Skessuhorn - 29.05.2024, Page 49
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2024 49
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Akraneskaupstaður sendir
sjómönnum og fjölskyldum þeirra
hamingjuóskir í tilefni dagsins
Sveitarfélagið Stykkishólmur sendir
sjómönnum og fjölskyldum þeirra
hamingjuóskir í tilefni sjómannadagsins
www.skessuhorn.is
Fréttaveita Vesturlands
fræsa malbik og vinna á verkstæði,
en mokaði snjó á veturna.
Heim eftir 14 ár
Böddi segir að síðan hafi það
allt í einu blasað við að þau áttu
börn og barnabörn heima og það
hafi aldrei staðið til að vera svona
lengi í Noregi. „Við ákváðum því
að fara heim til Íslands þótt við
hefðum það í rauninni fínt í Nor-
egi. Konunni leiddist þarna orðið
því ég var aldrei heima, var út um
allt í Noregi að vinna. Það end-
aði með því að ég gaf eftir og við
fluttum heim. Úti höfðum við það
gott peningalega sem gerði okkur
kleift að kaupa þetta hús hér á
Hellissandi og gera það upp. En
það tók að vísu á fjárhagslega en
það þýddi ekkert að væla yfir því,
lífið hélt bara áfram,“ segir Böddi
og brosir.
„Þegar ég kom heim vantaði
vélstjóra á Rifsnesið SH og end-
aði ég þar aftur. Á reyndar öðru
og stærra skipi en gamla Rifsnesið
var. Þar var ég þangað til fyrir
tveimur árum að ég hætti til sjós.
Reyndar hætti ég ekki fyrr en um
síðustu áramót því ég var að leysa
af fram að því.“
Með borholu og
varmadælu
Síðustu ár hefur Böddi unnið við
að setja upp varmadælur. „Ég byrj-
aði á að setja upp varmadælu í hús-
inu mínu og er það sennilega eina
húsið á Snæfellsnesi sem er með
borholu og varmadælu. Það kemur
til af því að úti í Noregi byrj-
aði ég að fikta við þetta. Smíðaði
hlífar yfir varmadælur úr trefja-
plasti. Ég byrjaði á þessu eingöngu
út af áhuga en ég hef unnið mikið
í frystikerfum og er þetta svolítið
skylt þótt varmadælur séu aðeins
flóknara dæmi.“ Böddi hefur því
ásamt konu sinni stofnað fyrirtæki
fyrir varmadælur og keypt hús-
næði í Ólafsvík undir starfsem-
ina. „Nú er meira en nóg að gera
og þetta vindur upp á sig,“ segir
Böddi að lokum.
af
Böðvar var lengi til sjós á Rifsnesinu. Hér er það eldra.