Mímir - 01.06.1989, Qupperneq 35
á milli. Neðan úr loftinu héngu nokkrar flugvél-
ar sem voru flott málaðar og ekkert líkar mód-
elflugvélunum hans sem voru allar útklístraðar
í þurru lími. Amma notaði sennilega minna lím
þótt hann skildi ekki hvernig hún færi að því.
Hann þurfti alltaf að nota allt límið úr túbunni
sem fylgdi, og stundum var það ekki nóg.
Kennarinn hafði sagt að hann ætti að hætta
þessum lygum, að allir vissu að það væru bara
litlir strákar og gamlir karlar, sem gengnir væru
í barndóm, sem settu saman módel. Og hann
hafði ekki þorað að segja neitt, hafði bara star-
að niður í borðið sitt og roðnað.
— „Límið verður orðið þurrt eftir kaffi“,
sagði amma og lagði flugvélina á lítið borð við
gluggann, ofan á teikningarnar af seglskipinu.
Svo gekk hún að dyrunum og benti Kubbi að
fara út.
— „Má ég vera hérna og skoða skipin“,
spurði hann, þótt hann vissi fyrirfram hvert
svarið yrði.
— „Nei“, sagði amma ákveðin og benti hon-
um aftur að fara út. Hann fór út úr herberginu
og amma á eftir. Hún lokaði hurðinni og læsti
og setti lykilinn í svuntuvasann. Svo var hún
horfin fram í eldhús en hann stóð einn eftir og
gat ekkert gert annað en að mæna á dýrðina í
gegnum skráargatið.
Eftir nokkra stund gafst hann upp, fór að
næstu dyrum og ætlaði að ganga beint inn en
það var læst. Hann varð svo undrandi að hann
vissi ekki hvort hann ætti að banka eða hverfa
frá. Þá heyrði hann umgang fyrir innan og síðan
var hurðin opnuð. Jói stóð í dyrunum og inni á
sófanum sátu Stína og einhver stór strákur sem
hann hafði aldrei séð áður. Hann varð skyndi-
lega feiminn. Allt hafði einhvern veginn breyst
frá því í fyrra. Bílabrautin var horfin og í stað
Mikka mús plakatsins var komið plakat af
KISS, hljómsveit með ógeðslegum köllum sem
ráku út úr sér tunguna framan í hann. Stóra
górillan var farin úr horninu og flottar græjur
komnar í staðinn. Og Jói, hann ætlaði ekki að
þekkja Jóa. Hann var kominn með hvítt hár
sem stóð allt út í loftið og svo var hann með
bólur í andlitinu eins og Stína. Hálsinn var líka
einkennilega langur. Kubbur velti því fyrir sér
hvort Jói væri kominn með einhvern sjaldgæfan
sjúkdóm en þorði ekki að spyrja.
— „Hæ“, sagði hann feimnislega. „Viltu
koma að leika?“ Hann sá eftir orðunum um leið
og hann hafði sagt þau, það var svo barnalegt
að tala svona. Þau sprungu líka öll þrjú úr
hlátri.
— „Ekki hleypa pöddunni inn“, sagði Stína
við Jóa.
— „Því miður, elskan“, sagði ókunnugi
strákurinn við Kubb. „Barnaheimilið er lokað í
dag.“
Svo hlógu þau enn meira og Jói skellti hurð-
inni á nefið á honum. Hláturinn heyrðist áfram
gegnum hurðina.
Kubb langaði til að gráta en Arnold
Schwarzenegger grét ekki þegar honum leið
illa, hann klemmdi bara saman varirnar og fór
svo og fékk sér bjór í ískápnum. Kubbur
klemmdi saman varirnar en ákvað að sleppa
bjórnum.
Þá kom afi út af gestaklósettinu.
— „Þarna ertu Kubbur“, sagði hann þegar
hann sá Kubb. „Ætlaðirðu ekki að heilsa upp á
afa og alla í stofunni?“
— „Jú“, sagði Kubur og varð að hætta að
klemma varirnar til að geta talað. „Eg var bara
ekki búinn að því. Ég þurfti að líma flugvélina
mína saman fyrst.“
Afi kom og tók í höndina á honum og leiddi
hann inn í stofu. Fullorðna fólkið sat í kringum
sófaborðið og drakk kaffi úr mávastellinu
hennar ömmu. Sumir sátu í sófanum eða stofu-
stólunum, en aðrir höfðu náð sér í borðstofu-
stóla. Jóna frænka og einhver kona sátu svolítið
frá hinum í útsaumuðu stólunum sem hann
mátti aldrei setjast í, jafnvel þótt hann væri ekki
að borða ís. Þær reyktu svo mikið að fíni Kjarv-
alinn hans afa sem hékk fyrir ofan þær sást varla
fyrir reyknum. Aldrei ætlaði hann að fara að
reykja, þá gæti hann dáið.
Nú var bróðir hans pabba búinn að sjá hann.
Þá byrjuðu asnalegu spurningarnar.
— „Ertu ekki farinn að æfa fótbolta, strák-
ur,“ spurði hann og glotti svo sást í gulljaxlinn.
Kubbur hristi hausinn. Jónas talaði aldrei um
neitt annað en fótbolta. Þegar konan hans fór
frá honum hafði pabbi hlegið og sagt júnætit
eitt, Ólöf núll.
— „Mikið ertu orðinn stór, Kubbur“, sagði
Kolbrún frænka. „Þú ferð bráðum að ná pabba
þínum.“
Kubbur brosti kurteislega til hennar.
— „Hann sver sig í föðurættina, verður hár
35