Skemmtisögur - 01.07.1949, Blaðsíða 28

Skemmtisögur - 01.07.1949, Blaðsíða 28
„Hver stjórnar þessu eiginlega?" sagði Bill. „Skollinn hafi, að ég skilji vitund í kvenfólkinu." „Nei, þú skilur það sannarlega ekki,“ svaraði Kay, og hún hugsaði með sjálfri sér, að það mætti líka einu gilda. Hann leit tortryggnislega til hennar. „Fyrst setur þú himin og jörð á hreyfingu og vilt fyrir alla muni forðast að særa til- finningar hennar, og nú stendur þú hér og ert bara hreykin, eftir að hafa svo gott sem rekið hana á dyr," sagði hann. „Láttu þessa bolla vera!" Kay lét bollana vera. „Konur skilja hverj- ar aðra, Bill," sagði hún. „Við Trilby mun- um alltaf vera góðar vinkonur." „Það er ofar mínum skilningi," sagði hann. „En ég skal fúslega játa, að mér er innanbrjósts eins og ég hefði unnið stærsta vinninginn í happdrættinu." Hann brosti til Kay: „Loksins ein!" Kay endurgalt brosið hamingjusöm. Þótt einhver hefði boðið henni stóra vinning- inn í happdrættina, myndi hún aldrei hafa sagt Bill, hvað hún hafði sagt við Trilby. í fjögur ár hafði sú staðreynd nagað Trilby í hjartaræturnar, að það var Bill, sem hafði farið fram á skilnaðinn. Það var sennilgea þessvegna, hugsaði Kay, að hún hafði haft svona mikinn áhuga á síðara hjónabandi hans. Og lítil, sakleysisleg lygi, hafði fært Trilby sjálfsvirðingu hennar aftur. í þetta- skipti var það Trilby, sem sagði nei, Trilby, sem á göfugmannlegan hátt færði Kay eig- inmann sinn aftur. Ef til vill myndi það, hugsaði Kay, gjörbreyta allri afstöðu henn- ar til lífsins. Kannske Trilby myndi nú verða hamingjusöm manneskja. Hún tók bollana og fór með þá fram í eldhúsið. ENDIR Sólböð eru tilgangslítil í sumar munu þúsundir íslendinga verða eld- rauðir af sólbruna. Hvarvetna á byggðu bóli mun fólk, sem ekkert virðist annars vera athugavert við á andlega sviðinu, flatmaga í sólbaði, eins og svíðandi fómardýr sólarguðsins. Eftir nokkra hörmungadaga verða þessir menn ef til vill brún- ir og „hraustlegir“, og þá geta þeir litið yfirlæt- islega á föla og veiklulega samborgara sína. í fyrravor skrifuðu tveir vísindamenn um þetta efni í tvö af merkustu og útbreiddustu tímarit Ameríku, „Reader’s Digest“ og „Collier’s". Þeir upplýsa (því miður) að hin mikla tröllatrú á heilsubætandi áhrif sólarljóssins, er þjóðtrú ein, sem byggð er á röngum forsemdum. Vísindi nú- tímans staðhæfa, segja þeir, að sólböð hafi lítil sem engin heilsubætandi áhrif á iíkamann. Vísindamenn þessir, sem heita Snowden T. Herrik og John E. Pfeiffer, benda á það, að þótt jurtirnar hafi not fyrir sólarljósið, þá séu dýr- in alls óskyld þeim og hvorki geta né muni geta breytt sólarljósinu í orku, nema því aðeins að líffæragerð manna og dýra gerbreytist. Hins vegar álíta vísindamennirnir, að hreyfing í tæru lofti sé mönnum holl. Daufgerð og heilsu- veil borgarbörn, sem dvelja um tíma á bama- heimilum, einkum upp til fjalla, muni venju- lega hafa gott af því. En þeir telja það fullsann- að, að orsökina sé ekki að finna í sólböðum, held- ur fyrst og fremst af hreyfingu í hreinu lofti, kjarngóðri fæðu og nægri hvíld. Eina vitamínið, sem álitið er að sólarljósið framleiði, er D-vitamín, sem er nauðsynlegt fyr- ir börn með beinkröm. En þeír Henrick og Pfeiffer benda á það, að mun fljótlegra sé að afla þessa vitamíns með því að borða egg og mjólk eða mjólkurafurðir, auk margra annarra algengri fæðutegunda, sem þeir tilgreina. A þann hátt sé hægt að koma í veg fyrir beinkröm eða skylda sjúkdóma, og vinna bug á þeim, án þess að þurfa að óttast brunasár, og það miklu fyrr, heldur en með því að liggja eins og sjúklingur í ljósböðum, eða flatmaga í sólskini, eins og mátt- vana og drukkinn róni uppi á Arnarhólstúninu. A. 26 SKEMMTISÖGUR

x

Skemmtisögur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skemmtisögur
https://timarit.is/publication/1958

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.