. 16 66 53 35
6602 Grýtubakkahreppur 59 74 .71 70
4704 Pre^sthólahreppur 54 . 79 . 72 . ^o*.
67p5^Rau%farhö fn • 98 í iod*. ■ yw •• 80
6707 ÞórsHafnarhreppur 112 87 75 95
7000 Seyöisfjörður 62 57 55 25
7100 NeskaupsLaður 303 72 68 80.
7200 Eskj:fjöcður 174 81 77 70
7501 SkebijyastaöahTeppur 23 - .■■101: . 93 7$
7502 Vopnafjöpö.ur- 150 • .91 85 75
7509 Borgarfjarðarhr. 41 72 68 80
7611 Búðahreppur 162 85 81 90
7612 Stöðvarhreppur 76 88 84 95
7613 Breiðdalshreppur 56 94 91 80
7615 Búlandshreppur 85 ' ■ 97 „ 9.1- 85
7702 Nesjahreppur 30 % 78’ 70 65-
7703 Hafnarhreppur 159 75 69 45
8502 Kirkjubæjarhreppur 28 81 74 60
8506 Hvammshreppur 71 79 71 60
Samtals 2.647 83 77
TAFLA 1
Raforkunotkun á gjaldskrárlið C hjá Rafmagnsveitum
ríkisins (hitun íbúðarhúsnæðis).
+ í I er rúmmáli bílskúra og geymsla, sem talið er sér í
fasteignamati, sleppt, en tekið með í II.
I töflu 1 er hlutfall rafhitunar I nokkrum sveitarfélögum
óeðlilega lágt. Á Seyðisfirði og í Hafnarhreppi er orsökin sú
að þar eru hitaveitur sem nýta raforku eða olíu, en á Sval-
barðseyri er hitaveita sem nýtir jarðvarma. í Laxárdalshreppi
(Búðardal)ermikið um að hús í þéttbýli séu ágjaldskrárlið A5,
sem er markmæling ætluð fyrir notkun við búrekstur. Fyrir
sveitarfélögin I töflu 1 var því einnig athugað hve mikið af
íbúðarhúsnæði í þéttbýli væri á þessum gjaldskrárlið. Niður-
staða þeirrar athugunarer sýnd í töflu 2 fyrir þá staði þar sem
þetta var að einhverju marki. Þessi notkun er bæði til
heimilisþarfa og til hitunar húsnæðis (notkunarflokkur 1920)
og eru tölur í töflu 2 því ekki sambærilegar við töflu 1. í einu
húsi er að vísu einungis um hitun að ræða og er það greint
sér í töflunni (notkunarflokkur 1930).
Sveitarfélag F jöldi húsa Meðalnotkun+ I II kWh/m3 kWh/m3 Hlutfall húsrýmis á A gjaldSrkrárlið
3711 Stykkishólmur 22 84 72 8'
3804 Laxárdalshreppur 39 108 96 45
6705 Raufarhöfn 4 124 117 3
7000 Seyðisfjörður 16 67 60 7
7100 Neskaupstaður 29 48 42 7
7200 Eskifjörður 14 83 65 7
Eskifjörður (1930) 1 91 91
Samtals 125 83 72
TAFLA 2.
Raforkunotkun á gjaldskrárlið A5 hjá Rafmagnsveitum ríkis-
ins. Húshitun og almenn heimilisnotkun, notkunarflokkar
1920 og 1930.
Eins og áður er komið fram var gerð samskonar athugun á
gjaldskrárlið C hjáOrkubúi Vestfjarðaog er niðurstaðan sýnd
i töflu 3. Hér er um að ræða notkun til hitunar íbúðarhús-
næðis í þéttbýli á Vestfjörðum og er fjöldi sveitarfélaga 10.
Varðandi skýringar á töflunni vísast til upphafs þessa kafla.
Á Isafirði, Patreksfirði og í Bolungarvík eru hitaveitur sem
ýmist nýta raforku eða olíu og á Suðureyri er hitaveita sem
nýtir jarðvarma, og skýrir það lágt hlutfall íbúðarhúsnæðis
sem hitað er með raforku á þessum stöðum.
Ekki var litið á notkun á marktaxta (A5) hjáOrkubúinu og er
því ekki vitað hvort eitthvað er um að keypt sé raforka til
hitunaríbúðarhúsnæðiseftirþeim gjaldskrárlið. Hlutfall hús-
rýmis í töflu 3 fyrir þástaði þarsem hitaveitureru ekki í rekstri
er frá 60% upp í 85% þannig að ekki getur verið mikið um að
orka til hitunar íbúðarhúsnæðis á þessum stöðum sé keypt
eftir þessum gjaldskrárlið.
í töflu 4 er sýnd niðurstaða um rafhitun íbúðarhúsnæðis í
Vestmannaeyjum. Einungis fékkst ein tala varðandi rúmmál
Sveitarfélag Fjöldi húsa Meðalnotkun+ I II kWh/m3 kWh/m3 Hlutfall húsrýmis á C gjaldskrárlið
4000 ísafjörður 158 72 65 25
Hní fsdsalur 38 81 77
4100 Bolunqarvík 172 76 73 65
4603 Patreksfjörður 99 74 69 45
4604 Tálknafjörður 65 89 84 80
4606 Bíldudalur 94 95 91 85
4702 Þingeyri 109 96 93 85
4705 Flateyri 95 81 81 70
4706 Suðureyri 7 86 83 6
4803 Súðavík 40 93 87 60
4904 Hólmavík 69 80 79 65
Samtals 946 82 77
TAFLA 3
Raforkunotkun á gjaidskrárlið C hjá Orkubúi Vestfjarða
(hitun íbúðarhúsnæðis).
66