Upp í vindinn - 01.05.2017, Blaðsíða 20
Upp í vindinn
Þvottaferli fyrir
heimilisúrgang sem
undirbúningur fyrir
metanframleiðslu
Rusl og þvottur? Hljómar undarlega ekki satt? Afhverju í ósköpunum ætti maður
að vilja þvo rusl? Ég segi ykkur frá því hér rétt á eftir en fyrst smá kynning á mér.
Ég heiti Börkur Smári Kristinsson og útskrifaðist sem umhverfisverkfræðingur
frá ETH Zurich í Sviss í janúar 2017. Áður hafði ég klárað B.Sc. gráðu í umhverfis
og byggingaverkfræði frá Háskóla íslands.
Námið rnitt í Sviss sneri aðallega að úrgangsstjórnun, vistvænni kerfishön-
nun og vatnsauðlindastjórnun. Eftir að hafa klárað nauðsynlegar einingar í
áföngum, gert annarverkefni og farið í starfsnám úti þá bauðst mér að gera meis-
taraverkefni á íslandi í samstarfl við SORPU og lítið frumkvöðlafyrirtæki á sviði
umhverfisverkfræði, ReSource International (lítið fyrirtæki með stórt nafn, ég
veit). Forsaga verkefnisins var sú að SORPA hafði á síðustu árum verið í viðræðum
við erlenda aðila um hönnun og byggingu á gas- og jarðgerðarstöð sem myndi
taka við öllum heimilisúrgangi af höfuðborgarsvæðinu, sem í dag er urðaður á
urðunarsvæði SORPU á Álfsnesi. Samningar náðust svo við danskt fyrirtæki sem
byggði sína hönnun á umræddu þvottaferli.
EFTIR
Börk Smára
Kristinsson
Umhverfisverkfrœðing
Ferlið virkar sem sagt þannig að úrgangur (lífrænn, allavega að hluta til) er settur
í loftþéttan geymi og honum lokað. Við hliðina á þessum geymi er stór tankur
sem inniheldur svokallaðan meltivökva (e. digestate) sem er nokkurskonar sey-
ra, uppfull af bakteríum sem geta umbreytt lífrænu efni í metangas (e. anaerobic
bacteria). Þessum meltivökva er svo úðað yflr úrganginn í loftþétta geyminum
þar sem hann seytlar í gegn og grípur með sér lífrænu efnin sem fyrirflnnast
í úrganginum. Þegar vökvinn kemst niður á botn er honum safnað þar saman
og dælt aftur yfir í tankinn þar sem bakteríurnar vinna sig í gegnum lífrænu
efnin og mynda metangas (CH4) og koldíoxíð (C02). Þetta niðurbrotsferli er
kallað loftfirrt niðurbrot (e. anaerobic digestion) og er þekkt úrgangsmeðhönd-
lunaraðferð fyrir lífrænan úrgang. Ferlið er einnig náttúrulegt og er ástæða þess
að kýr prumpa óheyrilegu magni af metani út í andrúmsloftið á hverjum degi
með tilheyrandi áhrifum á loftslagið. En nóg um kýr, nú að verkefninu sjálfu!
Mitt meistaraverkefni snerist um það að líkja eftir ferlinu sem var lýst hér
að ofan nema í rniklu minni skala. Að auki þá fór engin metanframleiðsla fram
heldur var ferlinu skipt í tvennt, annars vegar þvottaferli og hins vegar metan-
gerðarferli. Tveir mánuðir fóru í að hanna, byggja og setja upp virka rannsóknas-
tofu sem samanstóð af “þvottavél” úr ryðfríu stáli (1 m3 að rúmmáli), 15 lítra
tankur þar sem hitastig, rafleiðni og sýrustig var vaktað í rauntíma og nýttist til
að taka sýni úr “þvottaleginum”, og svo geymslutankur fyrir vökvann á milli þess
sem honum var úðað yfir úrganginn.
20