Skessuhorn - 29.05.2024, Qupperneq 60
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 202460
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Sími 820 3722
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
4
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
www.ebverktakar.is
Sími 785 0587
eb@ebverktakar.is
— ÖLL ALMENN SMÍÐAVINNA INNI SEM OG ÚTI —
Vörur og þjónusta
Skagaraf ehf
Alhliða rafþjónusta
777 2322
skagaraf@gmail.com
Rafþjónusta til þín
S agaraf
Skagaraf ehf
Alhliða rafþjónusta
777 2322
skagaraf@gmail.com
Rafþjónusta til þín
S agaraf
Skagaraf ehf
Alhliða rafþjónusta
777 2322
skagaraf@gmail.com
Rafþjónusta til þín
S agaraf
Öflugt afrekssvið
í Fjölbraut
Pennagrein
Afreksíþróttasvið Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi tók til starfa
haustið 2015 og verður því tíu ára
á næsta ári. Sviðið er rekið í góðu
samstarfi við Akraneskaupstað og
Íþróttabandalag Akraness. Sviðið er
ætlað nemendum sem hafa stundað
afreksíþróttir í töluverðan tíma
og vilja hafa aukið svigrúm til að
stunda íþrótt sína samhliða námi í
skólanum. Góð þátttaka hefur verið
á afreksíþróttasviðinu undanfarin
ár. Afreksíþróttanemendur FVA fá
m.a. tíma í stundatöflu til að æfa í
bestu mögulegu aðstöðu, morgun-
hressingu, atvinnuþjálfara, fatnað
merktan skólanum og farið er í
vettvangsferðir. Ríkir jafnan góð
stemning í þessum kappsama hópi.
Sótt er um afrekssviðið á vef skól-
ans, fva.is.
Í lok apríl var gefin út skýrslan
„Áfram Ísland: Tillögur að fyrir-
komulagi afreksstarfs.“ Í skýrslunni
eru settar fram tillögur um hvernig
megi stórefla afreksíþróttastarf í
landinu með fjölbreyttum hætti,
styðja betur við afreksíþróttafólk
og efla tengsl milli skólakerfis-
ins, íþróttafélaga og sveitarfélaga.
Vésteinn Hafsteinsson, afreks-
stjóri ÍSÍ, leiddi starfshópinn sem
vann að skýrslunni fyrir mennta-
og barnamálaráðuneytið. Það
verður að segjast að hér stöndum
við á Skaganum sterk þar sem þessi
tengsl og samstarf hafa alltaf verið
til staðar frá upphafi.
Hildur Karen Aðalsteinsdóttir,
verkefnisstjóri afreksíþróttasviðs
FVA, er einn af fjórum fulltrúum
framhaldsskólanna á landinu sem
tók þátt í vinnu við þann kafla
skýrslunnar sem fjallar um hlutverk
framhaldsskólanna í afreksstarfi.
Í þeim kafla kemur m.a. fram að
afrekssvið og íþróttabrautir fram-
haldsskólanna geta gegnt lykilhlut-
verki í að draga úr brotthvarfi úr
íþrótta- og æskulýðsstarfi, sem er
alltof algengt á framhaldsskólaaldri.
Svo það er mjög mikilvægt að halda
vel utan um þennan hóp og bjóða
upp á bestu mögulegu aðstöðu og
þjálfun.
Í skýrslunni er m.a. lagt til að
starfsemi afrekssviða framhalds-
skólanna verði samræmd með
skýrum reglum og gæðaviðmiðum.
Einnig er lagt til að hin nýja Afreks-
miðstöð Íslands veiti skólunum sér-
fræðiráðgjöf og faglegan stuðning.
Til að styrkja afrekssviðin og efla
tengsl framhaldsskóla, íþróttafélaga
og sveitarfélaga er jafnframt lagt
til að framhaldsskólar geti sótt um
sérstakan fjárhagslegan stuðning
til að mæta hluta af kostnaði sem
fellur til vegna aukinnar starfsemi
afrekssviðanna.
FVA tekur virkan þátt í þess-
ari umræðu og fagnar henni. Við
bindum vonir við að þessar til-
lögur nái fram að ganga og að ný
Afreksmiðstöð Íslands verði öflug
og hagnýt svo unnt sé að styðja sem
allra best við okkar frábæra afreks-
íþróttafólk.
Steinunn Inga Óttarsdóttir,
skólameistari
Fimm umsóknir bárust um styrk í
Menningarsjóð Hvalfjarðarsveitar
fyrir árið 2024 og var heildar-
upphæð til úthlutunar 850 þús-
und krónur. Á fundi sveitarstjórnar
Hvalfjarðarsveitar síðasta mið-
vikudag staðfesti hún afgreiðslu
menningar- og markaðsnefndar á
umsóknum úr sjóðnum og var til-
lagan samþykkt með sjö atkvæðum.
Eftirfarandi aðilar fengu styrk:
Eigendur jarðarinnar Leirár í
Leirársveit, Anna Leif Auðar Elí-
dóttir og Ásgeir Kristinsson, fengu
200.000 kr. styrk vegna menningar-
viðburða á Leirá á Hvalfjarðar-
dögum 16.-18. ágúst 2024.
Tónleikanefnd Sumartónleika
í Hallgrímskirkju í Saurbæ fékk
150.000 kr. styrk vegna tónleika
starfseminnar sumarið 2024.
Kór Saurbæjarprestakalls fékk
styrk að fjárhæð kr. 150.000 fyrir
árið 2024. Stefnan fyrir þetta ár
er að halda tónleika með lögum
Gunnars Þórðarsonar. Kórinn er
eins og áður tilbúinn til að syngja
við alls kyns uppákomur í sveitinni
ef beðið er um.
Hollvinafélag Hallgrímskirkju í
Saurbæ fékk 100.000 kr. styrk fyrir
menningardagskrá á Hallgríms-
dögum að hausti 2024 og til að
hefja vinnu við kynningarbækling
um kirkjuna og listaverk kirkjunnar;
listglugga Gerðar Helgadóttur og
altaristöflu Lennart Segerståle.
Foreldrafélag leik- og grunn-
skóla Hvalfjarðarsveitar fékk síðan
250.000 kr. styrk sem ætlaður er
sem aukafjármagn til þess að geta
gert vorhátíðirnar að veruleika.
Vorhátíð Skýjaborgar fer fram
23. maí og Vorhátíð Heiðarskóla
verður 31. maí.
vaks
Hildur Karen Aðalsteinsdóttir verk-
efnastjóri afrekssviðs FVA og Vésteinn
Hafsteinsson afreksstjóri ÍSÍ.
Fimm fengu styrk
úr Menningarsjóði
Stjórnsýsluhúsið í Melahverfi. Ljósm. mm