Ný menning - 15.01.1946, Side 18

Ný menning - 15.01.1946, Side 18
18 NÝMENNING MÍFHAEL P. TARASOV: xttjghæíor verkcdýðslélagcmna í RáSstj órnarríkjunum Meðan ég dvaldist í Ameríku, var ég oft spurður um verkalýðsfélögin í Ráð- stjórnarríkjúnum. Spyrjendurnir voru af öllum stéttum, verkamenn, forustumenn k lýoofclaga, blaðamenn og ýmsir V i . Spu ningarnar beindust aðallega j kij; flagi félaganna, afstöðu þeirra til ríkisstj órnarinnar og þátttöku þeirra í styrj aldarrekstrinum o. fl. Það er eng- in leið áð svara öllum þessum spurning- um í stuttri blaðagrein, en ég mun leit- ast við áð gefa svör við nokkrum þeirra^ ef það gæti orðið til þess að auka skiln- ing lesandans á eðli verkalýðshreyfing- arinnar í Ráðstjórnarríkjunum. Ég vil þegar í upphafi taka það fram, að á hverjum einasta sjálfstæðum vinnu- stað í Ráðstjórnarríkjunum eru starf- andi verkalýðssamtök, án skylduþátt- töku. Innan „Verkalýðssambandsins“ eru 191 félag með 27 milljónum með- lima eða um 85% af öllum verkalýð Ráðstjórnarríkjanna. Þau 15%, sem ut- an við standa, eru að mestu verkamenn alveg nýkomnir, sem ekki hafa haft tækifæri til að átta sig á því, að þeim sé hagur í því að ganga í félögin. Félög- in eru skipulögð eftir vinnustöðvum, þannig að allir, frá hreingerningarkon- unni til framkvæmdastjórans á sama ’únnustað eru í einu og sama félagi. Meðan á stríðinu stóð, var vilanlega mikill hluti af meðlimum verkalýðsfé- laganna í hernum, en héldu sínum fullu réttindum innan félaganna án þess að greiða félagsgjöld herþjónustutímann. Ein af þeim spurningum, sem oftast voru lagðar fyrir mig var um kosningar í fé- lögunum. TrúncSarmaSur á vinnustöSvum Hver 20 manna vinnuhópur kýs sér trúnaðarmann, sem gætir hags- muna verkamanna, hefur á hendi margvísleg störf pg kemur fram fyrir þeirra hönd gagnvart aSal- samtökunum á vinnustaðnum. — TrúnaðarmaSur innheimtir félags- gjöldin, sem jafnan eru 1% af vinnulaununum. Grunneiningin í skipulagi verkalýðs- félaganna nefnist hópur. I honum eru ekki yfir 20 félagar. Með leynilegri kosningu kýs hópurinn sér trúnaðarmann. Trúnaðarmaðurinn gætir hagsmuna þessara félaga sinna og kemur fram fyrir þeirra hönd gagnvart aðalsamtökunum á vinnustaðnum. Hann tekur við kvörtunum þeirra, innheimtir félagsgj öldin og reynir að gera þá virka í félagsstarfinu. Hvers vegna er hópurinn ekki stærri en aðeins 20? Vegna þess að ef trún- aðarmaðurinn á að geta rækt starf sitt nægilega vel, kynnzt hverjum manni í hópnum og litið eftir þörfum hans, má hann ekki vera stærri. Trúnaðarmannin- um ber ekki aðeins að kynnast hverjum félaga persónulega, þekkja óskir hans og þarfir við vinnuna, honum ber einnig að kynnast heimili hans\og þörfum þess eins náið og unnt er, þó vitanlega ekki til persónulegrar afskiptasemi af högum hans, heldur til þess að geta einnig þar orðið honum að liði, ef þörf er. Með þessu eru sköpuð náin tengsl milli hóps- ins og trúnaðarmannsins. Ef t. d. verkamaður er sorgbitinn, get- ur trúnaðarmaðurinn, vegna hins nána kunnugleika af honum auðveldlega vit- að, hvort það stafar af einhverju í sam- bandi við vinnuna eða af heimilisástæð- um. Sé hið síðarnefnda ástæðan, þarf oft ekki annað en að verkamaðurinn fái tækifæri til að létta sér byrðina með því að ræða við mann, er hann treystir. Stundum eru það ef til vill húsnæðis- mál, veikindi eða einhver vandræði með börnin, sem trúnaðarmaðurinn á auð- velt með að bæta úr. Mest af félagsstarfi sínu, annað en það, er beinlínis snertir vinnuna, vinnur trúnaðarmaðurinn utan síns vinnutíma. Til viðbótar því að líta eftir daglegum þörfum hópsins stjórnar trúnaðarmaður- inn samkeppni verkamannanna um Nýiar byggingar í Moskvu

x

Ný menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný menning
https://timarit.is/publication/1953

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.