Mímir - 01.06.1989, Page 9

Mímir - 01.06.1989, Page 9
skólanum, en þá fremur í Almennri bók- menntafræði en íslenskum fræðum. Astæða þess liggur einnig í augum uppi; Al- menn bókmenntafræði hefur haft á að skipa yngri kennurum, sem hafa tileinkað sér nýjar aðferðir. Minna hefur farið fyrir nýjungum inn- an Islenskudeildarinnar og má þar vafalaust að einhverju leyti kenna um fjárskorti og tíma- skorti. En einnig metnaðar- og áhugaskorti, eða einfaldlega: Ihaldsemi. Þetta eru vissulega hörð orð um okkar virðu- legu deild. Engu að síður sönn sem best má sjá endurspeglast af minnkandi áhuga nemenda á náminu. Stúdentum fer fækkandi frá ári til árs og ef menn telja ástæðuna vera lækkandi gengi húmanískra fræða eru þeir svo sannarlega á villigötum. Inn í íslenskar bókmenntir þarf að hleypa fleiri nýjum stundakennurum (helst þyrfti vitanlega að fjölga stöðugildum) og senda okkar ágætu Iærifeður í rannsóknarleyfi til að kynna sér nýjustu stefnur og strauma. Helst á skólabekk í háskóla erlendis! Við Háskóla íslands ættu að gilda sömu regl- ur og við háskóla erlendis; að kennarar sanni hæfni sína, ekki bara við fyrstu starfsumsókn, heldur áfram með stöðugum framlögum til fræðanna. Þetta er einfaldlega spurning um líf og dauða fyrir fræðigrein eins og okkar. Og eins og stúdentar flestir vita (og skammast yfir á kaffistofunni) er lítið líf í deildinni okkar í dag. Svar mitt er því í stuttu máli þetta: Sú blóm- lega bókmenntaumræða sem á sér stað á okkar dögum hefur ekki náð inn í Islensk fræði og því er prófessor Sveinn Skorri að orða þarna sök deildar sinnar, enda beinist hið háðska skop Guðmundar Andra, sem Sveinn Skorri talar um, einmitt að þeirri deild fyrst og fremst. Soffía Auður Birgisdóttir nemandi á Cand.mag. stigi í Islenskum bókmenntum. Mímir þakkar eftirtöldum aðilum veittan stuðning. Bókaútgáfan Iðunn Stofnun Árna Magnússonar Benedikt Gunnarsson myndlistarmaður Morgunblaðið Bókmenntastofnun Háskóla íslands Seðlabanki íslands 9

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.