Ný menning - 15.01.1946, Síða 25

Ný menning - 15.01.1946, Síða 25
í N Ý M E N N I N G ) Kosningabaráíian ■ Stjórnmáiasamtök auðkýíinga fara jafnan að ókyrrast, þegár kosn- ingar nálgastj en ókyrrðin verður þeim mun ofsafengnari sem i'ortíð þeirra er skuggaiegri og óhæfari til að veita þeim liðsimii frammi fyrir dómstóli háttvirtra kjósenda. Það er kunnara en frá þuríi að segja, að þessi samtök eiginhagsmunaprelát- anna tryllast alveg og grípa' til hvcrs konar óyndisúrræða, þegar fylgis- hrun og ósigur blasir við þeim, þeg- ar yfirráðahægindið tekur að morkna sundur, þegar andvari nýrra og betri tfma feykir þurtu ryki gamalla og hlálegra blekkinga um tilverurétt og nauðsyn einhverra fínna manna, sem hafi verið kjörnir til þess af guðji almáttugum að græða á vinnu fjöldans og raka sam- an auði á kostnað hins fátæka. Á slíku stigi uppdráttarsýkinnar fara íhaldsflokl.arnir hamförum oq; víla ekki fyrir sér að beita hverskonar brögðum til að framlengja sérrétt- indi sfn un stundarsakir, til að geta enn um skeiö haldið áfram að fé-- fíetta almúgann og gína yfir hlut hans í hvívetna. Þessar hamfarir hafa ætíð stuðlað að skjótum og eft- irminnilegum ósigri íhaldsflokk- anna, stytt helstríð þeirra að mikl- um mun og kistulagt þá á viðeig- andi Iiátt. En hinu ber ekki að gieyma, að þær eru'ósjaldan þjóð- Iiættulegar í eðli stnu og mundu reynast næsta kaldrifjaðar, ef þær fengju að bera tilætlaðan ávöxt. Ó, hvílík sælal íhaldið í Reyk javík stendur nú loks andspænis líkkistu sinni. Lík- kistan birtist í gervi bæjarstjórnar- kosninganna 27. janúar næstkom- andi. Og það kemur engum á óvart, að íhaldið skuli ekki taka hinu væntanlega andláti sínu með kristi- legri rósemi, reyna að biðja fyrir sálu sinni og afsaka misgerðir sínar gagnvart íbúum þessa bæjar á und- anförnum árum eða mælast auö- mjúklega til þess, að þeir fyrirgefi afglöpin, svo að samvizkukvalirnar verði ekki öldungis óbærilegar á dauðastundinni. Nci, forherðing í- haldsins og blygðunarleysi vekur cnga undrun. Það hefur alltaf ver- ið forhert og blygðunarlaust. Þess vegna hlaut það að tryllast í hel- stríðinu og afhjúpa sem greinileg- ast siðleysi sitt og vonleysi, enda hefði því reýnzt örðugt að afsaka ó- stjórnina í höfuðstaðnum eða hljóta fyrirgefningu kjósendanna. Fyrstu dauðastunurnar birtust því af skilj- anlegum ástæðum í stórkostlegu grobbi og raupi, skrautlegum stél- fjaðrasýningum og drýgindalátum, sem vöktu almennan hlátur og veittu Reykvíkingum hina mestu skemmtun. Ihaldið fór nefnilega að rifja upp afrek sín á liðnum árum og skírskotaði óspart til fortíðarinn- ar, en lofaði jafnframt gulii og grænum skógum í náinni framtíð, ef blessað fólkið vildi einu sinni enn lofa eigirigj.örjnustu og harð- snúnustu peningamönnulium að skara eld að sinni köku. Það birti myndir í Lesbók Morgunblaðsins, svo að bónorðið yrði sem áhrifarík- ast. Sko, hérna er rnynd af hitaveit- unni, sem hann Bjarni okkar Bene- diktsson gaf ykkur hreinlega. (Hann dró reyndar á langinn að kaupa þcssa myndarlegu gjöf, svo að hún varð mörgum sinnum dýrari en elia hefði orðið, en það gerir ekkert til, því að hann Bjaddi okkar greiddi auðvitað mismuninn úr eigin vasa, blessaður maðurinn.) Og hérna er önnur mynd af Sogsvirkjuninni, sem veitir ykkur ótakmarkað raf- magn, en cins og þið vitið, þá fund- um við upp rafmagnið hér á árun- um. Og sjáið þið bara: Hérna er mynd af nokkrum götum, sem við maibikuðum í sumar í tilefni af þessurn bæjarstjórnarkósningum. Þið getið reitt ykkur á, að ykkur er guðvelkomið að ganga eftir malbik- inu til að forðast heilsuspillandi ryk og dimma sandbylji, en fari svo, að einhverjir kjósendur sakni ryks- ins og sanabyljanna, þá viljum við taka fram, að hvarvetna í bænum eru tugir ómalbikaðra gatna, sem bjóða upp á ótakmarkað ryk, og vindar heimsins munu sveifla því í dimrna sandstróka og feykja þeim síðan um gervalla borgina. En bíðið þið nú við: Hér kemur ný mynd af grjótnámunum okkar. Við þurfum ekki að taka fram, að þetta grjót er sköpunarverk okkar, einkúm hans Bjadda, en kvörnin sú arna er mesta afbragð, þótt hún sé farin að reskj- ast. Ennfremur viljum við vekja at- hygli á víravirkinu, sem þið sjáið þarna. Þetta víravirki stendur á hafnarbakkanum, það er notað við uppskipun, við fengum það að láni hjá bandaríska setuliðinu. (Og svo keypti Bjaddi eina skóflu í fyrra, en það er svo vandasamt að taka mynd af Iienni, að við neyðumst til að fresta því fram yfir kosningarn- ar.) Aftur á móti reyndist okkur auðvelt að ljósmynda nýbyggingarn- ar okkar hérna í Reykjavík, sam- býlishúsin og verkamannabústað- ina, svo að þið getið öll sannfærzt um, hvílíkt dýrindis húsnæði við

x

Ný menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný menning
https://timarit.is/publication/1953

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.