Upp í vindinn - 01.05.2017, Síða 38

Upp í vindinn - 01.05.2017, Síða 38
Upp í vindinn Hver er helsti dvinningurinn af því? Við erum sammála Ólafi Elíassyni þegar hann útskýrði jökla innsetninguna sína við COP ráðstefnuna í París 2015 á þann hátt að það nægði ekki að höfða til vits- muna fólks þegar verið er að ræða aðgerðir vegna loftslagsbreytinga, það þyrfti að finna leiðir til að snerta það... Við ætlum að ýta við fólki varðandi heilsusamlegt val á fæðu og lífstíl - að láta fólk finna áhrifin á eigin skinni. Við erum í mörgum hlutverkum á degi hverjum og oft flókið að koma öllu heim og saman. Það má segja að við séum að búa til lausnir fyrir nútímamanninn, sem vill verða meðvi- taður um áhrif umhverfis á heilsu og vellíðan og öfugt- áhrif okkar á umhverfið. Á þessum stað getum við notið daglegra athafna í víðum skilningi, gert nokkra hluti í einu eða bara notið afþreyingar og hvíldar - hvers og eins er valið. Þan- nig hjálpum við fólki að verja tímanum vel og gera því auðvaldara fýrir að njóta stundarinnar og styrkja innri orku. Við munum veita fólki aðgang að grunnþ- jónustu okkar á opnu torgi, þ.e. beint frá býli, veitingastöðum og verslun en fyrir þá sem vilja koma reglulega og verða hluti af samfélaginu okkar og hafa aðgang á trópíska svæðinu, ræktunarhvelfingunni, örvandi skrifstofuaðstöðu, heilsuræk- tinni eða fá forgang á viðburði - þá borgar sig að greiða aðildargjald/ársgjald. Hins vegar geta gestir greitt hóflegt gjald fyrir stakar heimsóknir, skoðunarferðir o.fl. Eitthvað að lokum? Deiliskipulagsferlið er í gangi og unnið er að frumhönnun mannvirkja en ásamt því er verið að þróa framúrskarandi vörumerki sem gefur tóninn fyrir nýja tíma. Um leið er verið að tryggja fjármögnun og framtíðar rekstraraðila sem munu ve- ita þjónustu í Aldin BioDome Reykjavík. Við höfurn verið rnjög heppin með sam- starfsaðila og bakhjarla sem hafa gert það kleift að vinna verkefnið áfram. Þar má nefna ásamt Icelandie Startups og Arion banka, VERTU ehf., EFLU verkfræðisto- fu, Hornsteina arkitekta, íslenska Sjávarklasann og Döðlur hönnuði. Einnig hafa fjölmargir einstaklingar gefið góð ráð og styrkt verkefnið. 38

x

Upp í vindinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.