Upp í vindinn - 01.05.2017, Blaðsíða 64
Upp í vindinn
í ferðinni voru tveir háskólar heimsóttir, Seoul National University og Kang-
won National University. í þeim heimsóknum kynntumst við starfsemi skólanna
og stærð þeirra. Háskólasvæðið og öll tæki, t.d. vindgöng og ölduhermir, voru
margfalt stærri en það sem við höfðum kynnst á íslandi. Einnig var skemmti-
legt að kynnast mötuneytum skólanna. í Kangwon National University sátum við
fyrirlestur um vatnsgæði í Soyang stíflunni og í framhaldinu var farið upp á ris-
avaxna stífluna, siglt yfir lónið og gengið upp að gömlu musteri, Cheongpyeong
Temple. Dagurinn endaði á því að við snæddum korean barbeque kvöldverð með
tveimur prófessorum og einum nemanda úr skólanum.
Síðasta daginn í Kóreu var farið til DMZ að landamærum Norður- og Suður-
Kóreu. Byrjað var á að fara ofan í göng sem N-Kórea gróf til að geta gert skyn-
diárás á S-Kóreu. Göngin eru hönnuð þannig að tveir fullbúnir hermenn gætu
hlaupið hlið við hlið, en allir í hópnum urðu að beygja sig vegna lágrar lofthæðar.
Næst var farið að útsýnispalli með hermenn á alla kanta þar sem horft var
yflr til N-Kóreu. Á ákveðnu svæði var leyfilegt að taka myndir, en fyrir utan
svæðið var einungis leyfilegt að taka selfie. Landamærin voru afar greinileg þar
sem S-Kórea er öll þakin trjám, en í N-Kóreu sést varla tré.
Síðasta stoppið var á Dorasan lestarstöðinni við DMZ. Þar er risastór glæný
lestarstöð sem bíður í raun eftir því að N-Kórea opni landamæri sín svo hægt sé
að ferðast með lest milli landanna.
Þegar námshluta ferðarinnar lauk hélt hópurinn til Víetnam þar sem við dvöldum
í höfuðborginni Hanoi í nokkra daga. Þar var engin skipulögð dagskrá og gerðum
við fátt annað en að svitna og rölta um. Því næst var farið í tveggja daga bátsferð
á Ha Long Bay, einum fallegasta stað í heimi. Sú ferð var vel skipulögð þar sem
við fórum m.a. á kajak, stukkum í sjóinn, lærðum að gera víetnamskar vorrúl-
lur, heimsóttum perluræktun og nutum þess að vera í fríi í fallegu umhverfi og
góðum félagsskap.
Frá Víetnam var flogið til eyjunnar Koh Samui í Tælandi þar sem við nutum
þess að liggja á ströndinni, fórum í safariferð og helmingur hópsins skellti sér á
Half moon party á annarri eyju.
Síðustu dögum ferðarinnar var varið í Bangkok þar sem við skoðuðum bor-
gina og versluðum smá. Eftir þriggja vikna dvöl á öðrum stöðum í Asíu kom það
okkur mjög á óvart hvað Bangkok er í raun vestræn borg, sérstaklega í samburði
við Koh Samui og Víetnam.
Ferðin var frábær í alla staði og afar vel heppnuð, og viljum við þakka Guðmundi
Frey sérstaklega fyrir sitt framlag til námsferðarinnar. Þessi ferð var ógleymanleg
og æðislegur endir á þriggja ára samveru yfir bókunum í VRII.
Háskóli íslands
Allur tíminn var ekki nýttur í vísindaferðir og fengum við nægan tíma til að
skoða okkur um í Seoul, þar sem við heimsóttum m.a. höllina og fórum upp í
útsýnisturn. Eitt það skemmtilegasta við ferðina var að kynnast menningu Suður-
Kóreu, og þá sérstaklega matarmenningu landsins. Lítill sem enginn munur er á
máltíðum dagsins, eins og við fengum að kynnast strax fýrsta morguninn. Ekki
er venjan að fá sér bara drykk á börum, heldur er ætlast til að maður fái sér
furðulegt snarl með, t.d. þurrkaðan smokkfisk. Upplifunin af Suður-Kóreu var
frábær í alla staði, og við vonum að við munum fá tækifæri til að heimsækja
landið aftur.
64
65