Mímir - 01.06.1989, Síða 57
Starfsannáll Mímis 1987-1988
Stjórn Mímis þetta árið var eingöngu skipuð
konum og það sama má segja um ritnefndina.
Stjórnarkonur voru: Margrét Guðmundsdóttir
formaður (forkona?), Svandís Svavarsdóttir
gjaldkeri, Guðrún Þ. Gunnarsdóttir ritari og
María Þorgeirsdóttir meðstjórnandi. Fulltrúi
ritnefndar í stjórn var Hrönn Hilmarsdóttir.
Starfsemi Mímisliða var margvísleg þetta ár-
ið og lesendum Mímis til hægðarauka verður
henni skipt niður í nokkra þætti.
Af ferðamálum: Þann 24. október var haldið
á Njáluslóðir undir forystu Sigurðar Hróarson-
ar. Fjölmenni mikið var í ferðinni og munaði
þar mestu um góða þátttöku erlendra stúdenta.
Heiðursgestur var Kristján Árnason og sá hann
um söngþáttinn af miklum skörungsskap.
Gjörningaþoka spillti útsýni og olli villu og
svíma en helstu st-aðir voru samt heimsóttir þótt
Bergþórshvoll væri týndur um tíma.
Seinni ferð varð að fella niður vegna dræmr-
ar þátttöku og var það mjög miður.
Af útgáfumálum: Símaskrá Mímis kom að
vanda út og Ratatoskur leit tvisvar dagsins ljós.
Mímir, blað íslenskunema, kom því miður ekki
út og ollu því ýmsar ástæður sem ekki verða
raktar hér.
Af skemmtunum: Þar ber fyrst að telja Jóla-
rannsóknaræfinguna sem haldin var 12. desem-
ber í Risinu. Allur undirbúningur var í höndum
sagnfræðinema en stjórnarmeyjar sáu um
miðasölu á hátíðina og var fjölmenni mikið.
Ræðumaður var Helgi Þorláksson.
Þorrablótið var haldið löngu eftir að þorra-
FÉLAGSSTOFNUM STÚDENTA
V/HRINGBRAUT, 101 REYKJAVÍK
SlMI 1 6482 - Kennitala 5401 69-6249
matur var uppurinn hjá veitingamönnum bæj-
arins eða 19. mars. Heiðursgestur var Ásta
Svavarsdóttir og var gerður góður rómur að
ræðu hennar. Matargestir voru um þrjátíu en
fleiri bættust í hópinn er á leið.
Af andlegheitum: í nóvember voru þrír rit-
höfundar fengnir til að koma við í hádeginu á
mánudögum og lesa upp úr verkum sínum og
kæta þar með Mímisliða í vaxandi skammdegi.
Rithöfundarnir voru þau Pétur Gunnarsson,
Svava Jakobsdóttir og Nína Björk Árnadóttir.
Mæltist þessi nýbreytni ágætlega fyrir.
Af öðru: Stjórn Mímis þótti sem deyfð og
drungi lægi yfir íslenskudeildinni og var ákveð-
ið að stinga á kýlinu. Kraftakvöld með alvar-
legu ívafi var fyrsta aðgerðin og var það haldið í
Stúdentakjallaranum 19. febrúar. Þar komu
saman Mímisliðar og tveir kennarar, þeir Dav-
íð Erlingsson og Eiríkur Rögnvaldsson, og var
nám og námsskipulag rætt af miklum móð.
Gerjaðist þessi umræða svo næsta hálfa árið og
endaði í ráðstefnu í Brekkuskógi dagana 14. og
15. október. Þangað komu nemendur og kenn-
arar sem ræddu og mótuðu tillögur um leiðir til
þess að bæta námið og gera það markvissara.
Þessi helgi hefur þegar leitt til ýmissa breytinga
á B.A. náminu sem ekki verða tíundaðar hér og
tíminn mun leiða í ljós hvort til bóta hafi verið.
Af þessari upptalningu sést að Mímisliðar
eru síður en svo dauðir úr öllum æðum og er
það vel.
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, ritari.
bók/íklð. /túdei\ta«
Félagsstofnun stúdenta Háskóla íslands
Símar 24555 27822
57