Upp í vindinn - 01.05.1999, Síða 12

Upp í vindinn - 01.05.1999, Síða 12
... UPP I VINDINN mjög vatnsþétt slitlög sem einnig þola vel frost-þíðu áraun. Erlendis er yfirleitt miðað við að bindi- efnishlutfallið sé heldur lægra og að hol- rýmdin á yfirlögn með þétta kornakúrfu sé um 4%. Ef þetta er haft í huga þegar lit- ið er á töflu 2 má draga þá ályktun að ís- lenskt malbik ætti að hafa tiltölulega háa mótstöðu gegn þreytubroti en vera við- kvæmt fyrir skriði í samanburði við erlent malbik. Próf á malbiki Prófunaraðferðum á malbiki má skipta í þrjá flokka: Reynslupróf, hermipróf og grunnpróf. Marshallpróf er reynslupróf sem mikið hefur verið notað við val á samsetningu bundinna slitlaga. Prófið er stöðufræði- legt álagspróf. Líkir það illa eftir þeirri áraun er slitlag verður fyrir vegna um- ferðarálags. Pví veitir Marshallpróf tak- markaðar upplýsingar um stífni, hjólfara- myndun eða þreytustyrk slitlaga. Hermipróf eru fyrst og fremst hvers konar hjólapróf þar sem hjólbarði er lát- inn aka fram og aftur yfir slitlag. Prófin líkja vel eftir raunálagi í slitlagi en eru flókin og viðamikil og henta því illa sem fjöldapróf á tilraunastofu. Grunnpróf er fjölskylda af prófunarað- ferðum þar sem á tilraunastofu, með sveifluálagsbúnaði, er reynt að líkja sem best eftir raunverulegu álagi í vegi. Til slíkra prófana teljast m.a. þrýstitogpróf og einásaskriðpróf [6]. Stífni og þreytustyrk- ur hefur verið kannaður við VHÍ með þrýstitogprófsaðferðinni eða kleyfnitog- prófi (e. indirect tension test) [2, 5, 8]. Við ákvörðun á skriði hefur hins vegar verið beitt einásaskriðprófi (e. uniaxial creep test). í báðum aðferðunum er notað púlsaálag og teljast því prófanirnar sveifluálagsprófanir. Prófunarbúnabur Háskóla íslands Verkfræðideild og verkfræðistofnun HÍ eignuðust fjölnota vökvaknúinn álags- búnað árið 1994. Búnaðurinn er af gerð- inni Instron 8500 og samanstendur hann af háþrýstiolíudælu, tölvustýrðum stjórn- unar- og mælibúnaði, álagsramma og tjakki, sjá mynd 2. Hægt er að fram- kvæma með búnaðinum bæði stöðuálags- próf (e. static test) sem og sveifluálags- próf (e. dynamic test). Búnaðurinn er notaður til kennslu svo og til rannsókna. Sem dæmi um próf sem hægt er að fram- kvæma á malbikskjörnum eru þrýstitog- próf og einásaskriðpróf [2, 5, 8]. Mynd 2. Prófunarbúnaður Hl. Þar sem bikbundin slitlög eru mjög hitastigsháð hefur verið smíðaður sér- stakur hitaskápur sem prófin fara fram í. Skápurinn getur auðveldlega haldið föstu meðalhitastigi innan við ±1 °C á bilinu 3-50 °C [3]. Niðurstöbur prófana í prófununum sem hér er gerð grein fyrir hafa verið notaðir prófkjarnar út- búnir á tilraunastofu samkvæmt Mars- hallaðferð. Kjarnarnir eru sívalingslaga og hafa þvermálið 102 mm. Hæð þeirra er breytileg en yfirleitt um 60 mm. Prófaðar hafa verið fimm mismunandi malbiksteg- undir, þrjár þeirra eru yfirlag 12 og tvær yfirlag 16. Mismunandi var hvort þær innihéldu mjúkt eða hart bik (stungudýpt 180 eða 85). Stífni í stífniprófi er sett á hlið prófkjarnans sveifluálag eftir strimilslaga álagsfleti, í gegnum lóðrétt þversnið í miðju kjarn- ans. Þannig myndast tiltölulega einsleitt lárétt togspennusvið hornrétt á stefnu álags, lóðrétt í gegnum kjarnann. Það veldur láréttum færslum yfir miðju kjarn- ans sem er mæld á meðan á prófun stend- ur. Þannig próf kallast þrýstitogpróf og má sjá uppsetningu þess á mynd 3. Mynd 3. Uppsetning þrýstitogprófs. 12 Mynd 4. Dæmigerbur mældur álags- og svörunarferill sem fall af tíma fyrir tíu álagspúlsa í stífniprófi. Á mynd 4 má sjá dæmigerðar niður- stöður á prófunum á prófkjarna í stífni- prófi. Út frá hlutfalli álags og formbreytinga má síðan ákvarða stífnistuðulinn. Stífni- stuðull Mr er skilgreindur samkvæmt lík- ingunni: Mr = 0,27 + v AU P t þar sem AU er mæld færsla þvert yfir lá- rétta miðlínu kjarnans, V er Poissons hlut- fall, P er lóðrétt álag og t er þykkt kjarna. Mynd 5. Mældur álagspúls og fjórir svörunarferlar sem fall af tíma fyrir mismunandi hitastig í stífniprófi. Á mynd 5 má síðan sjá einn mældan álagspúls og færsluferla sama kjarna við fjögur mismunandi hitastig. Þar sést vel hversu hitastigsháðir efniseiginleikar kjarnans eru. Tafla 3. Stífnistull, Mr, sem fall af hitastigi, T [°C], fyrir fimm tegundir malbiksblandna. Mr Malbikstegund [MPa] Yfirlag 12 A1-B85 10,504-e' °'1049'7 A2-B85 9,760-e' °.°817r A2-B180 6,466-e' 0-0917'T Yfirlag 16 B1-B85 9 345-e" 0/0953-r B4-B180 8,354-e' °’0S96T í töflu 3 má síðan sjá nálgunarlíkingar á stífnistuðli sem fall af hitastigi fyrir fimm mismunandi tegundir malbiksblandna. Þreytupróf í þreytuprófi er viðnám gegn sprungu- myndun kannað. Prófið er sambærilegt

x

Upp í vindinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.