Ný menning - 15.01.1946, Síða 5

Ný menning - 15.01.1946, Síða 5
NÝ M.ENNING r> ferðalögum um landið hafi verið ýmsar hömlur á stríðsárunum. En það var ekkert sérstakt um Ráðstjórnar- ríkin. Slíkar hömlur voru á ferðalög- um um öll styrjaldarlönd. Jafnvel hér. á íslandi urðu menn um skeið að sýna sérstök vegabréf til þess að mega ferðast á sumum leiðum, og um ýmsa staði máttu íslendingar alis ekki ferð- ast í sínu eigin Iandi. 5. Lygm um tilgang skóla- gjaldanna A 665.—-666. bls. Lesbókarinnar má iesa margs konar falsanir Koestl- ers um mennta- og skólamál Ráð- stjórnarríkjanna. Hann skýrir frá því, sem rétt er, að árið 1940 hafi verið lögleidd skólagjöld við æðri skóla í Ráðstjórnarrík junum. Áður var það svo, að nemendur við þessa sem aðra skóla Ráðstjórn- arríkjanna hlutu laun og framfæri fyrir að nema. í Ráðstjórnarríkjunum er ekki litið á námið sem ölmusumál, heldur sem vinnu, er beri að borga. Þetta skipulag olli nú því, að svo mik- ið aðstreymi varð að háskólunum, að ójafnvægi skapaðist. Aðstreymið að iðnskólunum varð hlutfallslega minna en svo, að það fullnægði hinni hrað- vaxandi iðnaðarþróun landsins. Árið 1940 var orðinn talsverður skortur á iðnlærðum starfsmönnum, þar sem upp voru risin mörg hundruð nýrra verksmiðja, aflstöðva og ann- arra iðnaðarfyrirtækja. Til þess að bæta úr þessu og beina straumi skóla- nemenda meir til iðnskólanna, yoru árið 1940 ákveðin skclagjöld til æðri skóla, sem gátu þó engan vegin tal- izí há í landi, þar sem öllum mönnum er tryggð fullkomin atvinna, 150— 200 rúblur á ári við framhaldsskóla og 300—500 rúblur á ári við há- skóla, að því er Koestler segir. Þessi skólagjöld ná þó ekki til nem- enda, sem hafa sérstaka hæfileika til háskólanáms. Slíkir nemendur fá eftir sem áður námskaup, og fyrir þá er greiddur allur náms- og framfærslu- kostnaður. Getur Morgunblaðið stað- hæft, að svo vel sé gert við afburða- nemendur á íslandi? Tilgangur skólagjaldanna við æðri skóla var auðvitað ekki, eins og Kosstler segir, að útiloka nemandur úr verkamannasíétt frá námi, heldnr að skapa það jafnvægi í skiptingu nemenda í skólana, sem þjóðarbú- skapurinn krafðist. Og við alla aðra skóla en hina æðri eru lögin um náms- kaup enn í gilái, nemandinn fær ó- keypis fæði, bækur og önnur náms- tæki og auk þess mánaðarpeninga, svo að hann er með öllu éháður f jár- hagsstuðningi frá ættingjum eða öðr- um. Getur Morgunblaðið bent á svip- aðan viðurgerning við nemendur á íslandi ? Koestler segir, að ráðstjórnin stefni að því að gera menntun einkarétt ein- hverrar yfirráðastéttar (sem er raun- ar alls ekki til í Ráðstjórnarríkjun- um) og útiloka verkamenn frá skól- um. Hann viðurkennir þó', að árið 1938 hafi 33,9% af nemenaum há- skólanna í Ráðstjórnarríkjunum ve?- ið börn verkamanna, hvort sem hann fer rétt með töluna eða ekki. Til sam- anburðar má geta þess, að börn verka manna vo.ru aðeins 3 % af nemendum við Uppsalaháskóla í Svíþjóð. Samkvæmí opinherdm skýrslnm Ráðstjómarrskjarsna voru 97% af nemendum á háskólum þar í Iandi 1938 börn vcrkamanna cg starfs- manna og hænda. (Education in the USSR, published by „Soviet News“ 1945). Og Koestler heldur því fram, að hinu vinnandi fólki sé meinað að njóta menntunar í Ráðstjórnarríkjun- um! Á íslandi hefur verið takmarkað- ur aðgángur fátækra unglinga að menntaskólunum (og þar með að há- skólanámi), — ekki með beinum skólagjöldum, heldur með því, að stjórnarvöldin tregðast við að koma upp nægilegu húsnæði til skólahalds og með óhæíilega ströngum inntöku- skilyrðum í skólana, þannig að ein- ungis börn efnaðra foreldra geta að jafnaði greitt þá aukakennslu, sem til þess þarf að komast í skólana og gegn um þá, þó að nú sé verið að kippa þessu í lag fyrir íorgöngu Sósr íalistaflokksins. 6. Lygin um hungursneyðina í Úkraínu 1932—33 Koestler gerir sér tíðrætt um það, sem hann kallar hungursneyðina í Úkraínu veíurinn 1932—33 (Les- bók, 658.—659. bls.). í þessum lýs- ingum hans er ekkert nýtt. Við höf- um lesið sams konar lýsingar á hung- ursneyðinni í Rússlandi í hverjum ár- gangi Morgunblaðsins síðasta aldar- fjórðunginn. Sannleikskornið, sem Koestler hagnýtir sér hér og falsar á þennan hátt, er það, að um þetta leyti varð uppskerubrestur í ýmsum héruð- um, og þar við bættust ýmsir erfið- leikar vegna þess, að samyrkjuhreyf- ingin var ekki enn komin á fastan grundvöll. Siórbændur margir drápu búpening sinn, brenndu eða íaiu kornið (þetta gerðu stórhændur, en ekki bændur yfirleitt, eins og Koestler staðhæfir, og tilgangur stórbænda með þessu var að spiila fyrir sam- yrkjuhreyfingunni). Sænski rithöfundurinn Gustav Jo- hannsson, sem var staddur í Ráð- stjórnarríkjunum ásamt fleiri Svíum á þessu erfiðleikalímabili, ritar um þetta: „Við gátum áu nokkurrar hindr- acar kynnt okkur erfiðleika þá, sem áítu sér stað í sumum sveitahéruðum vegna skemmdarstarfsemi stórbænda. Eg þekkti marga sænska verkamenn, sem ferðuðust til hinna erfiðlega stæðu úkraínsku bæja, sem Koestler staðhæfir, að enginn hafi mátt heim- sækja. Þessir verkamenn gátu skýrt frá matvælaeklu, skorti, miklum erf-

x

Ný menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný menning
https://timarit.is/publication/1953

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.