Mímir - 01.06.1989, Page 8

Mímir - 01.06.1989, Page 8
Pétur Gunnarsson: var víst líka ilpunktur á útkomudegi). í dag sýnist okkur að samtímamenn Þórbergs hafi kannski snúið stiganum öfugt, hann liggi raun- ar upp og Suðursveitarbálkurinn (sem hann lagði frá sér ólokinn, sumir segja af tómlætis- sökum) — sé skíra gull. „Okkar tími“, minnir hann ekki um margt á yfirþyrmandi framleiðslu á umbúðum? Við vöðum umbúðirnar í ökkla svo jafnvel gjafirnar sem okkur voru gefnar sjást ekki en koma von- andi í Ijós þegar tekið verður saman — ein- hvern tíma. Soffía Audur Birgisdóttir: Hvað veit maður um bókmenntaumræðuna „á vorum dögum“? Annars vegar er í gangi umræða manna á meðal um bækur sem þeir eru að lesa. Því miður er hún hvorki algeng né ástríðufull og miklu tíðara að fólk ræði kvik- myndir eða sjónvarpsdagskrár. Bókaumræðan er undarlega árstíðabundin og fer aðallega fram í jólaboðum. Hún byggir á ákaflega ein- földu módeli: Hefurðu lesið bók X? Ef já, þá hvernig fannst þér? Síðan ræðst framhaldið mikið af því hvernig dóma viðmælandinn fellir, það er svo erfitt að tala vel um bók sem annar segir að sé vond og það er svo erfitt að tala illa um bók sem viðmælandinn segir að sé góð. Hin opinbera bókmenntaumræða dregur svo dám af grasrótinni. Ef áhugaleysi er um bækur í grunninn þá er sennilegt að bókmenntaumræð- una skorti jarðsamband og hún dragi uppi í höndum fámenns skylduliðs eða kannski fari bara út í allt aðra sálma, t.d. einhver fyrirbæri mannlífsins sem gagnrýnandanum eru hugleik- in. Hitt er svo annað mál að bók getur ekki vænst þess að fá um sig endanlegan dóm við útkomu, ekki frekar en barn minningarorðin við fæðingu. Þvert á móti: sú umræða sem mæt- ir bók í fyrstu umferð er ákaflega tilviljana- kennd og fyrirfram mótuð af fordómum og stikkorðum. En því veðri slotar einhvern tíma, gruggið sjatnar og við sjáum jafnvel til botns. Suðursveitarbækur Þórbergs, svo dæmi sé tek- ið nú 30 árum eftir að sú síðasta kom út — þær mættu tómlæti á sínum tíma, gott ef gagnrýn- endur kepptust ekki við að lýsa hverri bók sem tröppu niður á við (reyndar virðist það furðu oft hafa verið staðlað viðkvæði við nýrri bók eftir Þórberg: að hún væri trappa niður á við frá einhverjum ímynduðum upphafshápunkti sem Hljómar það ekki klisjukennt ef ég svara þessari spurningu bæði með jái og neii? Það held ég sé þó hið eina rétta svar. Ef við erum að tala um bókmenntaumræðu í Háskóla íslands, og þá í íslenskum fræðum, er svarið því miður: Já. Ef við erum hins vegar að tala um þá bók- menntaumræðu sem birtist okkur á síðum bók- menntatímarita á borð við Tímarit Máls og menningar og Skírni, er svarið hins vegar: Nei. Ef við lítum svo lengra, út fyrir landsteinana, má fullyrða að bókmenntaumræða hefur sjald- an verið blómlegri. Ástæðan er sú að á síðastliðnum 10 til 20 árum hefur bókmenntafræðin verið að sprengja ramma fræðigreinarinnar. í bókmenntaumræðunni í dag skarast fagur- fræði, heimspeki, sálfræði, táknfræði, málvís- ^ indi, mannfræði, félagsfræði, sagnfræði o.s.frv. í ríkari mæli og á frjósamari hátt en áður. Frakkland og Bandaríkin fara þarna fremst í flokki, en áhrifin ná langt, meira að segja til íslands. Þessara áhrifa gætir vitanlega einnig í Há- 8

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.