Ný menning - 15.01.1946, Page 2
2
NÝ MENNING
Vissulega má hér kenna málgagn
Reykjavíkuríhaldsins, sem sendi le-
gáta sína á nazistaráðstefnurnar í
Liibeck, til þess að þeir kæmu heim
síðan og rituðu í Morgunblaðið lof-
gerð um ríki Hitlers.
Hver kannast hér ekki við blaðið,
sem árum saman talaði máli Franco-
fasistanna á Spáni, og nefndi þá með
reverensíu ,,þjóðernissinna“ og því-
líkum gælunöfnum, á meðan þeir
voru að brjóta niður lýðveldið með
aðstoð Hitlers og Mússolínis, á með-
an herskip nazista skutu á Almería
og flugvélar þeirra gereyddu Guern-
ica? („Það vildi ég, að hann Franco
færi nú að sigra,“ andvarpaði þá einn
af guðsmönnum íhaldsburgeisanna,
einn af þeirra æðstu prestum, sem nú
hefur að vísu verið gerður að for-
manni í yfirstjórn einnar helztu menn-
ingarstofnunar þjóðarinnar).
Nazistaíortíð Morgunblaðsins
Síðan straumhvörfin urðu í styrj-
öldinni og Hitler tók að ganga illa,
hefur Morgunblaðið þótzt vera á móti
nazismanum, sem það hrósaði áður af
mestri hrifningu. Það er óhrekjanleg
staðreynd, að Morgunblaðið var hálf-
gildings nazistamálgagn fram að
Rússlandsstyrjöldinni eða öllu heldur
fram til þess tíma, er undanhald naz-
istahrejanna hófst í Rússlandi. Þetta
vita allir Reykvíkingar, sem kynntust
Morgunblaðinu á þeim árum. Fyrir
hina, sem ekki sáu blaðið þá, skulu
síðar í þessu hefti birtar orðréttar
tilvitnanir úr Morgunblaðinu frá þeim
tímum, til þess að enginn skuli þurfa
að ímynda sér, að hér sé farið með
einhverjar ýkjur.
Að vísu hefði þetta mátt kyrrt
liggja, ef andstyggð sú á nazisman-
um, sem Valtýr ritstjóri og félagar
hans hafa verið að flíka að undan-
förnu, hefði reynzt eitthvað annað
en uppgerð. En svo hefur ekki reynzt.
MorgunblaSið reynir að af-
saka nazistavinsemd sína áð-
ur íyrr
Morgunblaðíð hefur reyndar öðru
hverju verið að afsaka sig með því,
að þá hafi menn ekki vitað um raun-
verulegt eðli nazismans, ekki vitað
um fangabúðirnar o. s. frv. Þeir menn
hér á landi, sem verið hafi nazisman-
um hliðhollir, hefðu ekki verið það,
ef þeir hefðu vitað um málavexti. En
þessi afsökun Morgunblaðsins stenzt
ekki. Þegar á valdatökuári nazista í
Þýzkalandi, 1933, skýrðu íslenzkir
kommúnistar ftarlega og skilmerki-
lega frá stjórnarháttum nazista. Þeir
sögðu sannleikann um ríkisþinghúss-
brennuna í Berlín, á meðan Morgun-
blaðið eyddi dálkum sínum í það að
reyna að þvo nazista sýkna af þessum
glæp og lapti úpp lygasögu Görings
um það að kommúnistar hefðu kveikt
í þinghúsinu. Morgunblaðið gerðist
meira að segja svo ósvífið að gefa í
skyn, að kommúnistar hér ætluðu sér
að láta loga við Austurvöll á sama
hátt og þýzkir kommúnistar hefðu
látið loga í Berlín. Nú situr Göring,
fyrrverandi heimildarmaður Mogg-
ans, ákærður fyrir dómstólinum í
Núrnberg, og þar er nú verið að leiða
í ljós allan sannleikann um það hvern-
ig hann undirbjó og lét framkvæma
þinghússbrennuna til þess að geta
hafið ofsóknir á hendur öllum and-
stæðingum nazismans.
Morgunblaðinu og íhaldsburgeis-
um Reykjavíkur stoðar ekki að af-
saka nazistavinsemd sína áður fyrr
með því, að þeir hafi ekki vitað um
fangabúðirnar o. s. frv. Þegar á árinu
1933 og æ síðan hafa Verkalýðs-
blaðið, Þjóðviljinn, Réttur og önnur
málgögn Kommúnistaflokksins og síð-
ar Sósíalistaflokksins skýrt skilmerki-
lega frá framferði nazista í fangabúð-
unum. Skömmu eftir valdatöku naz-
ista lét Kommúnistaflokkur íslands t.
d. snúa á íslenzku og gefa út bókina
„Faðirvorið og fleiri sögur úr þriðja
ríkinu“, þar sem fangabúðavistinni
var lýst á svipaðan hátt og nú er gert
í dagblöðum um víða veröld, — jafn-
vel líka Morgunblaðinu, af því að það
þorir nú ekki annað. En þá urðu
Morgunblaðsritstjórarnir hinir reið-
ustu og hrópuðu hástöfum stórlega
hneykslaðir, að kommúnistar væru
hér að fara með lygi og óhróður um
erlenda ríkisstjórn, sem væri íslend-
ingum vinveitt. Vinskapur þessarar
ríkisstjórnar í garð íslendinga kom
reyndar síðar í Ijós, er hún sendi
hingað flugumenn og njósnara til að
undirbúa hernám Iandsins af nazista
hálfu.
MorgunblaðiS sams konar
nazistamálgagn og áSur
Morgunblaðið er vissulega enn
sams konar nazistamálgagn og það
hefur alltaf verið. Því að hver er naz-
isti, ef ekki sá, sem berst fyrir sömu
hugsjónum og nazistar og með ná-
kvæmlega sömu röksemdum? Naz-
istum var svo mikið áhugamál að út-
rýma sósíalismanum, að þeir sendu
hersveitir sínar til árásar á Ráðstjórn-
arríkin. Morgunblaðinu er svo mikið
áhugamál að útrýma sósíalismanum,
að það fyllir flesta lesmálsdálka sína
Rússlandsníði, þar sem það hefur
engar hersveitir að senda austur. Hins
vegar er því nær hver „röksemd
Morgunblaðsins í þéssari Rússlands-
styrjöld þess tekin svo að segja orð-
rétt upp úr þýzku nazistablöðunum.
Þarf nokkur að fara í grafgötur um
hinn andlega skyldleika þessara að-
iija?
Merktur hakakrossmaður
einn af fréttastjórum
Morgunblaðsins
Fullyrðingar Morgunblaðsins um
fráhvarf sitt frá nazismanum verða
ærið grunsamlegar og ósennilegar,