Upp í vindinn - 01.05.1999, Blaðsíða 42

Upp í vindinn - 01.05.1999, Blaðsíða 42
... UPP I VINDINN Mest er þó um vert að kanna hver áhrifin yrðu á byggðina og umferðina í borginni því þar kæmi fram hvort um væri að ræða raunverulega fýsilegan kost að ræða. Auðvitað verður að ganga úr skugga um að áðurnefndir öryggisþættir séu tryggðir og að álag á umhverfið sé ásættanlegt. Pví þegar öllu er á botninn hvolft þá munu peningar ráða hér líklega lang mestu og flugvöll- urinn verður vart fluttur nema sýnt verði fram á að það sé fjár- hagslega hagkvæmt og að sá sem kostar gerð nýs flugvallar fá það endurgreitt með einum eða öðrum hætti. Framkvæmdaáætlun Síðasta skrefið í skipulagsferlinu er framkvæmdaáætlun og er hún undanfari framkvæmdanna sjálfra. Það sem hér gerist er að allar aðstæður í umhverfinu eru kannaðar með það fyrir augum að sem hagkvæmust framkvæmd verði. Eru þannig m.a. kann- aðar jarðtæknilegar aðstæður, aðgengi að byggingarefni og - landi, tengingar við samgöngukerfi á landi og tengingar við tæknileg kerfi og aðveitur. Útkoma þessara kannana allra er hin arkitektóníska og verkfræðilega hönnun allra mannvirkja auk endurbóta á þeim sem fyrir eru. Pegar hönnunin liggur fyrir þá þarf að fara fram mat á umhverfisáhrifum framkvæmdanna, bæði á tíma framkvæmdanna og rekstrar, þegar framkvæmdum er lokið. Pá, að afloknum endurbótum sem mat á umhverfisá- hrifum hefur leitt af sér, er væntanlega komið að endanlegu kostnaðarmati framkvæmdanna. Og síðast er tímaáætlun fram- kvæmdanna ákveðin og er hún að sjálfsögðu nátengd því fjár- streymi, sem fjárfestar leggja til - í tilfelli Reykjavíkurflugvallar er það ríkisvaldið. Lokaorb Ekki verður séð á þeim gögnum, sem fyrir liggja um fram- kvæmdir við Reykjavíkurflugvöll, að þar sé neitt annað en rétt aðferð við undirbúning framkvæmda af þessari gerð og í sam- ræmi við viðurkenndan framgangsmáta. Pá verður ekki séð ann- að en að vilji hafi verið fyrir því alla tíð að Reykjavíkurflugvöll- ur verði í Vatnsmýrinni og að borgaryfirvöld hafi t.d. ekki sýnt því fyrr en á síðustu misserum að áhugi væri á nýjum viðhorf- um í landnotkun og -nýtingu á Seltjarnarnesinu, með t.d. stór- felldum fyllingum á grynningum meðfram ströndinni. Pað má vel vera að hér sé um gamalkunnugt tómlæti íslendinga að fylgja ekki eftir athygliverðum hugmyndum, sem þó komu fram fyrir fjölmörgum árum, og hreyfa ekki við málinu fyrr en nánast búið er að ákveða framkvæmdir. Hefðu yfirvöld haft andvara á sér væri e.t.v. búið að kanna þá möguleika í kjölinn hvort vit væri í því að byggja flugvöll á uppfyllingu í Skerjafirði, en að líkindum þarf að bíða all lengi eftir að málið verði á dagskrá á ný. Pegar sú stund rennur upp verður vonandi tilbúið heildarsamgöngu- skipulag fyrir landið allt og hægt að byggja ákvarðanir á traust- um upplýsingum og með góðum fyrirvara. Sjómannaalmanak Skerplu 1999 38?* „VtíOKM Einstök handbók um sjávarútveg og íslensk skip. Yfir 800 skipamyndir og tæknilýsingar. Pöntunarsíminn er 568-1225 Skerpla • Suðurlandsbraut 10 • 108 Reykjavík Sími 568-1225 Fax 568-1224 • Net skerpla@itn.is SÆVARHÖFðl 10 112 REYKJAVÍK SÍMI 577 2000 TEHGIehf. SMIÐJUVEGUR 11 -202 KÓPAVOGUR SÍMI 564 1088 - FAX 564 1089 Rannsóknastofnun byggingariönaöarins Keldnaholt »112 Reykjavík Sími 567 6000 • Fax 567 8811 SNERTH Hlíðasmári 14 • 200 Kópavogur • Sími: 554 0570 • Fax: 554 0571 i I' ■ H a 42
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Upp í vindinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.