Ný menning - 15.01.1946, Side 16
]()
N Ý M E N N I N C
RÚSSAGRÝLAN
Örþriíaráð íhaldsmanna allra landa
Annáll Morgunblaðsins
Oft hljóta þeir lesendur íslenzku borg-
arablaðanna, sem ekki liafa sagt sig úr
lögum við alla skynsemi, að hugsa sem
svo: Miklir bölvaðir mannhundar geta
nú þessir Rússar verið, að aldrei skuli
vera hægt að segja eitt einasta almenni-
legt orð um þá! Hvernig getur annars
nærri tvö hundruð milljóna þjóð verið
svona andstyggileg í allan handa máta?
Og er ekki von að fólk spyrji. Dag eft-
ir dag, mánuð eftir mánuð, kyrjar kór
sovétníðsins sama sönginn: Rússar
gleypa lönd. Rússar mynda leppstjórnir.
Rússar banna kosningar. Rússar hefna
sín á nazistum. Rússar sleikja sig upp
við Þjóðverja. Rússar eru gráðugir í úr.
Og þannig endalaust.
Haldi menn, að hér sé verið að fara
með ýkjur, þá skulurn við bara athuga
Morgunblaðið í eina viku eða svo. Við
getum tekið t. d. vikuna frá 25. nóv. til
1. des. s.l. það er svo sem ekkert sérstak-
lega mögnuð rússavika, — líklega meira
að segja ein af þeim meinlausari.
Sunnudagur: Rússar ryðjast inn í
brezkar herbúðir í Berlín. — Rússar
svara ekki Persum. — ... Þar sem
stjórnenaurnir hafa tekið eftir græðgi
rússneskra hermanna í Berlín í að eign-
ast úr, hafa þeir ákveðið að láta fram-
leiða 400.000 úr á næsta ári.
Þriðjttdagur: „Viljum heldur deyja
en fara til Rússlands“. — ... Utanríkis-
ráðherrann sagðist „treysta á miskunn-
semi Rússa“, og gerðu menn óspart gys
að þeirn orðum hans . . .
Miðvikudagur: . . . Meðal nálega allra
íhaldsmanna og sumra annarra í Frakk-
landi, var hugurinn gagnvart Rússlandi
sambland ótta og fyrirlitningar . . .
Fimmtudagur: . . . Og ekki er neinn
vafi á, að eins hefði orðið í Júgóslavíu
og Búlgaríu, ef frjálsar kosningar hefðu
verið leyfðar í þessum löndum. En lepp-
stjórnir Rússa bönnuðu þær, í skjóli
rússnesks setuliðs . . .
Föstudagur: . . . Það er því engum
blöðum um það að fletta, að meðan
Rússar voru stöðugt að væla framan í
Vcsturveldin fyrir að „dekra við Þjóð-
verja", sleiktu þeir sig sjálfir upp við
þá af öllum mætti . . .
Laugardagur: . . . Griðasáttmálinn
frægi við nazistana var Stalín mikið ör-
yggi. I skjóli hans gleyptu Rússar
Eystrasaltslöndin . . .
Þannig og þaðan af verri er sovétann-
áll Morgunblaðsins og vanalega endur-
prentaður í Alþýðublaðinu og öðrunr
dúsubörnum rógburðarins. Óbrjálað
fólk spyr: Hvað hafa Ráðstjórnarríkin
gert á hluta íslenzku þjóðarinnar? Eitt-
hvað meira en lítið hlýtur það að vera,
fyrst jafnvel sjálf málgögn ríkisstjórn-
arinnar leyfa sér að viðhafa daglega
þenna fjandsamlega tón. En viti menn:
sé málið athugað nánar, kemur í ljós, að
enginn maður veit þess nokkurt dæmi,
að Rússar hafi gert Islendingúm hinn
minnsta miska, hvorki fyrr né síðar.
Ekki hafa þeir svo sem grandað sjálf-
stæði voru að fornu, eins og Norðmenn.
Ekki hafa þeir kúgað okkur um aldir,
eins og Danir. Ekki hafa þeir hernumið
land okkar með ofbeldi, eins og Bretar.
Ekki hafa þeir skotið niður skip okkar
og sjómenn, eins og Þjóðverjar. Ekki
hafa þeir ásælst land okkar til hernaðar-
stöðva, eins og Bandaríkjamenn. Hið
eina, sem menn vita til að þeir hafi við
okkur snert, er að viðurkenna fullveldi
okkar og skiptast á við okkur sendifull-
trúum.
Óritskoðaða fréttaskeytið
Nú verður hinn almenni lesandi hálfu
forvitnari: Hvers vegna láta þá hlöðin
svona? Ekki kemur þó til mála, að þau
hagi sér þannig að ástæðulausu?
Bíðum við! Við skulum halda ofurlít-
ið lengra áfram með annálinn.
Sunnudagur 2. des.: Oritskoðað frétta-
skeyti frá Moskva: — RÚSSNESKA
ÞJÓÐIN MATARLÍTIL OG KLÆÐA-
FÁ. (Fimrn dálka fyrirsögn á fremstu
síðu). Segir svo fyrst af matvælaskömmt-
un, styrjaldarþreytu og skorti á vörum,
fatnaði, farartækjum og húsnæði. Síðan
segir orðrétt: „En rússneska þjóðin hef-
ur trú á stjórnendum sínum og vilja
þeirra til að bæta úr. Það er greinileg
bjartsýni á framtíðina, einkum meðal
yngri kynslóðarinnar. Hver einasti Rússi
er mjög hrifinn af þjóð sinni og landi.
Þeir telja, að hvergi í heimi hafi aðrar
eins framfarir orðið síðastliðin 20 ár.“
Þá er kvartað yfir vanþekkingu Rússa á
umheiminum. Loks segir aftur orðrétt:
„Það vantar ekki, að gagnrýni er leyfð,
en sú gagnrýni beinist eingöngu gagn-
vart minni háttar embættismönnum.
Hins vegar virðist lotningin fyrir Stalín
og öðrum háttsettum embættismönnum
vera einlæg.“
Lesandinn sér strax, að hér skýtur
eitthvað skökku við. Hversu oft eru
borgarablöðin ekki búin að bölsótast út
af skeytaskoðun ráðstjórnarinnar — nú,
jæja, gott og vel: Þarna kemur þá loks-
ins „óritskoðað fréttaskeyti frá Moskvu“.
Morgunblaðið þenur sig þvert yfir síð-
una, en ekkert skeður annað en það, að
rógblaðra þess sjálfs springur um leið.
Því jafnvel þótt skeytið sé fjandsamlega
stílað, skin sannleikurinn í gegn: / Ráð-
stjórnarríkjunum býr œskuglöð fram-
faraþjóð, unnandi landi sínu, jrjáls í
gagnrýni sinni, cinlœg í trausti sínu á
hinum þrautreyndu leiðtogum. sósíalism-
ans.
Svo fór um sjóferð þá. Og nú spyr
lesandinn áfram: Hvers vegna getur
Morgunblaðið ekki um þessa staðreynd
í þver'síðufyrirsögn sinni? Hvers vegna
kýs það heldur að hælast um yfir því,
að þjóð, sem er nýkomin úr ægilegri
styrjöld, sé „malarlítil og klæðafá“?