Upp í vindinn - 01.05.1999, Page 24
... UPP I VINDINN
KYNNINCARGREIN
Nýjar víddir í kortagerb
Fyrirtækið Loftmyndir ehf. var stofnað ina, Landsvirkjun og ýmis stærri sveitar-
í maí 1996 í þeim tilgangi að beita nýjustu félög. Einnig hafa aðilar eins og RARIK og
tækni við töku loftmynda og úrvinnslu Landsíminn gert fasta samninga um afnot
þeirra. alls þess sem Loftmyndir eiga af mynd-
Myndkort úr gagnabanka Loftmynda.
Stofnað var til útboðs vítt og breitt um
Evrópu á bæði myndatökum, GPS skipu-
lagningu flugs og filmuframköllun vorið
1996 og barst hagstæðasta tilboðið frá
KampsaxGeoplan í Danmörku. Samið var
við sömu aðila um flug sumrin 1997 og
1998. Teknar hafa verið á milli 4-5 þús-
und myndir á þessum 3 árum og hefur
verið ákveðið að taka hér eftir einungis
litmyndir eða innrauðar myndir eins og
gert var síðastliðið sumar.
Eigendur Loftmynda ehf. eru Hönnun
og ráðgjöf ehf. á Reyðarfirði og ísgraf ehf.
í Reykjavík. Höfuðmarkmið fyrirtækisins
er að veita ódýra en vandaða þjónustu á
sviði GPS landmælinga, töku loftmynda
og úrvinnslu þeirra á stafrænu formi. Auk
þess hefur fyrirtækið það að markmiði að
koma upp stafrænum gagnagrunni mynd-
korta og landlíkans af öllum hinum
byggða hluta íslands á næstu 5-8 árum.
Gagnagrunnur þessi verður öllum opinn
og afnot gagna seld á eins vægu verði og
kostur er. Loftmyndir ehf. hafa einnig
starfað sem verktaki við loftmyndatökur
og kortagerð fyrir aðila eins og Vegagerð-
kortum og landlíkunum. Á sama hátt hafa
mörg sveitarfélög keypt aðgang að gögn-
um um allt sitt land.
Par sem nú liggur fyrir sú stefnumörk-
un Umhverfisráðuneytisins f.h. Land-
mælinga íslands að þær hætti loftmynda-
tökum eftir 40 ára starf á þessum vett-
vangi þá ætla Loftmyndir sér stóran skerf
þessa markaðar á komandi árum í ljósi
þeirrar reynslu sem þegar er fengin.
Hvab er myndkort
Myndkort er loftmynd sem leiðrétt hef-
ur verið vegna mishæða í landi og sett í
hnitakerfi. Myndkortum fylgja ætíð hæð-
arlínur og í gagnagrunni Loftmynda eru
þær fyrir 5 m hæðarmun. Kort og mynd-
kort má ekki leggja að jöfnu en hvort urn
sig hefur sína kosti. Hefðbundið kort
hentar vel við hönnunar- og skipulags-
vinnu og til þess að yfirprenta með ýmis-
konar upplýsingum. Upprétt loftmynd
hentar vel við bæði hönnun og við skipu-
lag en hún hefur hinsvegar að geyma
ógrynni upplýsinga sem aldrei koma fram
á hefðbundnum kortum. Þessar upplýs-
ingar má gera aðgengilegar fyrir venjuleg
(CAD-)tölvukerfi með því að teikna vek-
torgögn ofan í myndkortin á tölvuskjá.
Þetta er það sem menn eiga við með því
að uppréttar loftmyndir séu gagnaupp-
spretta landfræðilegra upplýsingakerfa
framtíðarinnar.
Síðasti en ekki sísti kostur myndkorta
er að þau má nota til þess að leiðrétta
(dagrétta) gömul kort. Þannig skapa þau
grundvöll að viðhaldi tæknikorta sem
aldrei fyrr hefur verið fjárhagslega mögu-
legt á íslandi.
Mynduð svæbi á tímabilinu 1996-1998.
24