Mímir - 01.06.1989, Síða 12

Mímir - 01.06.1989, Síða 12
Og gagnrýnandinn á að vera heill: „a man with convictions and principles, and of knowledge and experience of life.“9 Biður textinn ekki einfaldlega um skilning eins og breyskur maður meðbræður sína? Sumt er auðvitað hægara sagt en gert. Ég sný mér að ógnvaldinum Dracula. III Dracula eftir Bram Stoker kom út árið 1897. Verkið fyllir flokk gotneskra sagna og ber helstu einkenni þeirra. Fyrst ber að nefna ótt- ann og hryllinginn en þrjú önnur atriði hafa verið nefnd sem túlkendur hafa viljað finna í þessum verkum: öryggisleysi, jafnvel ofsóknar- kennd, uppgang hins ósiðmenntaða á kostnað hins siðmenntaða og ögrandi nærveru forboðs- ins. Flugmyndir manna á 19. öld um sjálfa sig og mörk þekkingar sinnar breyttust svo um mun- aði og eru þær sýnilegar í gotnesku skáldsög- unni: Það er á þessu tímaskeiði sem arfleifð merkingarmynstra glatast, með þeim af- leiðingum að hugmyndir um „raunveru- leika“, „mannlega náttúru“ og „sam- semd“ leysast upp. Tengslin við endan- lega merkingu rofna, „markmiðin“ týnast og skilja leiðir án markmiða eftir.10 Sögurnar eru afhjúpandi og höfundar þeirra hafna fagurfræði raunsæisins. Hið ímyndaða er jafn rétt og hið raunverulega, eða öllu heldur: skilin á milli hins ímyndaða og hins raunveru- lega eru dregin í efa. Þar af leiðandi verða önnur atriði einkennandi fyrir gotneskar sögur; óvissa, hik, margræðni ogefi. Tengsl gotneskra sagna við módernisma og samtímabókmenntir eru ekki sprottin af tilviljun. Dracula er flókið verk í byggingu og marg- ræðni þess er ekki síst falin í forminu. Hér er á ferðinni fjölradda skáldsaga, mörgum sjónar- hornum er fléttað saman og þess vegna fer eng- inn með endanlegt vald, hvorki höfundur né 12

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.