Mímir - 01.06.1967, Blaðsíða 26

Mímir - 01.06.1967, Blaðsíða 26
Hins vegar ætti að varða við lög að misþyrma verkum eins og Macbeth og þýðingu sr. Matt- híasar með svona lélegri útgáfu. Utgefendun- um tekst að fara svo hrapallega með hina kjarn- yrtu þýðingu sr. Matthíasar, að málið er á köfl- um hvorki bundið né óbundið, heldur aðeins samsafn sjaldgæfra orða í óvenjulegri orðaröð. Afleiðingin verður sú, að í huga barnsins, sem les þetta, greypist andúð og fyrirlitning á þessu torskilda stagli. Auk þess er líklega vandfundið verk, sem er í eðli sínu síður við barna hæfi en Macbeth Shakespears, og í meðferð Sígildra sagna hlýtur það að virðast lítið annað en rugl- ingsleg frásögn af ógeðfelldum manndrápum. Eg vil þá loks víkja að þeirri grein eftirlætis- bókmennta unga fólksins, sem ég tel sýnu á- hrifamesta. Það eru dægurlagatextarnir. Eins og drepið var á hér að framan, er það nánast heilög skylda hvers tánings að kunna sem mest af nýj- ustu dægurlagatextunum og hafa þá helztu yfir daglega með viðeigandi raddbeitingu, líkt og kaþólskum mönnum þótti í eina tíð skylt að þylja Lilju á degi hverjum. Auk þess glymja dægurlögin í útvarpinu sýknt og heilagt, og margir táningar eiga segulbönd og plötuspilara, sem þeir þenja í tíma og ótíma. Menn geta því gert sér í hugarlund, hvílík áhrif þessi síendur- tekni Ijóðaflutningur hlýtur að hafa á bók- menntasmekk og máltilfinningu þeirra, sem fyr- ir honum verða eða hafa hann í frammi. Skulu nú sýnd hér fáein dæmi um það, hvers konar ljóð það eru, sem unglingarnir láta sér tíðast um munn fara. Ljóðin eru tekin stafrétt eftir ljóðabókunum. ER NOKKUÐ EÐLILEGRA? Er nokkuð eðlilegra en að elska einhvern heitt? Er nokkuð eðlilegra en ástin yfirleitt? En ef þú öðrum ert með og elskar mig ei neitt er nokkuð eðlilegra dapur sé ég þá að því segja frá’. (!). Er nokkuð eðlilegra ég elti’ þá löngum þig? Er nokkuð eðlilegra að elska yfir sig? Að sjá þig dansa og líta dreymandi á mig, er nokkuð eðlilegra? Ég ærist hreint og beint, óður Ijóst og leynt og stað og stund ég gleymi þá. En þó að þú sért svekkt er þetta eðlilegt, því þetta gerist öllum hjá. Er nokkuð eðlilegra en ósamkomulag? Er nokkuð eðlilegra en að gráta heilan dag en síðan hlæja og sættast og syngja gleðibrag, er nokkuð eðlilegra.. .10 Líklega hafa útgefendur Ijóðabókarinnar mis- þyrmt þessum texta eirthvað. Mér er ómögu- legt að ætla höfundi textans alla þessa vitleysu, því að hann er háskólastúdent. LEYNDARMÁL Viltu eignast leyndarmál, sem ég geymi’ í minni sál, leyndarmál, sem varðar aðeins þig og mig. Leyndarmál svo stórfenglegt, furðulegt og yndislegt. Viltu lofa að segja ekki frá. Ég veit, að nú ég elska þig og ég veit, að ef þú elskar mig eins mikið og ég dái þig verður þú ávallt góð við mig. Þá að lokum mun ég eignast þig. Nú veizt þú mitt leyndarmál um mitt mikla ástarbál, leyndarmál um aðeins þig og mig. Ég veit, að nú ég elska þig o. s. frv.17 Af greiðasemi við höfund þessa texta hirði ég ekki að birta nafn hans. Einn textinn hefst svona: Ljúft með þig ég leiði í dansi langa nótt í faðmi mér.18 Ein vísan í texta eftir annars ágætan höfund hljóðar svo í heftinu Beztu danslagatextarnir: Það var logndrífa’ og ládauður sjór, er hinn látni í gröfina fór. og ekkjan með sjarmi frá svuntu a8 barmi — menn sáu, að hryggðin var stór:,:19 26
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.