Ný menning - 15.01.1946, Blaðsíða 21

Ný menning - 15.01.1946, Blaðsíða 21
N Ý M E N N I N 0 21 Morgunblaðið fagnar ©fsóknum nazista 1. febrúar 1933, tveim dögum eftir að Hitler var'ð ríkiskanzlari í Þýzkalandi (sem varð 30. janúar 1933), segir Morgunblaðið í frétta- grein frá Þýzkalandi: „TEÍCIÐ í LURGINN Á KOMMÚNISTUM Fundir bannaðir , Húsrannsóknir Upptæk skjö! . Handtökur" „Tekið í lurginn á kommúnistum“ — segir MorgunblaSið með fögnuði 1. febr. 1933, þegar nazistar voru að ráðast inn á heimili manna, berja þá til óbóta, skjóta þá án dóms og laga, banna fundi þeirra, gera upptæk skjöl o. s. frv. Er þeíta það „lýðræ(5i“, sem íhaldsburgeisana í Reykjavík dreym- ir um að koma á hér á landi ? sem nafnið bendir til, að líta eftir hin- um ýmsu þörfum, svo sem húsnæði. Hún sér um, að því húsnæði, sem vinnu- staðurinn ræður yfir, sé skipt eftir þörf- um þeirra, er þess eiga að njóta, og að því sé sómasamlega við haldið af hendi verksmiðjustjórnarinnar. A stríðstím- um ber nefndinni að hafa sérstakt eftir- lit með líðan fjölskyldna þeirra verka- manna, sem herþjónustu gegna, og eins þeim uppgjafahermönnum, er hverfa aftur til verksmiðjunnar. Hún útvegar þeim verkamönnum, sem sjálfir vilja byggja yjir sig, lán til þess og sér þeim fyrir byggingarefni, einnig aðstoðar hún þá, er þess þurfa til kaupa á liús- gögnum og öðrum búshlutum. Einnig aðstoðar hún þá verkamenn, er þess þurfa við, til að fá „endurkræfa“ eða „óer.durkræfa“ styrki úr styrktarsjóðum verkalýðsfélagsins. 4, Hvíldar- og menningarnefndin. Þessi nefnd stjórnar klúbbum og hressingarhælum verkalýðsfélagsins. -— Hún útvegar fyrirlesara um hin ólík- ustu efni, stundum upplestra og umræð- ur á eftir um það efni, er lesið var. Hún útvegar blöð og tímarit og sér um dreif- ingu bóka frá bókasöfnunum. Nefndin sér um skemmtanir á frídögunum, kvik- myndir, leikfimi og söngskemmtanir, skipuleggur skák- og íþróttakeppni og ýmislegt annað, er til skemmtunar og fræðslu má verða. Klúbbarnir gefa þeim, er það vilja, kost á að komast í náms- flokka í listum og vísindum eða hverju því öðru, sem hugur þeirra stendur til. Klúbbarnir skipuleggja skemmtikvöld, þar sem verkamennirnir skemmta sjálfir og njóta þá til þess leiðbeiningar hinna hæfustu kennara. Margir þeirra, er sýna sérstaka hæfileika á sviði einhverrar listgreinar, yfirgefa verksmiðjuna og fá ókeypis kennslu til að fullkomna sig á því sviði, er hugur þeirra stendur til. Klúbbarnir sjá einnig um kennslu í ýnuum tæknilegum cfnum, og er það einn liður í hinni víðtæku menningar- baráttu verkalýðsfélaganna, er þau vinna að í samstarfi við yfirstjórn menningarmálanna. En þetta starf er svo víðtækt, að ef gera ætti því skil, mundi þurfa til þess lengri blaðagrein en þessari er ætlað að verða. 5. Matvœlanefndin. Þessi nefnd hefur eftirlit með gilda- skála vinnustaðarins, matvælabirgðun- um og búi verksmiðjunnar. Hún lítur eftir, að matur og þjónusta á gildaskál- anum sé í lagi, og að skammtur sá, sem hverjum er ætlaður nú á stríðstímanum, sé nægur, og varan sé að gæðum eins og til er ætlazt. Úrskurður þessarar nefndar varðandi matvæli er ekki áfrýjanlegur og verður að framkvæmast þegar í stað. 6. Framleiðslu- og uppjinninganefnd. Þessi r.efnd hvetur verkamennina til að koma fram með sínar tillögur um umbætur á framleiðsluaðferðum og að- stoðar þá við að koma á framfæri hug- myndum sínum og uppfinningum til endurbóta á framleiðslunni og til auk- inna afkasta. Hún aðstoðar nýliðana til að ná aukinni leikni og hækka á þann hátt laun sín og hvetur til hagkvæmari meðferðar véla og efnis. 7. Garðyrkjunefndin. Verkefni þessarar nefndar hefur verið mjög þýðingarmikið nú á stríðsárunum, þegar fæði hefur verið af skornum skammti og einhæfara en skyldi. Hverjum verkamanni hefur verið út- hlutaður smáblettur til ræktunar, og verkefni nefndarinnar hefur verið að sjá um vörzlu þessara reita, öflun út- sæðis og að öðru leyti að sjá um, að góður árangur yrði af þessari viðleitni til að auka matarskammtinn. 8. Tryggingarnefndin. Hér að framan hefur verið getið starfa tryggingarfulltrúans, en í hverri verksmiðju, þar sem vinna meira en 200 manns, er starfandi r.efnd kosin á almennum fundi, er hefur eftirlit með því, að öllum ákvæðum tryggingarlag- anna sé framfylgt. Hún stjórnar öllum tryggingarsjóðum verksmiðjanna, út- hlutar sjúkra- og slysabótum, ellilaun- um, hvíldarstyrkjum, mæðrahjálp o. s. frv. Hún á að líta eftir því, að hinar ýmsu heilsuverndarstöðvar ræki starf sitt, sem frekar á að vera að koma í veg *

x

Ný menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný menning
https://timarit.is/publication/1953

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.