Mímir - 01.06.1967, Blaðsíða 58
og fóru menn heim stórum fróðari um þessi mál
en áður.
Tvær rannsóknaræfingar voru að venju, og
voru þær haldnar í samvinnu við Félag íslenzkra
fræða. A hinni fyrri, er haldin var viku fyrir
jól, flutti Arnheiður Sigurðardóttir magister er-
indi, er hún nefndi: „Lítil hugleiðing um eitt
eddukvæði". Hin rannsóknaræfingin var haldin
laugardaginn fyrir páska, en þar fjallaði próf.
Jón Helgason um Hlöðskviðu.
Eitt helzta verkefnið á starfsárinu var undir-
búningur að fyrrnefndri afmælishátíð. Akveðið
var, að afmælisins yrði bezt minnzt á þrennan
hátt. I fyrsta lagi var ákveðið að gefa út hátíða-
blað af Mími, og sá sérstök ritnefnd um útgáf-
una, en Aðalsteinn Davíðsson, er þá hafði ný-
lega lokið prófi í íslenzkum fræðum, ritaði í blað
þetta ágrip af sögu Mímis í tutmgu ár. I öðru
lagi var undirbúin dagskrá í Ríkisútvarpinu í til-
efni afmælisins, og sá sérstök nefnd um þann
undirbúning. Dagskráin hófst með kynningu á
starfsemi Mímis, en því næst fluttu Mímismenn
erindi fræðilegs eðlis, og hafa sum þeirra birzt
á prenti í lítt breyttri mynd. I þriðja lagi var
efnt til veizlu mikillar í Tjarnarbúð. Voru þar
samankomnir flestir prófessorar deildarinnar og
nær allir félagsmenn Mímis. Veizlustjóri var Dr.
Jakob Benediktsson, en aðalræðuna flutti Dr.
Finnbogi Guðmundsson landsbókavörður, en
hann var fyrsti formaður félagsins. Þá voru flutt-
ir ýmsir þættir í samantekt helztu skálda og
hugsuða félagsins. Sérstök nefnd annaðist og
undirbúning hófs þessa, en allar nefndirnar
höfðu með sér náið samstarf og samvinnu, bæði
sín á milli og við stjórn félagsins. Mikil vinna
var lögð í þessi hátíðahöld, og í heild má segja,
að þau hafi tekizt hið bezta og orðið til þess að
auka veg félagsins.
Þorrablót eitt var haldið að venju, og að þessu
sinni á þorraþræl. Blótið var framið í Lindarbæ.
Aðalræðuna fiutti sá trausti Mímismaður, Björn
Teitsson, og fjallaði hún um gamalt áhugamál
hans. Ymsir aðrir lögðu sig og fram um að láta
ljós sitt skína, og tókst flestum vel. Sumt þótti
slíkt afbragð, að það var síðar flutt fyrir lands-
lýð í útvarpi. Vítanefnd starfaði og af kappi
og varð óvenju langlíf. Blót þetta var ágætlega
sótt og þótti takast allvel.
Blaðaútgáfa Mímis stóð í nokkrum blóma á
árinu, þrátt fyrir nokkra fjárhagsörðugleika á
tímabili. Aður er rætt um hátíðarblaðið, en auk
þess kom út blað í marz, og að síðustu kom út
blað þetta. Nokkurt átak var gert til þess að
fjölga áskrifendum, og unnu einkum að því þeir
Helgi Þorláksson og Jónas Finnbogason, og eiga
þeir þakkir skildar fyrir framtak sitt. Einnig ber
að þakka ritnefndarmönnum fyrrgreindra blaða
mikið og tímafrekt starf við útgáfuna. Ymsir
hafa ritað í þessi blöð, og auðvitað er efnið mis-
jafnt að gæðum, en í heild má segja, að blaðaút-
gáfan hafi orðið þeim og félaginu til sóma.
Síðasta verkefnið á kjörtímabili núverandi
stjórnar er undirbúningur ferðalags, en Mímir
hefur oftsinnis gengizt fyrir rannsóknarferðum
á ýmsa merkisstaði landsins. Stendur undirbún-
ingurinn nú sem hæst, er þetta er ritað, og von-
andi er, að ferðalagið takist sem bezt. I sambandi
við þessi ferðalög Mímis er skylt að geta eins
atriðis. Áður hefur komið fram í blaðinu Mími,
að á tímabili var allt útlit fyrir, að tekið yrði
fyrir frekari ferðalagastyrki Menntamálaráðu-
neytisins til Mímis vegna tilkomu Heimspeki-
deildarfélagsins. Núverandi stjórn tók málið
upp að nýju bæði með bréfaskriftum og viðtöl-
um. Varð sú niðurstaða, að félagið fékk greidd-
an ferðastyrk frá síðasta ári og einnig styrk til
ferðalags í ár. Ber sérstaklega að þakka ráðu-
neytisstjóra í fyrrgreindu ráðuneyti fyrir skilning
hans á þessum málum.
Af framansögðu er Ijóst, að starfsemi Mímis
hefur verið allmikil á þessum vetri, og hafa þar
margir lagt hönd á plóginn, enda er Ijóst mál, að
samheldni og samstaða félagsmanna er grund-
völlurinn að þeirri reisn og virðingu, er Mímir
hefur notið á liðnum árum. Er vonandi, að þessi
samheldni eigi enn eftir að aukast í ffamtíðinni,
Mími og íslenzkum fræðum tii góðs.
Olafur Oddsson.
58