Skemmtisögur - 01.07.1949, Blaðsíða 8

Skemmtisögur - 01.07.1949, Blaðsíða 8
hellti einum kokkteil í sig um leið. „En nú skal ég segja yður, hvað ég ætla að gera, Maivc r.. Eg ætla að brjóta inínar gömlu venjur og giftast Önnu.“ „Til hamingju," sagði Jim. „Ég er viss um að þér munuð verða mjög hamingju- samir." En það var ekki beiniínis neinn innileiki í rödd Iians, og eftir að Carlyle var farinn, drakk hann þrjá kokkteila hvern á fætur öðrum. Þér verður boðið í brúð- kaup þeirra, sagði hann við sjálfan sig, og þú neyðist til að gefa þeirn brúðargjöf. Það mun verða þinn bani. Um kvöldið sat hann heima hjá sér og las í dagblaði, en honum reyndist illmögu- legt að hafa hugann við það sem hann las. Dyrabjöllunni var hringt, og þjónninn fór fram og opnaði. Jim gramdist tilhugsun- in um að fá gesti. Carlyle og Anna gengu inn, bæði mjög hátíðleg. „Ég varð að segja honum sannleikann, Jim,“ sagði Anna. „Égvar einfaldlega nauð- beygð til þess.“ Carlyle greip þéttingsfast í Jim, og lyfti honum upp af stólnum. „Segið mér eitt, Malvern. Er hún að gera að gamni sínu?“ Jim starði á Önnu og var ekki í vafa um hlutverkið: Hún var hin unga tízku- dama, sem stóð andspænis smán og skömm. „Hann spurði mig, hvort ég vildi giftast sér,“ sagði Anna hárri, skærri röddu og neri höndunum saman um leið. „Hvernig hefði ég átt að geta komið til hans sjálfa brúð- kaupsnóttina, eftir allt það, sem farið hefur fram okkar á milli? Ég varð að segja hon- um frá því. Maður verður aldrei hamingju- samur, ef maður byrjar sambúðina með lygum." „Anna,“ sagði Jim, „áttu við — merkir þetta það, að þú eigir von á barni?“ Anna riðaði bókstaflega á fótunum, en hún s'kilaði sínu hlutverki með sóma. „Ég — ég veit það ekki, Jim — ég hugsa það — það getur vel átt sér stað.“ „Hvað á ég að segja mér til afsökunar, Carlyle?" sagði Jim. „Það er ekki um ann- að að ræða, ég verð að giftast henni." „BÖLVAÐUR ÞRJÓTURINN!" sagði Carlyle. Hann sleppti Jim og gekk til Önnu, sem ekki var lengur föl, heldur rauð í fram- an eins og rauðbeða. Hann laut virðulega niður að henni og kyssti á heitt enni henn- ar. „Þú ert fallegasta og bezta stúlkan, sem ég hef nokkru sinni kynnzt. Ef hann gift- ist þér ekki, þá slæ ég hann í plokk- fisk.“ „Ég vil helzt vera ein,“ sagði Anna og sneri andliti til veggjar. Carlyle ygldi sig framan í Jim, en datt ekki neitt nýtt í hug til að segja, og snaraðist út. Jim andvarpaði og kveikti sér í pípu. „Þú þarft ekki að standa lengur í skammar- króknum," sagði hann. „Ég hélt, að þú myndir komast í vandr- æði og verða miður þín af auðmýkt," sagði hún, án þess að hreyfa sig. „Ég hélt, að þú myndir bera á móti öllu saman. Ég var bara að gera að gamni mínu.“ „í þetta skiptið bitnar gamanið allt á þér sjálfri," sagði Jim. „Þú neyðist til að gift- ast mér. Hann heldur sér aldrei saman, ef við látum ekki verða af því.“ „Við ætlum að eignast barn, er það ekki?“ sagði Anna. »JÚ“ Hún liljóp til hans og greip um hálsinn á honum. Skyndilega hafði hún breytzt í kornunga, ástfangna stúlku. „Það skal eng- inn hafa eignast betri konu en þú,“ hróp- aði hún himinlifandi. „Fer nú virkilega vel um þig, elsku eiginmaður? Nú skal ég ná í inniskóna þína, elskan mín. Á ég ekki að troða í pípuna þína?" „Ég elska þig, Anna,“ sagði Jim. „Ég vil að þú munir það alltaf, þó að svo kunni að fara, að ég gefi þér ráðningu, við og við.“ ENDIR 6 SKEMMTISÖGUR

x

Skemmtisögur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skemmtisögur
https://timarit.is/publication/1958

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.