Skemmtisögur - 01.07.1949, Blaðsíða 42

Skemmtisögur - 01.07.1949, Blaðsíða 42
„Ó, Allah, engu get ég leynt þig. Ég ætl- aði að taka mitt eigið líf.“ „Veiztu ekki, að það er bannað að leggja hendur á sjálfan sig? Það stendur í Kóran- inum á blaðsíðu tuttugu og sjö, þrettándu línu að neðan! Svaraðu!" „Ó, Allah! ...“ „Veiztu ekki, að enginn, sem brýtur þetta boðorð, kemst í Paradís?" „Ó, Allah, ég var þess albúinn að gera allt til þess að komast burt frá eiginkonu minni. Ef þú ættir slíka konu sjálfur, mynd- ir þú ugglaust stinga höfðinu í lykkjuna. við fyrsta mögulega tækifæri!" „Hvernig vogarðu að tala svona? Hef ég kannske ekki gefið þér eiginkonu, sem er algerlega gallalaus?" „Jú, þú faðir sköpunarverksins, þú ljós hinna trúuðu og ógn hinna vandlátu, þú • • •“ „Svona, svona, þá ertu byrjaður aftur! Vertu stuttorður!" „Jú, Allah, þú hefur vissulega rétt að mæla.“ „Jæja, en hvaða ástæður hefurðu þá til þess að brjóta boðorðið, sem skrifað stend- ur í Kóraninum mínum á blaðsíðu tuttugu og sjö, þrettándu línu að ofan?“ „Var það ekki að neðan?" „Jæja, þá, þá að neðan, það kemur út á eitt! Prýða máske ekki allar dyggðir eigin- konu þína, sem einn kvenmann mega prýða og vel það?“ „Jú, það er einmitt mergurinn málsins, Allah! Dyggðir hennar eru svo miklar, að hún hefur ekki einu sinni smugu fyrir einn einasta smá galla. Hún er gjörsamlega blettalaus fyrirmynd fyrir allar manneskj- ur, og hvað sem hún sagði við mig, þá gat ég aldrei gert hina minnstu athugasemd. Þannig kom, að ég fann alltaf til löngunar til þess að stytta henni aldur, og til þess að komast hjá því, var það að ég reyndi að fremja sjálfsmorð. Til allrar ólukku kom þessi förumunkur og skar mig niður á ó- heillastundu, en sem betur fór lézt ég eðli- lega sjö dögum síðar á heimili mínu. Það er allt og sumt. Hefði eiginkona mín haft einn, bara einn, galla, þá væri ég nú jarð- arinnar hamingjusamasti maður.“ „Þegiðu, þú óverðugur!" sagði Allah fok- vondur. „Þú verðskuldar ekki að hitta konu þína í Paradís. Þess vegna sendi ég þig nið- ur til Helvítis. Farðu!“ „Kærar þakkir, Allah!“ hrópaði Hassan- Ali hæstánægður. „Ég skil, að þú getur hreint ekki gert þér í liugarlund, ó, þú allt- vitandi, hvernig eiginkonan mín gallalausa í raun og veru er. ... Jæja, en þær samræð- ur getum við jú tekið upp að nýju, í Hel- víti. Sæll á meðan!“ ENDIR - SKRÍTLUR - Hjónin lentu í orðasennu einn sunnudagsmorg- un, og eiginmaðurinn sló í borðið, titrandi af reiði og hrópaði: „f þetta sinn hefurðu gengið of langt. Nú skiljum við að skiptum!“ „Ég meina það, ég ætla aldrei að koma aftur,“ hélt hann áfram. „Ef til vill fer ég upp í óbyggð- ir, eða upp á Grænlandsjökla; kannske suður í frumskóga hitabeltisins, eða jafnvel fer ég með rakettuflugvél til tunglsins.“ Hann opnaði útidyrnar, gekk út, en flýtti sér inn aftur. „Það er heppni fyrir þig,“ tautaði hann, „að það skuli vera rigning." Þjónninn: — Eruð þér ekki sami maðurinn, sem ég afgreiddi hér fyrir viku síðan? Gesturinn: — Nei, eftir þá máltíð verð ég aldrei sá sami. Hún: — Af hverju kallarðu mig alltaf „barn“? Hann: — Af því þú ert bara með eina tönn. Útgefandi: Prentsmiðjan Rún h.f. — Skúlatún 2 — Reykjavík — Afgreiðslusímar: 4045 og 7667. 40 SKEMMTISÖGUR

x

Skemmtisögur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skemmtisögur
https://timarit.is/publication/1958

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.