Ný menning - 15.01.1946, Page 10

Ný menning - 15.01.1946, Page 10
10 N Ý M E N N I N G Aðcdaðsetur þjóðíulltrúaráSs Ráðstjórnaríkjanna í Moskvu leiðsluhátta Sovétríkjanna, er sjálfseign' asíu — Túrkmena, Úsbeka, Tadsíca, Kasaka og Kírgísa. Síðast voru sam- bandslýðveldi stofnuð á vesturlandamær um ríkisins árið 1940 — Karelía, Eist- land, Lettland, Litúva og Moldavía. Onnur minni sjálfstjórnarlýðveldi eru Krím og lýðveldi Yolgu-Tatara, Búrjat- mongólía, Mordvinía og Jakútía. Þá eru innan þessara lýðvelda um tuttugu „sj álfstj órnarumdæmi“ og „þ j óðasvæði“ svo sem umdæmi Gyðinga í Bíróbidsjan, Tsjúktsa, — hinnar frumstæðu þjóðar lengst í norðaustri, og Ojróta, er búa við rætur Altajfjalla. Þessi sjálfstjórnar- svæði gera hinum fámennu og smáu þjóðum fært að nota sína eigin tungu í skólum, leikhúsum og á almannamótum, varðveita þjóðlega siði og hafa embætt- ismenn af eigin þjóðerni. Þar sem þjóð- ernisminnihluti býr á sérstöku svæði, en er í annan stað of fámennur til þess að vera „sjálfstjórnarumdæmi“, getur hann myndað „þjóðarhérað“, ef óskað er, og kosið sitt eigið ráð. Það eru allmargar þúsundir þess konar „þjóðarráða“ í ýmsum hlutum Sovétríkjanna. Grundvallarlögin 1918 Stjórnarskráin 1936 Þegar Rússneska lýðveldið var stofn- að, var samin stjórnarskrá eða grund- vallarlög fyrir hið nýja sósíaliska ríki; þar voru ákvæði um völd og skyldur hinna ýmsu stofnana og starfsmanna rík- isins, kosningar til ráðanna og önnur áþekk mál. Síðar tóku önnur sovétlýð- veldi stjórnarskrá þessa til fyrirmyndar. Hún öðlaðist gildi árið 1918 þegar borg- arastyrj öldin var að hefjast, og ýms at- riði hennar endurspegla það tímabil harðvítugra þjóðfélagsátaka, þá er hið unga sovétlýðveldi barðist fyrir lífi sínu. 1936, á næstsíðasta ári annarrar fimm ára áætlunarinnar, var ný stjórnarskrá samin af sérstakri nefnd undir forustu Stalíns, og er því á stundum kennd við hann. — Ýmsar mikilvægar breytingar voru þá gerðar á grundvallarlögunum frá 1918 og stjórnarskrá hins nýstofn- aða sambands frá 1923. Stjórnarsk.áin frá 1936 hefst á þess- um orðum: „Sovétríkin eru sósíalisk ríki verkamanna og bænda (1. gr.). „Efna- legur grundvöllur Sovétríkj anna er sós- ialiskur þjóðarbúskapur og sósíaliskur eignarréttur á framleiðslutækj um (4. grein). „í Sovétríkj unum birtist hin sós- íaliska eign ýmist sem ríkiseign (sam- eign alþjóðar) eða félagsleg sameign (eign einstakra samyrkjubúa eða sam- vinnufélaga)“ (5. grein). Þar segir enn fremur: „Auk hirma sósíalisku þjóðar- búskaparhátta, sem eru meginform fram- arbændum og handiðnaðarmönnum lög- um samkvæmt heimill einkaatvinnu- rekstur, ef hann byggist á vinnu þeirra sjálfra og ekki er hirtur arður af vinnu annarra manna“ (9. grein), og „per- sónulegur eignarréttur þegnanna á at- vinnutekjum þeirra og sparifé, íbúðar- húsi og öðruin heimilisþörfum, innan- stokksmunum og búsáhöldum, sem og erfðaréttur á persónulegri eign þegn- anna, er verndaður með lögum“ (10. grein). í síðari köflum stjórnarskrárinnar eru talin upp „grundvallarréttindi og

x

Ný menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný menning
https://timarit.is/publication/1953

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.