Tímarit lögfræðinga - 01.08.2024, Page 89
235
Arnljótur Ástvaldsson
innan félagsins, með þeim takmörkunum sem fyrr greinir.115 Af
þessu leiðir einnig að sú staða kann að vera uppi við fullnustu
aðfararhæfrar dómkröfu á hendur deild að ekki sé tækt að benda á
eignir til þess að gera fjárnám í, sökum þess að fjármunir eru ekki
lengur í umráðum Deildarinnar.116 Til viðbótar má árétta það sem
áður hefur fram komið, að þrátt fyrir að ársreikningur sé jafnan
mikilvægt gagn í félagarétti þá eru upplýsingar í ársreikningi
ekki lagðar gagnrýnislaust til grundvallar í öllum tilvikum, t.a.m.
ef sýnt er fram á að þær séu í ósamræmi við fjárhagsstöðu félags
við tiltekið tímamark.
5.3.2.2 Um boðvald: Getur deild innan félags verið undanskilin boðvaldi
félags?
Hér að framan hafa verið færð rök fyrir því að viss vandkvæði
kunni að geta fylgt því að leggja umráð fjármuna samkvæmt
ársreikningi til grundvallar niðurstöðu um hvort deild njóti
fjárhagslegs sjálfstæðis. Hvað varðar það atriði að lúta ekki
115 Áréttað skal að þessi ályktun er sett fram út frá sjónarhorni
félagaréttar. Vera kann að umræddar ráðstafanir hafi tiltekin réttaráhrif
samkvæmt reglum annarra réttarsviða.
116 Hér er gengið út frá því að Deildin geti haft stöðu gerðarþola í
skilningi fullnusturéttar við framkvæmd aðfarar á þeim grundvelli að
dómur hafi (samkvæmt málavöxtum þess dæmis sem hér er fjallað um)
viðurkennt aðildarhæfi, og þar með rétthæfi, deildarinnar. Ef fjárnámi
yrði lokið án árangurs væri komin upp sambærileg staða og í H 1997:862
(Handknattleiksdeild Fylkis), þ.e. að gert hefði verið árangurslaust fjárnám
hjá deild innan almenns (íþrótta)félags. Í umfjöllun um þann dóm í
kafla 3.3.4.3 kom fram að héraðsdómur, sem staðfestur var með vísan
til forsendna af Hæstarétti, hafnaði beiðni um gjaldþrotaskipti á búi
deildar, sem byggð var á árangurslausu fjárnámi, á þeim grundvelli að
deildin væri hvorki stofnun né félag, þ.e. ekki aðili sem íslenskur réttur
viðurkenndi að gæti átt réttindi eða borið skyldur. Í því dæmi sem
fjallað er um hér liggur hins vegar fyrir að dómstóll hefur viðurkennt
að Deildin geti átt réttindi og borið skyldur. Ekki verður hér frekar
fjallað um hvort skilyrði standi til þess samkvæmt fullnustu og
skuldaskilarétti að fjárnám og/eða gjaldþrotaskipti nái fram að ganga
í tilviki deildar, sem ekki hefur stöðu félags en hefur allt að einu verið
talin aðildarhæf af dómstólum. Slíkt er enda viðfangsefni viðkomandi
réttarsviða.