Ný menning - 15.01.1946, Síða 19

Ný menning - 15.01.1946, Síða 19
N Ý M E N N I N G 10 betri vinnuafköst, með reglulegum um- ræð'ufundum um framleiðsluna. Mánaðarlega gefur svo trúnaðarmað- urinn hópnum skýrslu um starf sitt. Trúnaðarmaðurinn innheimtir félags- gjöldin í vinnutímanum. Ég hef oft verið spurður þess, hvers vegna þau væru ekki dregin frá launum við útborgun. Sömu spurningarinnar hafa jafnvel Ráð- stjórnarverkamennirnir sjálfir spurt stundum. Svarið er, að við skoðum ekki innheimtu félagsgj aldanna aðeins sem rukkunarstarf, heldur sem þýðingarmik- ið félagsstarf jafnhliða. Meðlimurinn er að vísu skyldur til að greiða gjald sitt, ef hann vill halda fullum félagsréttind- um, en jafnframt á hann sinn rétt á hendur félagi sínu. Við innheimtu gjald- anna kynnist trúnaðarmaðurinn áliti verkamannsins á því, hvernig félagið ræki hlutverk sitt, og í hverju starfinu sé helzt ábótavant, því um leið og verka- maðurinn ynnir gjald sitt af hendi, lætur hann venjulega í ljós, ef honum þykir eitthvað miður fara. Og innheimtustarf- ið eykur ábyrgðartilfinningu trúnaðar- mannsins gagnvart verkamönnunum. Honum fer að finnast, að hann hafi per- sónulega ábyrgð á því, hvernig gjaldinu er varið, og því að gjaldið gangi til að bæta vinnu og lífsskilyrði verkamanna. Af þessum og fleiri ástæðum teljum við innheimtustarfið mjög þýðingar- mikið félagsstarf, og að frádróttur gjaldsins við útborgun launa væri ó- hyggilegt, þar sem engar þær ástæður eru fyrir hendi, er gera slíkt fyrirkomu- lag nauðsynlegt. Félagsgjöldin eru ávallt 1% af vinnu- launum. Mjög fáir launaðir starfsmenn eru hjá verkalýðshreyfingunni. Aðeins formaður verksmiðjunefndanna, og for- menn deildarnefndanna á stærstu vinnu- stöðunum eru launaðir, og eru laun þeirra miðuð við heildartekjur hvers fé- lags. Þessi hundraðshluti má þó aldrei fara yfir 25 af hundraði, afgangurinn rennur svo til fræðslustarfsemi ög til almennra umbóta fyrir verkamennina. Tryggingaríulltrúi og vinnueftirJ.itsmaSur Jafnhliða trúnaðarmanninum kýs hver hópur tryggingarfulltrúa sér vinnueftirlitsmann. Samkvæmt lög- um Ráðstjórnarríkjanna er öll framkvæmd tíyggingarlöggjafar- innar í höndum verkalýðsfélag- anna. Verkamennirnír greiða eng- in gjöld til trygginganna, heldur ber atvinnureksturinn allan kostn- að við þær. Verk tryggingarfulltrúans er að líta eftir þörfum þeirra, sem veikjast eða verða fyrir slysum. Hann á að sjá um, að hinn sjúki fái nauðsynleg lyf frá lvfjabúð verksmiðjanna eða ánnarri í M 'lmbræðsluofnar í Makijevski- v.srksmiðjunum næsta nágrenni. Einnig á hann að líta efiir því, að fyrirsögn læknisins um meðferð sjúklingsins sé hlýtt. Ef sjúkl- ingurinn þarf að fara á spítala, ber hon- um einnig að annast um það. Ef sjúkl- ingurinn á að liggja í heimahúsum, ber tryggingarf ulltrúanum að heimsækj a hann og ganga úr skugga um, að heim- * ilið kut i ekkert og hir.n sjúki fái bá'að- h' ’irgu. v haiin þ-.fnast. 'Ef hinn :.j. ’ i h fur engan fil að.annasl a.n áig, 1 j e k tr ggingf fnlltrú ”- . S sjá .:m. aö ú. því verði bætt. Lœh iihjálp, lyj og sjúkrahúsvist er ' o"tað af tryggingunum, sömuleiðis ' • 'veikindin vara. ' ....hát i"' -rð mn hinn ídúk: ’i er; þekkj heimili;- . i, i'. og cru ,eiðubúniv til hjálp- u. Jrfnhliða e. ham: látinn fylgjast —ek' hyí, em ge i:t á vinmrtaðnum og lo. nar alveg við þá tilfinningu, að hann sé gleymdur og yfirgefinn. Nýja leikhúsið í Rostov, kennt við Maxím Gorkí v

x

Ný menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný menning
https://timarit.is/publication/1953

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.