Mímir - 01.06.1967, Qupperneq 46

Mímir - 01.06.1967, Qupperneq 46
málshættir, heldur orðtök eða talshættir. Víst hefur þessi skoðun komið fram, þótt ekki verði á hana fallizt hér. Ivar Aasen, sem gaf út safn norskra málshátta á öldinni sem leið, flokkar safn sitt í tvo aðalflokka: Ordsprog (málshætti), sem er meginhluti safnsins, og Mundheld (orð- tök). Hermestev (sögumálshætti) flokkar hann undir Mundheld, en Mundheld skýrir hann þannig, að það sé „saadanne Talemaader, som ikke give fuld Mening for sig selv alene, men derimod st0tte sig til en Leilighed, som i 0ie- blikket er forhaanden eller som forhen er nævnt og betegnet i Samtalen; f. Ex. „Han har mange Jern i Ilden". I nogle af disse Talemaader nævnes virkelig ogsaa den Leilighed, ved hvilk- en de ere brugte (f. Ex. „Jeg er lige glad, sagde Smaadrengen; han gik og græd");"13 Þetta voru nú orð Aasens. Finnur Jónsson segir um flokk- un hans: „Ivar í Asi hefur þess konar máls- hætti [þ. e. málshætti, sem lagðir eru einhverj- um í munn] meðal talshátta aftan við aðalsafn- ið, en það er óefað miður rjett, og að minsta kosti rengra en að slengja þeim saman við þá."1'1 Það er auðvitað umdeilanlegt, hvort heldur ber að „slengja þeim saman við" aðalsafnið eða hafa þá í sérflokki innan þess, en allar götur held ég Finnur hafi þarna á réttu að standa um það, að þetta eru málshættir en ekki orðtök, enda hafa þeir alveg fastákveðið form og óumbreytanlegt og standa sjálfstæðir út af fyrir sig, sem orðtök yfirleitt gera ekki. I góðri grein um málshætti, sem væntanlega mun birtast í XII. bindi af Kulturhistorisk Leksikon síðar á þessu ári, segir Iver Kjær, að flokka megi málshætti í fjölda flokka og undir- flokka eftir „stilistiske, syntaktiske og ind- holdsmæssige kriterier." Þeir helztu, sem þekkt- ir séu á Norðurlöndum allt frá miðöldum, séu: 1. Figurlige ordsprog („selvstændige sproglige enheder, der anvendes metaforisk og indf0jes i konteksten uden at ændre grammatisk form efter denne." Dæmi: Eftir höfðinu dansa limirn- ir); 2. Sentenser („dvs. forskellige arter af er- faringssætninger og leveregler, der forholder sig til konteksten som de figurlige o(rdsprog), men i modsætn. til disse kun skal forstás bog- staveligt." Dæmi: Hófsemi er heilsu bezt.); 3. Talemdder („adskiller sig fra de figurlige o(rd- sprog) og sentenserne ved at kunne afpasse per- son, numerus og tempus efter konteksten ..." Dæmi: Hann lætur kylfu ráða kasti, ég læt kylfu ráða kasti. Hér er á ferðinni orðtak, að láta kylfu ráða kasti.); 4. Wellerismer (þeir ættu þegar að hafa verið skýrðir nægilega). Höfund- ur notar „ordsprog" sem „samlingsbetegneise", og með því að gefa því mjög víðtæka merkingu tekst honum einnig að fella orðtök (talemáder) undir það heiti, sem mér finnst reyndar vafa- samt, eins og áður er á vikið.15 I lslenzkum málsháttum samanteknum af Bjarna Vilhjálmssyni og Oskari Halldórssyni segir Bjarni m. a. í inngangi: „Málsháttur helzt meira og minna í föstum skorðum, og honum er ætlað að fela í sér meginreglu eða lífspeki."10 Ekki á þetta nú að öllu leyti við um sögumáls- hætti; þeir fela sjaldnast í sér „meginreglu eða lífspeki", enda segir tveim blaðsíðum síðar í innganginum: „Stundum eru þeir [þ. e. máls- hættirnir} léttvægt mas um sjálfsagða hluti..." I kaflanum „Helztu formseinkenni íslenzkra málshátta" er m. a. getið um stuðlasetningu, endarím, innrím og önnur form bundins máls, sem algeng séu í málsháttum. Síðan segir: „Enn er það eitt form málshátra, að þeir eru stundum lagðir einhverjum í munn, og er þá oft bætt aftan við málsháttinn orðum eins og „sagði karlinn", „sagði kerlingin", „sagði refurinn", „sagði álfkonan" ... Sumt af slíku er þó fremur máltæki, sem hæpið er að flokka undir máls- hætti."17 Sögumálshættir falla ekki algerlega undir neina af þessum skilgreiningum, en geta verð ég þess, að af viðtali við Bjarna veit ég, að hann telur rétt að flokka þá með málsháttum fremur en orðtökum, enda eru nokkrir tugir slíkra málshátta í bókinni. Þessa málshætti hef ég nú tínt saman úr bók þeirra Bjarna og Ósk- ars og birti hér á eftir. Aðferðin er ekki vísinda- leg. Tilgangur minn er aðallega að gefa mönn- um allríflegt synishorn sögumálshátta, en ekki að safna þeim saman úr t. d. öllum prentuðum 46

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.