Ný menning - 15.01.1946, Síða 36
36
N Ý M E N N I N G
«
Morgunblaðið tckur málstað
sinna samlicria
Rétt'eftjr að nazistar höfðu kveikt í ríkisbinghöll-
inni í Berlín, b;rti Morgunblaðið forystugrein, þar sem
þetta stendur meðal annars (1. marz 1933) :
„í gærmargun bárust hi.ngað fiær fregnir ao þýzkir
koRimúaistar hefðu í fyrrakvöld gert hiua sfórkostleg-
ustu íkveikju í þinghúsi fiýzka lýðveldisins, sem skýrt
er frá á öðram stað í blaðinu. Atti fiinghúsbrumnn að
verða uppreisnartákn fyrir gervallan byltingarlýð
Þýzkalands.
En hvað gerir stjórnmálanefnd Alfiýðublaðsins við
fregn fiessa?
Hún snýr henni við. Það era ekki kommúnistar, sem
kveikt hafa í fiinghúsinu í Berlín, segir hr. alfim. Héð-
inn Valdimarsson. Oðru nær. Það eru þýzk yfirvöíd,
sem lagt hafa hina glæstu þinghöll að miklu leyti í
rústir (!) Eins og hann viti fietta ekki langtum hstur
en t. d. lögreglan í Berlín(!)“
Hneykslun Morgunblaðsins er mikil yíir því, að
nokkur skuli dirfast að gruna þýzk yfirvöld, þ. e. Hitler
ríkiskanzlara og Göring innanríkisráðherra og liðs-
menn þeirra um þetta verk. Morgunblaðið útdeilir ör-
látlega upphrópunarmerkjum sínum til að lýsa yfir
hneyksiun sinni og vandlætingu.
En hér er vissulega að ræða um mjög alvarlegt mál.
Þieghallarbrennan varð upphafið að ógnaröld naz-
ismans heima fyrir og erlendis. Með henni sköpuðu
fieir sér tilefni ti! að fangelsa og drepa helztu stjórn-
málaandstæðinga sína, banna blöð þeirra, ræna eignum
þeirra, ieggja verkalýðshreyfinguna í rústir, afnema
aílt frslsl í Þýzkalandi.
Hvsr sá, sem tók málstað nazistanna þá, afsakaði
þennan glæp þeirra og hjálpaði þeim til að koma sök-
ÍEffli á saklausa menn, hann ber einnig sinn hluta af
hinni andíegu ábyrgð á öllum síðari hroðaglæpum
þeirra, fangabúðamorðunum og stríðsglæpunum.
Morgunblaðsíhaldið hneykslast nú á framferði naz-
ista. ,
En það fagnaði valdatöku þeirra.
Morgunblaðsíhaldið hneykslast nú á fangabúðum
Hitíersstjórnarinnar.
En það kallaði það róg um vinveitta bjóð, þegar
íslenzkir sósíalistar vcru að lýsn fangabúðumim áður
fyrr.
Morgaíiblaðsíhaldið afsakar sig nú með því, að það
hafi ekki vitað, hvers konar menn nazistar voru.
Sú afsökun stoðar því ekki. MorgunblaðsíhaSdinu
stóðu til boða hundruð bóka með sönnum lýsingum
á nazismanum ásamt vottfestum frásögnum frjáls-
lyndra blaða am allan heim.
Fylgi Morgunblaðsíhaldsins við þýzka nazismann á
þessum áram verður aldrei að eilífu af skafið.
í Ráðstjórnarríkjunum hefur
sárasótt rénað um 85% miðað við
það, sem var fyrir stríð.
Hraust og iápmikil kynslóð
erfir landið
Hin mikla umhyggja um heil-
brigði verkafólksins, sem hin sósíal-
istiska skipulagning vinnunnar og
lífskjaranna fékk skapáð, hefur
einnig borið ávöxt í auknum lík-
amsvexti og líkamshreysti.
Kynslóðin, sem vex upp undir
ráðstjórninni, verður heilsubetri og
líkamshraustari með hverju ári, sem
líðgr. Um það bera greinilega vitni
vísitölur um líkamshæð, þunga og
brjóstmál þeirra, sem kvaddir eru
til herþjonustu. Munurinn á lík-
amsvexti verkamailnsins, samyrkju-
bóndans og embættismannsins
hverfur vegna hinnar almennu jöfn-
unar og aukningar efrtalegrar vel-
megunar í Ráðstjórnarríkjunum,
þar sem kippt hefur verið brott
undirrót þess, að nokkur maður geti
arðrænt annan mann, en það skapar
einmitt stéttamuninn.
Hin vaxandi líkamshreysti æsk-
unnar helzt stöðugt áfram og var
sérstaklega greinileg síðustu tvö ár
síðari fimmáraáætlunarinnar. Með-