Mímir - 01.06.1989, Page 37
— „í annað sinn Inga í bæinn gekk
og gekk framhjá þessum sama bekk.
Hún leit á bekkinn og mundi það,
að hún þurfti bráðum að fara í bað,
því hún átti að fara að giftast
honum Ingvari elskunni.
Já, það var sko betra en að pipra.“
Þá breyttist hóstakastið hennar Jónu frænku
í hláturssprengingu og hann vissi að þá færu
allir að hlæja, það var ekki hægt annað. Þegar
hún andaði að sér heyrðist blísturshljóð eins og
þegar blásið er í ýlustrá; og allir sprungu og
hlógu og hlógu og grétu svolítið með. Lang-
amma hló líka þar til hún fékk hóstakast og
varð rauð í framan af áreynslu. Hann horfði
spenntur á hana en hún missti ekki út úr sér
tennurnar. Hann hafði sjálfur hlegið svolítið
fyrst en hætt því fljótlega því hann var móðgað-
ur og þá átti hann ekki að hlæja. En fólkið hélt
áfram að hlæja. Þá losaði hann sig úr fanginu á
afa og hljóp út úr stofunni, inn í svefnherbergi
afa og ömmu og skellti hurðinni eins fast og
hann gat. Þá myndu allir skilja að hann væri
móðgaður. Svo opnaði hann fataskápinn og
þreifaði á gólfinu. Fyrst fann hann bara ryk en
svo rak hann höndina í eitthvað hart. Það voru
bækurnar sem afi hafði náð í upp á háaloft fyrir
hann. Hann valdi eina Tarzanbók og settist í
hornið milli skápsins og gluggans. Þar fannst
honum gott að sitja. Hér gat hann verið í friði
fyrir fólki sem kunni enga mannasiði.
Hann var Tarzan, konungur apanna, sem
hjálpaði svertingjunum í baráttunni gegn
vondu hvítu mönnunum sem hugsuðu bara um
gull. Hann var búinn að drepa alla vondu kall-
ana nema foringjanna og nú hittust þeir á gild-
um trjábol sem lá yfir ána. Undir biðu krókódíl-
ar eftir gómsætri máltíð. Þetta var bardagi upp
á líf og dauða. Vondi kallinn hafði náð honum
undir sig og var að reyna að kyrkja hann. Kubbi
tókst að sparka í magann á kallinum svo hann
missti jafnvægið og féll út af trjábolnum með
öskri. Hann datt beint í ginið á krókódílunum
sem kjömmsuðu á honum svo blóðið spýttist í
allar áttir. Kubbur stóð upp og rak upp sigur-
öskrið svo glumdi við í öllum skóginum. Svo
sveiflaði hann sér inn í frumskóginn í vafnings-
viðnum sem slitnaði aldrei. Hann velti því fyrir
sér hvort Tarzan væri sterkari en Arnold
Schwarzenegger.
J.
dj'jJ jJÍJÍjJíJL'JJJ
JJdJ^iJJÍJúJÍJ
QJjJJJi Mjj 3lj3
Happdrætti Háskólans býður nú
langhæstu vinninga á (slandi: 5 milljónir
sem gefa 25 milljónir á tromp og
45 milljónir á númerið allt. Sannkölluð
auðæfi! En stóru vinningarnir eru fleiri
þvi að milljón króna vinningar eru alls
108. Heildarupphæð til vinningshafa er
rúmur milljarður og áttahundruð milljónir.
HAPPDRÆTTI
HASKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
J 'p r
r ,
37