Mímir - 01.06.1989, Side 13
„söguhetja“. Verkið samanstendur af dagbók-
arbrotum nokkurra sögupersóna og kemur höf-
undurinn því óbeint fram. Með þessari frá-
sagnaraðferð gerir höfundurinn ekki eingöngu
ótrúleg atriði sennileg, heldur einnig túlkend-
um færi á margvíslegri nálgun. En um hvað
fjallar Dracula?
Dracula greifi, blóðsuga frá Transylvaníu og
fulltrúi hins „ósiðmenntaða“, óræða og fram-
andi, er sú persóna sem ógnin stafar af. Hann
hefur lifað öld fram af öld í líki og ríki herra-
manns og er knúinn áfram af óstöðvandi kyn-
orku og keppnisgleði. Það er hann sem storkar
hinu skynsamlega og tæknivædda vestri, Bret-
landi Viktoríutímans, hvorttveggja sem land-
nemi og óvenjuleg kynferðisvera. Aðrar
karlpersónur sögunnar, þeir Jonathan Harker
málafærslumaður, Arthur Holmwood aðals-
maður, geðlæknirinn Dr. Seward og hollenski
bjargvætturinn Van Helsing (lærifaðir
Sewards) eru fulltrúar vestursins og standa
vörð um þess heilögu kýr: feðraveldið, mosa-
gróið hlutskipti konunnar, forboð og bælingu.
Sem einn hluti bandalagsins hefur bandaríski
ævintýramaðurinn Quincey Morris nokkra sér-
stöðu. Hann er frjálslyndari og óheflaðri —
kannski „eðlilegri“ — en hinir viktoríönsku
kynbræður hans, enda annarrar og frjálslyndari
þjóðar.
Einn sjúklinga Sewards, Renfield að nafni,
kemur einnig nokkuð við sögu, en hann er á
skjön við rammgert skipulag Viktoríutímans —
deilir „siðleysi“ vellíðunarlögmálsins með
Morris en siðleysi af ætt brjálseminnar með
vampírunum.
Af kvenpersónum sögunnar skal fyrst nefna
þrjár ónefndar kvenvampírur í kastala
Dracula. Þó kyrrsettar séu í Transylvaníu eru
þær áhrifavaldar sem ógnandi kynferðisverur
og ásamt Dracula fulltrúar hins ósiðmenntaða.
Hinar tvær kvenpersónur sögunnar eru aftur á
móti búsettar innan marka siðmenningarinnar,
þær Lucy Westenra og Mina Murray (síðar
Harker), en hvorug fer þó varhluta af endi-
mörkum hennar.
Kvenvampírunum kynnist Jonathan Harker
þegar hann er sendur til Transylvaníu á fund
Dracula í kastala hans, að hann heldur í ósköp
venjulegum viðskiptaerindum. Þrátt fyrir for-
tölur samlanda greifans og sögusagnir þeirra
um óeðli Dracula gerist hann gestur hans.
Drungalegt andrúmsloft staðarins vekur óhug
og gefur jafnframt forsmekk að því sem koma
skal. Kastalinn er líkastur grafhýsi og fyrr en
varir verður Harker ljóst að hann er ekki lengur
gestur Dracula og ráðgjafi um kaupsýslu og
fjárfestingar á Vesturlöndum, heldur fangi
hans.
Kvenvampírurnar hrífast af gestinum (og
hann af þeim) og reyna að tæla hann til fylgis
við sig — veita honum þann kynferðislega unað
sem þær þrífast á sjálfar. En Harker tilheyrir
Dracula sem kemur honum til bjargar á síðustu
stundu. Kvenvampírurnar fá hálfkæft barn í
staðinn og opinbera „gagneðli“ sitt þegar þær
rífa það í sig á meðan greifinn sigar úlfum á
móður þess. Harker kemst undan við illan leik
og tekst að sleppa úr kastalanum. En Dracula
nær til Englands á undan honum og hryllilegri
atburðarás er hrundið af stað.
Dracula hyggst leggja lýðinn að fótum sér.
Hann bítur og sýgur konur, velur fórnarlömb
sín af kostgæfni og gerir þær kyn af sínu kyni til
að öðlast á endanum heildaryfirráð. En áform-
ið misheppnast. Karlpersónur verksins, að
undanskildum Renfield, mynda með sér
bandalag og Van Helsing, „hinn góði faðir“, er
höfuð þess. Með hjálp Renfields (sem Dracula
drepur með viðurstyggilegum hætti fyrir vikið)
tekst þeim með naumindum að bjarga Mínu (þá
konu Harkers) frá hlutskipti vampírunnar en
Lucy er ekki jafn gæfusöm. Eftir að Dracula
hefur sent hana á eilífa blóðþyrsta og lostafulla
næturgöngu, sér læknirinn og bjargvætturinn
Van Helsing engin önnur ráð en að „eyða“
henni og kemur það í hlut Holmwoods, heit-
manns hennar, að reka hana í gegn. Hafði hún
tekið upp háttu þeirra kastalakvenna, að lokka
börn á sinn fund og sjúga úr þeim blóðið. Hefði
leiðsagnar bjargvættarins og úrskurðar hans
ekki notið við, hefðu örlög þeirra orðið þau
sömu og örlög barnsins í kastala Dracula. Og
heitmaðurinn hefði gefist henni á vald.
Með hjálp Mínu sem er „meðvituð“ kona
(ritari sem tekur upp hjá sjálfri sér að fylgjast
með skipa- og lestaferðum), eltir karlahópur-
inn Dracula land úr landi. Ævintýramaðurinn
Morris fórnar lífi sínu en með sameiginlegu
átaki tekst að eyða ógnvaldinum. Við það fellur
allt í samt horf. Mínu og Harker fæðist svein-
barn og ber það skírnarnafn hins látna. Og
þrátt fyrir margræðni og vísun verksins til sam-
13