Upp í vindinn - 01.05.2017, Síða 8

Upp í vindinn - 01.05.2017, Síða 8
Upp í vindinn Juudit Ottelin flytur doktorserindi sitt, 16. nóv. 2016 i Hdtiðarsal H.i. Á árinu 2016 fóru tveir starfsmenn deildarinnar á eftirlaun sökum aldurs, en það voru dr. Trausti Valsson, prófessor og Birgir Jónsson, dósent. Umhverfls- og byggingarverkfræðideild þakkar þeim fyrir vel unnin störf við deildina. Á árinu hlutu þrír starfsmenn framgang í stöðu prófessors við deildina. Það voru þau dr. Hrund Ólöf Andradóttir, dr. Rajesh Rupakhety og dr. Jukka Heinonen. Deildin óskar þeim innilega til hamingju með framganginn. Miðvikudaginn 16. nóvember 2016 flutti Juudit Ottelin fyrirlestur um doktorsverkefni sitt í umhverflsfræði. Verkefnið bar heitið „Hliðaráhrif mótvægisaðgerða loftslagsbreytinga og kolefnisspor hins byggða umhverfls” (Rebound effects projected onto carbon footprints - Implications for climate change mitigation in the built environment). Um var að ræða sameiginlega prófgráðu frá Háskóla íslands og Aalto University í Finnlandi og fór doktorsvörnin fram í Helsinki 11. nóvember 2016. Andmælandi við doktorsvörnina var dr. Jonas Nássén, dósent við Chalmers- háskóla í Gautaborg. Leiðbeinandi Juudit í verkefninu var dr. Jukka Heinonen, prófessor við deildina, en auk hans sátu í doktorsnefnd dr. Seppo Junnila, prófessor við Department of Built Environment, Aalto University, Finnlandi, og dr. Guðmundur Freyr Úlfarsson, prófessor og Doktorsndm Á árinu 2016 brautskráðust tveir einstakl- ingar með doktorspróf frá deildinni. Þann 26. febrúar varði Sólveig Þor- valdsdóttir doktorsverkefni sitt í bygging- arverkfræði. Verkefnið bar heitið Framlag að fræðilegum grunni stjórnunarkerfa sem fást við náttúruhamfarir í byggð: Kvik-ker- flsleg nálgun (Towards a Theoretical Foun- dation for Disaster-Related Management Systems: A System Dynamics Approach). Andmælendur við doktorsvörnina voru dr. Carlos Sousa Oliveira, prófessor við In- stituto Superior Técnico (IST), Technical University of Lisbon, Portúgal, og dr. Agostino Goretti, byggingarverkfræðingur við Seismic and Volcanic Risk Offlce, Civil Protection Department, Ítalíu. Leiðbeinandi var dr. Ragnar Sigbjörnsson, prófessor við Umhverfls- og byggingarverkfræðideild Háskóla íslands en hann lést árið 2015. Einnig sátu í doktorsnefnd dr. Rajesh Rupakhety, prófessor við deildina, dr. Guðmundur Freyr Úlfarsson, prófessor og deildarforseti, og dr. Óli Grétar Sveinsson, framkvæmdastjóri Landsvirkjunar. Fró vinstri: Guðmundur Freyr Úlfarsson. Óli Grétar Sveinsson, Carlos Sousa Oliveira. Sólveig Þorvaldsdóttir, Agostino Goretti, Bjarni Bessason og Rajesh Rupakhety. 8

x

Upp í vindinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.