Mímir - 01.06.1967, Page 3

Mímir - 01.06.1967, Page 3
MÍ MIR BLAÐ FÉLAGS STÚDENTA í ÍSLENZKUM FRÆÐUM 6. árg. — 2. tbl. — Reykjavík — júní — 1967 Ritnefnd: Brynjúlfur Sæmundsson (ábm.) Guðjón Friðriksson Höskuldur Þráinsson Prentsmiðja Jóns Helgasonar UM BLAÐIÐ Fyrsta tbl. af MÍMI kom út í apríl 1962. Það blað var gefið út í tilefni af fimmtán ára afmæli MÍMIS, félags stúdenta í íslenzkum fræðum. Nú eru MÍMIS-blöðin orð- in elléfu og eru öll fáanleg enn. — Eins og oftast áður er blaðið eingöngu skrifað af stúdentum í íslenzkum fræðum, og verður vonandi haldið áffam á sömu braut. Greinar eftir lærða íslenzkufræðinga myndu að vísu auka á fjölbreytni blaðsins, en e. t. v. líka verða til þess, að nýliðar í deildinni fengjust síður til að birta ritsm'íðar Sínar þar af ótta við að verða léttvægir fundnir við hlið hinna lærðu manna. Efni ellefta blaðsins er úr öllum greinum „fræðanna" og kannski rúmlega það. Um myndskreytingu bóka hefur ekki verið skrifað fyrr í MÍMI og sjaldan verið minnzt á málfar og málnotkun. Þyki mönnum eitthvað of eða van í efnisvali, er gagnrýni kærkomin, en benda má á það, að formfestan er ekki bezta vinkona MIMIS, enda hæpið að hann ykist að efni og frægð með slíkan lífsförunaut sér við hlið. — Svo að vikið sé að tæknilegri hlið, eru lesendur beðnir að athuga, að lykkju-ö var ekki til í prentsmiðjunni í smærra letrinu, og er því notað venjulegt ö í tilvitnunum í forn rit í stað þess. — Meðal efnis næsta blaðs verður: „Bókaeign Möðruvallaklausturs 1461." MIMIR nýtur álits víðar en meðal stúdenta í íslenzkum fræðum. Háskólakennarar benda nemendum sínum á greinar þar, og vinsamlegar raddir um blaðið höfum við heyrt úr ýmsum áttum. Það er von okkar, að MIMIR megi enn njóta aukins álits og vinsælda. — Þakkir öllum, sem á einhvern hátt hafa stutt blaðið, ekki sízt PJH og auglýsendum. 3

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.