Skessuhorn - 29.05.2024, Side 28
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 202428
Skarðsvík ehf.
Magnús SH 205
Óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra
til hamingju með sjómannadaginn
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Síðastliðinn föstudag voru 78 nem-
endur brautskráðir frá Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi, af
níu mismunandi námsbrautum.
15 ljúka burtfararprófi úr raf-
virkjun og einn bæði burtfararprófi
í rafvirkjun og viðbótarnámi til
stúdents prófs. Einn lauk burtfarar-
prófi í vélvirkjun og einn útskrif-
ast úr meistaraskólanum. Þrír ljúka
burtfararprófi af sjúkraliðabraut.
29 luku stúdentsprófi af opinni
stúdents braut, tveir af félagsfræða-
braut og 15 af náttúrufræðabraut.
Þrír nemendur útskrifuðust af
starfsbraut. Níu ljúka viðbótarnámi
til stúdents eftir nám í iðngrein.
Ole Pétur Ahlbrecht, nýútskrifaður
rafvirki, hlaut viðurkenningu skól-
ans fyrir bestan námsárangur með
meðaleinkunn 9,53.
Dröfn Viðarsdóttir, aðstoðar-
skólameistari, setti athöfnina og
Steinunn Inga Óttarsdóttir skóla-
meistari flutti ávarp. Í því ræddi
hún m.a. um hvernig hamingjan sé
endalaust verk í vinnslu, hvatti til
að sleppa símanum og taka afstöðu
og taka þátt, mæta á staðinn og gera
gagn. Einnig nefndi hún mikilvægi
gróskuhugarfars og kom með góð
ráð fyrir nemendur út í lífið. Tón-
listarflutningur við athöfnina var
í höndum nemenda sem tóku þátt
í uppsetningu Leiklistarklúbbsins
Melló á Grease; Gígja Kristný
Stefánsdóttir söng lagið „Ég sé
aldrei eftir því“ og Bergþóra Edda
Grétarsdóttir söng lagið „Von og
þrá“. Hljómsveit skipaði Hjalti
Rafn Kristjánsson á trommum, Ell-
ert Kári Samúelsson á bassa, Pétur
Óliver Einarsson og Ákos Koppány
Kolcsar á gítar og Flosi Einarsson á
hljómborð.
Jóel Þór Jóhannesson flutti ávarp
fyrir hönd útskriftarnema þar
sem hann þakkaði starfsfólki, for-
eldrum, samnemendum og ekki
síst tækninni fyrir liðin ár, minnti
útskriftarnema á að framtíðin er
full af tækifærum og hvatti þá til að
elta draumana sína og gefast aldrei
upp. Björgvin Þór Þórarinsson,
fyrrverandi nemandi skólans, flutti
einnig ávarp þar sem hann hvatti
útskriftarnema til að sjá tækifærin
þegar þau birtast, grípa þau og jafn-
framt ekki festast í langtímamark-
miðum.
Viðurkenningar
Eftirtaldir nemendur fengu verð-
laun og viðurkenningar t.a.m. fyrir
ágætan námsárangur og störf að
félags- og menningarmálum (nöfn
þeirra sem gefa verðlaun eru innan
sviga):
• Agnes Rún Marteinsdóttir
hlaut hvatningaverðlaun
(Zontaklúbbur Akraness).
• Andri Steinn Björnsson
fyrir góðan árangur í rafiðn-
greinum (Raf-Pro).
• Kristján Magnússon fyrir
góðan árangur í rafiðn-
greinum (Raf-Pro).
• Dagur Smári Pétursson
fyrir góðan árangur í rafiðn-
greinum (Sjammi).
• Ole Pétur Ahlbrecht fyrir
góðan árangur í rafiðn-
greinum (Norðurál).
• Thelma Björg Rafnkels-
dóttir fyrir ágætan árangur
í ensku (Landsbankinn).
