Skemmtisögur - 01.07.1949, Blaðsíða 29
Enginn gerir þa3 að gamni sinu,
að hnerra frá sér 50 þús. dollurum.
Það kvað við
SKAMMB YSSUSKOT
Smellin smásaga eftir LENN FALK.
ÞAÐ VAR í stórri íbúð, sem búin var
dýrindis húsgögnum, í einu glæsilegasta
hverfi New York-borgar. Það var kvöld, og
dauf birta, frá litlum og haglega gerðum
lampa, skein á unga konu, fríða, snyrtilega
og háttprúða, og tæplega miðaldra mann,
en í andliti hans var þóttasvipurinn einna
snarasti þátturinn. Brosandi virti hann hana
fyrir sér, er hún stóð upp frá borðinu, gekk
að útvarpsviðtækinu og tók að fingra við
einn takkann með snoturlegum handhreyf-
ingum. Svo hefði getað virzt, sem maðurinn
væri að vona, að hún myndi skrúfa fyrir
músíkina, en hafi svo verið, þá varð hann
fyrir vonbrigðum — hergöngulag hljómaði
af þvílíkum ákafa, að ástæða hefði verið til
að halda, að hljómlistin héldi til frammi í
forsalnum. Samtímis leit hún út undan sér
á armbandsúrið sitt. .
„Er þetta virkilega þess virði, að hlustað
sé á það, Leila?“
„Hví ekki það, þú veizt að ég elska músík,
William. En, eins og þér þóknast. Ég ætla
að laga mig dálítið til. Augnablik ...“
í sama bili var dyrabjöllunni hringt
svo ofsalega, að hringingin yfirgnæfði
hina drynjandi músík — og unga
konan hrökk við. Hún leit óttaslegin á fé-
• laga sinn. Hann hafði risið á fætur.
„Þetta er náttúrlega ... En þú þarft ekki
að opna.“
Nei, þess þurfti hún sannarlega ekki, því
að dyrunum var hrundið upp og skellt
harkalega að stöfum aftur, það heyrðist
SKEMMTISÖGUR
27