• Þórður Freyr Jóns-
son fyrir ágætan árangur í
ensku (Landsbankinn).
• Ingibjörg Svava Magnúsardóttir
fyrir góðan árangur í spænsku
(Rótarýklúbbur Akraness).
• Íris Rakel Aðalsteinsdóttir fyrir
góðan árangur í íslensku (FVA).
• Sigurjón Jósef Magnússon
fyrir góðan árangur í
ensku (Íslandsbanki).
• Daníel Prizginas fyrir góðan
árangur í ensku (Íslandsbanki).
• Dagný Líf Kristófersdóttir fyrir
ágætan árangur í þýsku (Elkem).
• Aníta Hanna Krist-
jánsdóttir fyrir ágætan
árangur í íslensku (FVA).
• Arnar Gaui Björnsson fyrir
góðan árangur í ensku og þýsku
(Penninn Eymundsson).
• Elsa Maren Steinarsdóttir fyrir
ágætan árangur í spænsku (FVA)
og stærðfræði (Skaginn 3x).
• Líf Ramundt Kristinsdóttir fyrir
góðan árangur í ensku (Tölvu-
þjónustan), dönsku (danska
sendiráðið), íslensku (FVA), sögu
(Sögufélag) og fyrir framlag sitt
til umhverfismála og alþjóðlegra
samskipta (Soroptimistafélagið).
• Jóel Þór Jóhannesson fyrir
ágætan árangur í efnafræði
(Efnafræðifélagið), líffræði
(Elkem), dönsku (danska sendi-
ráðið), íslensku og þýsku (Akra-
borg) og fyrir framlag sitt til
félagsstarfa (Minningarsjóður
Karls Kristins Kristjáns sonar).
Hann hlaut einnig menntaverð-
laun Háskóla íslands sem
veitt eru fyrir framúrskarandi
árangur í námi auk eftirtektar-
verða þátttöku í félagslífi.
• Guðbjörg Bjartey Guðmunds-
dóttir fyrir frábæran árangur
í íslensku (Sjóvá), spænsku
(FVA), samfélagsgreinar
(FVA), stærðfræði (Stærðfræði-
félagið) og íþróttum (FVA).
Hún hlaut einnig menntaverð-
laun Háskóla Íslands sem
veitt eru fyrir framúrskarandi
árangur í námi og eftirtektar-
verðan árangur í íþróttum.
Þá hlaut hún einnig viður-
kenningu fyrir góðan náms-
árangur frá Akraneskaupstað.
• Elvíra Agla Gunnarsdóttir
fyrir framlag sitt til félags-
starfa (Minningarsjóður Karls
Kristins Kristjánssonar).
• Sigrún Egla Unnarsdóttir
fyrir framlag sitt til félags-
starfa (Minningarsjóður Karls
Kristins Kristjánssonar).
• Katrín María Ómarsdóttir
fyrir framlag sitt til félags-
starfa (Minningarsjóður Karls
Kristins Kristjánssonar).
• Nói Claxton fyrir framlag sitt
til félagsstarfa (Minningarsjóður
Karls Kristins Kristjánssonar).
• Indíana Mist Daníelsdóttir,
Garðar Máni Ágústsson og Prz-
emyslaw Fiszer hlutu viður-
kenningu og hvatningu til
áframhaldandi náms úr Minn-
ingarsjóði Lovísu Hrundar.
• Ísak Emil Sveinsson sem útskrif-
aðist í desember sl. hlaut viður-
kenningu úr Minningarsjóði
Guðmundar P. Bjarnasonar
sem Akraneskaupstaður veitir.
mm
Stór hópur útskrifaður úr Fjölbrautaskóla Vesturlands
Útskriftarhópurinn vorið 2024 með skólameistara og aðstoðarskólameistara.
Ole Pétur Ahlbrecht dúx vorið 2024. Ísak Emil Sveinsson og Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir hlutu verðlaun frá
Akraneskaupstað.
Stór og glæsilegur hópur.